Björn Leví og eig­in­konan knús­ast á kosn­inga­vöku Pírata Mynd: Heiða Helgadóttir

Maður verður þingmaður

Róttækar breytingar eru að verða á lífi Björns Leví Gunnars­sonar. Hann var annar maður á lista Pírata í Reykjavík norður og er því um þessar mundir að hefja störf á sínum nýja vinnustað, hinu háa Alþingi. Ljós­myndari Stundarinnar fylgdi Birni eftir í kosninga­baráttunni og í gegnum nóttina þegar hann varð að þingmanni.

Uppgangur Pírata innan íslenskra stjórn­mála á sér engin fordæmi í sögunni. Flokkur sem byggir á grunni anarkískrar hugmynda­fræði þrefaldaði þingmanna­fjölda sinn og á komandi kjör­tímabili munu tíu Píratar sitja á þingi.

Einn þeirra er Björn Leví Gunnarsson, en hann var í öðru sæti fyrir Pírata í Reykja­víkur­kjördæmi norður. Björn er að eigin sögn tölvunar­fræðingur, eigin­maður, faðir og nörd. „Lands­byggðar­barn úr Þorláks­höfn, Grundar­firði og Sauðár­króki en fluttist á mölina til að fara í framhalds­skóla. Losnaði þá við einelti grunn­skólans sem tók nokkur ár að komast yfir.“

Úr framhalds­skóla fór Björn aftur á leikskóla. Síðan þá hefur hann flakkað milli þess að vera í námi, að kenna og vinna með tölvur. Hann er tveggja barna faðir en börnin hans heita Alexander Arnar, sjö ára og Ársól Ísafold sem er alveg að verða tveggja.

Fyrstu kynni Björns af stjórn­málum var fyrir kosningarnar 2013 þegar hann gekk til liðs við Pírata. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið undanfarið ár