Svanir, frímerki og kastalar – Hvað verður um eignir drottningar?

Erfða­skrá Elísa­betar II. Eng­lands­drottn­ingar verður ekki gerð opin­ber líkt og kon­ung­legar hefðir kveða á um. Óljóst er hvað verður nákvæm­lega um eignir drottn­ingar en eitt er víst: Erf­ingj­arnir þurfa ekki að greiða skatt.

Elísabet Englandsdrottning og Karl Bretaprins árið 2007. Erfðaskrá drottningar er leynileg en ljóst er að Karl býr yfir ýmsum eignum eftir móðurmissinn.
Elísabet Eng­lands­drottn­ing og Karl Breta­prins árið 2007. Erfða­skrá drottn­ingar er leyni­leg en ljóst er að Karl býr yfir ýmsum eignum eftir móð­ur­miss­inn. Mynd: EPA

Kon­ung­legar erfða­skrár eru aldrei gerðar opin­berar. Það verður því leynd­ar­mál kon­ungs­fjöl­skyld­unnar hvað verður um stóran hluta per­sónu­legra eigna sem Elísabet II Eng­lands­drottn­ing lætur eftir sig.

Raun­veru­leg auð­æfi Eng­lands­drottn­ingar hafa aldrei verið gerð opin­ber en sam­kvæmt úttekt sem banda­ríska við­skipta­tíma­ritið Forbes gerði í fyrra eru per­sónu­legar eignir Elísa­betar metnar á 500 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega 70 millj­örðum króna. Úttekt Sunday Times er ögn frá­brugðn­ari, sem metur per­sónu­legar eignir drottn­ingar, umfram skuldir, á 370 millj­ónir punda eða sem nemur um 60 millj­örðum króna.

Eign­irnar sam­an­standa meðal ann­ars af skart­gripum drottn­ingar, lista­verka­safni, fjár­fest­ingum og tveimur höllum, Balmoral-kast­ala í Skotlandi og Sandring­ham-höll í Norfolk. Báðar eign­irnar erfði Elísabet frá föður sínum, Georgi sjötta kon­ungi.

Leynilegar konunglegar erfðaskrár

„Kon­ung­legar erfða­skrár eru leyni­legar, við höfum í raun ekki hug­mynd um hvað þær fela í sér og hvers virði þær eru. Innihald þeirra er aldrei gert opin­bert,“ segir Laura Clancy, lektor í fjöl­miðla­fræði við Lancaster-háskól­ann og höf­undur bókar um fjár­mál kon­ungs­fjöl­skyldna, í sam­tali við CNN.

En það er meira en fast­eignir og land­svæði að finna í fórum drottn­ingar. Hún átti til að mynda eitt stærsta frí­merkja­safn heims sem hún erfði eftir afa sinn. Safnið er metið á 118 millj­ónir punda, eða tæpa 19 millj­arða króna, og eru verð­mæt­ustu frí­merkin metin á tæp­lega 300 þús­und krónur hvert.

Elísabet erfði einnig flestar eigur móður sinnar þegar hún lést árið 2002, allt frá postu­líns­stelli til hesta, auk verð­mætra Faberge-eggja.

Auðæfi bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í heild­ina eru metnar á 18 millj­arða punda, jafn­virði rúm­lega 2.850 millj­arða króna. Mik­il­vægt er að gera grein­ar­mun á per­sónu­legum auð­æfum drottn­ingar, sem til­tekin eru í erfða­skrá hennar, og auð­æfum kon­ungs­rík­is­ins, þegar kemur að því hver mun erfa hvað.

Valkvæður tekjuskattur og enginn erfðaskattur

Karl III. Eng­lands­kon­ungur mun ekki borga skatt af því sem hann erfir en mun fylgja í fót­spor móður sinnar og greiða tekju­skatt. Um val­kvæðan tekju­skatt er að ræða þar sem tekjur kon­ungs eru ekki gefnar upp og er upp­hæðin því úr lausu lofti gripin og hefur það verið gagn­rýnt.

Hvorki Karl né systk­ini hans koma til með að greiða erfða­skatta en sam­kvæmt lögum sem sam­þykkt voru árið 1993 eru eignir sem metnar eru á 325 þús­und pund eða meira und­an­þegnar frá 40 pró­sent erfða­skatti sem ann­ars þarf að greiða.

Fjöl­margir eigna­sjóðir eru nú í umsjón Karls, þar á meðal eigna­sjóð­ur­inn Duchy of Lancaster, sem komið var á fót árið 1265 og er met­inn á 653 millj­ónir punda, eða sem nemur rúm­lega 100 millj­örðum króna. Sjóð­ur­inn er not­aður til að greiða fyrir það sem þjóð­höfð­ingja­styrk­ur­inn (e. The Sover­eign Grant) nær ekki yfir, og er auk þess nýttur til að styðja við aðra með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Þjóð­höfð­ingja­styrk­ur­inn sam­anstendur af fram­lagi frá breskum skatt­greið­endum en greiðslur úr honum ná yfir opin­beran kostnað drottn­ing­ar­innar, nú kon­ungs­ins, auk ann­arra helstu með­lima kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Kórónur, svanir, höfrungar og hvalir

Ef nánar er rýnt í hvað kemur í hlut Karls nú þegar hann er orð­inn kon­ungur má finna ýmis­legt for­vitni­legt. Meðal þess sem hann erfir er eign­ar­hald á öllum svönum Bret­lands, sem eru 32 þús­und tals­ins. Auk þess erfir hann eign­ar­hald á öllum höfr­ungum og hvölum í breskri land­helgi, en þessi háttur hefur verið hafður á frá því á 12. öld.

Augu flestra bein­ast að því hvernig per­sónu­legum eigum Elísa­betar drottn­ingar verður skipt. Búist er við að þeim verði skipt á milli fjög­urra barna hennar og átta barna­barna, en í raun er henni frjálst að hafa erfða­skránni að vild. Kon­ung­legum erfða­skrám hefur hins vegar verið haldið leyndum í áraraðir og ekki er búist við að nein breyt­ing verði á því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

englandsdrottning

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár