Elísabet II Englandsdrottning látin

Elísabet II Eng­lands­drottn­ing lést síð­degis, umkringd sinni nán­ustu fjöl­skyldu, í Balmoral-kast­ala í Skotlandi. Hún var 96 ára og var drottn­ing í 70 ár, lengur en nokkur annar breskur þjóð­höfð­ingi. Karl Breta­prins tekur við krún­unni.

Elísabet II Englandsdrottning er látin, 96 ára að aldri.
Elísabet II Eng­lands­drottn­ing er látin, 96 ára að aldri. Mynd: EPA

Elísabet II Eng­lands­drottn­ing er látin, 96 ára að aldri. Elísabet hefur verið drottn­ing í 70 ár, lengur en nokkur annar þjóð­höfð­ingi Bret­lands. Breska kon­ungs­fjöl­skyldan greindi frá and­láti drottn­ingar síð­degis.

Elísabet Alex­andra Mary Windsor fædd­ist í Mayfair í Lundúnum 21. apríl 1926. Elísabet var elsta barn for­eldra sinna, Alberts her­toga, síðar Georgs sjötta, og Elísa­betar Bowes-Lyon. Yngri systir Elísa­betar hét Margrét Rose.

Aðeins einn þjóð­höfð­ingi var lengur við völd en hún í sög­unni, Loðvík 14. Frakk­lands­kon­ungur var fjög­urra ára þegar hann varð kon­ungur 1643. Hann ríkti í 72 ár.

Elísabet hefur dvalið í Balmoral-kast­ala í Skotlandi frá því í júlí. Hún sást síð­ast opin­ber­lega þegar hún skip­aði Liz Truss for­sæt­is­ráð­herra síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Sama dag hitti hún einnig Boris Johnson, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra. Elísabet skip­aði 15 for­sæt­is­ráð­herra í 70 ára valda­tíð sinni en þetta var í fyrsta sinn sem valda­skiptin fór fram ann­ars staðar en í Buckingham-höll.

Á mið­viku­dag frestaði hún fundi með ráð­gjöfum sínum sem áform­aður var í tengslum við rík­is­stjórn­ar­myndun Truss. Í morgun gaf kon­ungs­fjöl­skyldan út yfir­lýs­ingu þar sem greint var frá því að læknar fylgd­ust grannt með heilsu drottn­ingar þar sem þeir höfðu vax­andi áhyggjur af heilsu hennar. Það færi þó vel um hana.

Heilsu Elísa­betar hefur hrakað síð­ast­liðin miss­eri og glímdi hún við skerta hreyfi­getu síð­ustu mán­uði. Þá greind­ist hún með COVID-19 í febr­úar en ein­kennin voru væg, hún náði bata en tók tak­mark­aðan þátt í hátíð­ar­höldum í sumar í til­efni af 70 ára krýn­ing­araf­mæl­inu.

Fljót­lega eftir til­kynn­ingu frá kon­ungs­höll­unni um að læknar fylgd­ust með líðan drottn­ingar fóru að ber­ast fregnir af því að nán­asta fjöl­skylda hennar væri á leið­inni til Balmoral-kast­ala.

Balmoral-kast­ali í skosku hálönd­unum skip­aði stóran sess í lífi drottn­ing­ar­innar. Þar dvaldi hún í fjöl­skyldu­fr­íum sem ung stúlka þar sem hún og Margrét systir hennar léku sér saman. Filippus, eig­in­maður drottn­ingar til 73 ára, bað hennar í kast­al­anum. Filippus lést í apríl í fyrra, 99 ára að aldri.

Karl orðinn konungur

Börn Elísa­betar og Fil­ippusar eru fjögur. Karl, prins af Wales, er elstur og því rík­is­arfi krún­unnar. Karl er 73 ára en var krýndur prins­inn af Wales árið 1969. Enginn hefur beðið jafn lengi eftir bresku krún­unni og hann en Karl hefur verið stað­geng­ill móður sinnar í kon­ung­legum erinda­gjörðum síð­ustu mán­uði.

Karl er giftur Camillu, her­toga­ynj­unni af Cornwall Hann varð kon­ungur við frá­fall móður sinnar og fær tit­il­inn Karl III Eng­lands­kon­ungur. Camilla mun fá drottn­inga­ritil þegar Karl verður krýndur, en það var ósk Elísa­betar.

Anne er næstelst barna Elísa­betar og Fil­ippusar og einka­dóttir þeirra. Hún er gift Timothy Laurence og á tvö börn frá fyrra hjóna­bandi, Peter og Zara.

Andrew, her­tog­inn af Jórvík, er næstyngstur barna Elísa­betar. Hann á tvær dætur með fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, Söruh Ferguson, Beatrice prinsessu og Eugenie prinsessu. Andrew lét af öllum kon­ung­legum skyldum árið 2019 eftir að hann var sak­aður um kyn­ferð­is­brot og fyrir tengsl hans við barn­a­níð­ing­inn Jeffrey Epstein. Þá hefur hann afsalað sér öllum titlum sínum innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar og breska hers­ins.

Edward, jarl­inn af Wessex, er yngstur barna drottn­ingar. Hann er giftur Sophie, her­toga­ynj­unni af Wessex, og eiga þau tvö börn, Louise og James Mountbatten-Windsor.

Djúp sorg fyrir alla fjölskylduna

Breska hirðin hefur sent frá sér til­kynn­ingu í nafni Karls kon­ungs þar sem hann segir and­lát móður sinnar djúpa sorg fyrir sig og fjöl­skyld­una alla.

„Andlát ást­kærrar móður minnar, hennar hátignar drottn­ing­ar­innar, er stund mik­illar sorgar fyrir mig og alla fjöl­skyldu mína.Við syrgjum inni­lega frá­fall kærs þjóð­höfð­ingja og ást­kærrar móður.“ Hann segir að á þess­ari sorg­ar­stund og breyt­inga­skeiði finni hann og fjöl­skyldan fyrir huggun vit­andi að drottn­ingin naut mik­illar virð­ingar og vænt­um­þykju um heim allan.

Sam­úð­ar­kveðjum og minn­ing­ar­orðum hefur rignt yfir kon­ungs­fjöl­skyld­una á sam­fé­lags­miðlum, meðal ann­ars frá Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

englandsdrottning

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár