Íslensk erfðagreining hefur hafið mótefnamælingar – Ákveðnir hópar hafa forgang

Fyrst í stað setur Íslensk erfða­grein­ing ákveðna hópa í for­gang í mótefna­mæl­ingar. Nú er ein­blínt á fólk sem hefur verið með stað­festa COVID-19 sýk­ingu en er batnað.

Íslensk erfða­grein­ing hefur hafið mótefna­mæl­ingar vegna COVID-19. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á Facebook-síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Fram kemur að fyrst í stað setji þau ákveðna hópa í for­gang og bjóði þeim að koma. Nú sé ein­blínt á fólk sem hefur verið með stað­festa COVID-19 sýk­ingu en sé batnað.

Þá sé ætl­unin að bjóða stórum hluta þess hóps sem hefur verið í sótt­kví að koma í mótefna­mæl­ingu. Í fram­hald­inu verði von­andi hægt að bjóða almenn­ingi uppá slíkar mæl­ingar en vegna umfangs­ins sé óvíst hvenær það verður. Það átak verði kynnt sér­stak­lega í fjöl­miðlum.

Enn fremur segir í til­kynn­ingu Íslenskrar erfða­grein­ingar að mikið álag sé á Þjón­ustu­mið­stöð rann­sókna­verk­efna vegna þessa og vilja þau biðja fólk um að sýna bið­lund ef það vill kom­ast í slíka mæl­ingu.

Mótefni hjá sýktum stað­fest

[links]Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, sagð­ist á dag­legum blaða­manna­fundi almanna­varna í gær reikna með að skimun fyrir mótefnum gegn veirunni sýndi hver hin raun­veru­lega dreif­ing veirunnar væri í sam­fé­lag­inu.

Þá var ­búið að mótefna­mæla milli 700 til 800 manns í gær, þar af voru um 500 sem ekki var vitað til­ að hefðu sýkst. Kári sagði að nú þegar sæist það mynstur sem búist var við: ­Meiri­hluti þeirra sem hefur sýkst er kom­inn með mótefni.

Fjöl­marg­ar ­þjóðir heims eru nú að hefja mótefna­mæl­ing­ar. Kári sagði að til þess yrði að horfa þegar tak­mark­anir á ferða­lögum til og frá Íslandi væru ákveðn­ar. „Þú vilt ekki hleypa fólki inn í landið frá löndum sem hafa ekki verið að gera nokk­urn skap­aðan hlut.“

Fram­lag ­Ís­lenskrar erfða­grein­ingar til þró­unar bólu­efnis gegn veirunni verður að sögn Kára það að sýna fjöl­breyti­lega bygg­ingu henn­ar. Hann sagð­ist bjart­sýnni en Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir á að bólu­efni yrði fljótt aðgengi­leg­t. Klínískar próf­anir á því væru þegar hafn­ar. Sagð­ist hann gera sér vonir um að það yrði, í ein­hverju formi, til­búið innan árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár