Elliði Vignisson: Ömurlegt að stjórnmálamenn vegi að sjávarútvegi

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur þung orð um það hvernig Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefur höndlað við­skipta­bann Rússa á íslensk mat­væli. Hann skrif­aði pistil á vef­síðu sína elliði.is í morgun og segir fram­komu ráð­herr­ans til skammar.

Í Vest­manna­eyjum starfa tvær stærstu vinnslu­stöðvar fyrir upp­sjáv­ar­fisk á land­inu; Ísfé­lagið og Vinnslu­stöðin eiga mikla hags­muni undir í viskipta­banni Rússa. Í sam­an­tekt RÚV á hvar bannið kemur verst niður virð­ast Vest­manna­eyjar og sveit­ar­fé­lög á Aust­ur­landi verst leikin.

[caption id="attachment_27356" align="align­right" width="200"] Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum.[/caption]

Elliði byrjar á að taka dæmi af Gunnþóri Ingv­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Síld­ar­vinnsl­unnar. Hjá honum starfa 270 manns sem Elliði segir nú eiga hættu á að missa starfs sitt. Gunnþór hefur þess vegna brugð­ist við og gagn­rýnt stjórn­völd fyrir það hvernig þau héldu á mál­inu.

„Í stað þess að sýna því skiln­ing að orð og gjörðir í utan­rík­is­málum hafa afleið­ingar fyrir íbúa þess lands og fyr­ir­tæki og mæta þannig gagn­rýni af still­ingu brást Gunnar Bragi hinn versti við,“ skrif­aði Elliði á vef­síðu sína. „Steininn tók úr þegar utan­rík­is­ráð­herr­ann og þing­mað­ur­inn gekk svo langt í við­tals­þætt­inum „Á Sprengisandi“ að við­hafa lítt duldar hót­anir um að ef Gunnþór hefði ekki vit á að halda sig til hlés — halda kjafti — þá yrði fisk­veiðistjón­un­ar­kerfið end­ur­skoðað.“

„Ef Gunnþór tjáir skoð­anir sem ekki eru stjórn­mála­mann­inum þókn­an­legar megi allt eins búast við því að eignir hans og tengdra aðila verði gerðar upp­tækar. Þessar alvar­legu hót­anir krydd­aði ráð­herr­ann svo með brigslum um arð­greiðslur og oflát­ungs­hátt Síld­ar­vinnsl­unnar,“ skrifar Elliði enn fremur. „Ég vil trúa því að ráð­herran hafi hér hlaupið á sig og þetta til­vik sé ekki dæmi­gert fyrir hann. Eftir stendur að fram­koman að þessu sinni var honum ekki sam­boðin heldur til skammar.“

Gunnar Bragi hefur sagt að hann ætli ekki að leggja til að þátt­taka í við­skipta­þving­unum banda­manna gegn Rúss­landi verði end­ur­skoðuð. „Það byggir á prinsippi og miklu stærra hags­muna­mati en þetta, í raun­inni, þó hér séu auð­vitað miklir hags­munir,“ sagði Gunnar Bragi í sam­tali við Kjarnann. Á Sprengisandi á sunnu­dag sagði ráð­herr­ann svo að hann velti fyrir sér hvort það séu bestu menn­irnir til að fara með auð­lind­ina ef þeir taki eig­in­hags­muni fram yfir heild­ar­hags­muni.

Undir milli­fyr­ir­sögn­inni „Ömurlegt“ skrifar bæj­ar­stjór­inn svo að það sé „ömur­legt fyrir okkur sem eigum allt undir sjáv­ar­út­vegi að stjórn­mála­menn skuli ítrekað leyfa sér að vega að atvinnu­grein­inni.“ Og: „Rétt við­brögð ráð­herra hefðu verið að útskýra og rétt­læta ákvörðun sína en ekki að við­hafa hót­anir og brigsl­anir. Að nálg­ast málið mál­efna­lega en ekki að reyna að þagga niður í gagn­rýn­is­röddum. Slíkt er ein­göngu merki um vondan mál­stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár