Erlend hlutabréf skiluðu miklu í kassann hjá Gildi en umtalsvert tap varð vegna Icelandair

Þorri tekna Gildis það sem af er ári kemur vegna erlendra fjár­fest­inga. Þar skipta gjald­miðla­á­hrif lyk­il­máli. Innlend hluta­bréf skil­uðu sjóðnum sam­an­lagt 1,3 millj­örðum króna í tekjur á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins.

Hagn­aður Gildis af hluta­bréfum í Marel var 3,4 millj­arður króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Hagar skil­uðu sjóðnum 1,9 millj­arði króna í hagnað og Síminn 1,8 millj­örðum króna. Ávöxtun á bréfum sjóðs­ins í Símanum var hlut­falls­lega sú mesta, eða 45,8 pró­sent.

Ekk­ert annað íslenskt hluta­fé­lag hefur skilað Gildi yfir millj­arði í hagnað á árinu, þótt Festi, með 800 millj­ónir króna, kom­ist nálægt því.

Annað árið í röð er mest tap vegna inn­lendrar hluta­bréfa­eignar Gildis vegna Icelandair. Frá byrjun árs og til loka októ­ber tap­aði sjóð­ur­inn 2,8 millj­örðum króna á þessu stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins. Ávöxtun Gildis í Icelandair var nei­kvæð um 81,5 pró­sent á árinu.

Þetta kom fram i kynn­ingu Davíðs Rúd­ólfs­sonar, for­stöðu­manns eigna­stýr­ingar Gild­is, á fundi sjóðs­fé­laga og full­trúa­ráðs líf­eyr­is­sjóðs­ins sem fram fór á mið­viku­dag. Auk Davíðs hélt Árni Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Gildis, kynn­ingu á stöðu sjóðs­ins á fund­inum.

Gildi var á meðal stærstu eig­enda Icelandair fyrir hluta­fjár­út­boð félags­ins fyrr á þessu ári með 7,24 pró­sent eign­ar­hlut. Í ágúst greindi Kjarninn frá því að nei­kvæð ávöxtun Gildis af fjár­fest­ing­unni í Icelandair á tæp­lega ára­tug væri 72,4 pró­sent. Til sam­an­burðar var raun­á­vöxtun af inn­lendu skráðu hluta­bréfa­safni sjóðs­ins í heild sinni um 110,8 pró­sent yfir sama tíma­bil. Gildi tók samt sem áður þátt í hluta­fjár­út­boð­inu og er í dag stærsti eig­andi félags­ins með 6,34 pró­sent eign­ar­hlut. Vert er að taka fram að hluta­bréf í Icelandair hafa hækkað nokkuð und­an­farna daga.

Hrein eign jókst um 62 milljarða

Í kynn­ingu Árna kom fram að hrein eign sam­trygg­inga­deildar Gildis hefði hækkað um 62 millj­arða króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins og hefði staðið í 727 millj­örðum króna um síð­ustu mán­aða­mót. Hrein raun­á­vöxtun var 7,5 pró­sent á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Sú við­bót sem til hefur fallið sam­anstendur að mestu af 62,8 millj­arða króna fjár­fest­inga­tekj­um og 25,9 millj­arða króna iðgjöldum sem greidd hafa verið inn í sjóð­inn á tíma­bil­inu. Á móti hefur Gildi grei­tt út 15,9 millj­arða króna í líf­eyri á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins auk þess sem rekstr­ar­kostn­aður nam 927 millj­ónum króna.

Stærstu eigna­flokkar Gildis eru hluta­bréf. Þannig voru 28,8 pró­sent af eignum sam­trygg­ing­ar­deildar sjóðs­ins í erlendum hluta­bréfum um síð­ustu mán­aða­mót en 18,1 pró­sent í inn­lend­um.

Þorri tekna Gildis það sem af er ári kemur vegna erlendra fjár­fest­inga. Erlend hluta­bréf haga skilað 31,8 millj­arði króna og erlendir skulda­bréfa­sjóðir 8,5 millj­örðum króna. Á sama tíma skil­uðu inn­lend hluta­bréf 1,3 millj­arði króna í tekjur og rík­is­tryggð skulda­bréf 9,1 millj­arði króna. Stór hluti af erlenda hagn­að­inum er til­kom­inn vegna gjald­miðla­á­hrifa sem rekja má til veik­ingar krón­unnar það sem af er ári. Af tekjum vegna erlendra hluta­bréfa voru til að mynda 93 pró­sent til­komin vegna gjald­miðla­á­hrifa.

Samdráttur í húsnæðislánum

Gildi er einn þeirra líf­eyr­is­sjóða sem hefur verið nokkuð umsvifa­mik­ill í hús­næð­is­lána­út­lánum til sjóðs­fé­laga á und­an­förnum árum. Á árinu 2015, þegar end­ur­koma líf­eyr­is­sjóð­anna inn á þann markað hófst af alvöru, lán­aði Gildi alls 2,2 millj­arða króna í ný sjóðs­fé­lags­lán. Árið 2018, þegar umsvif sjóðs­ins voru sem mest, lán­aði hann 22 millj­arða króna í slík lán. Þau tíföld­uð­ust því á þremur árum.

Umfangið dróst lít­il­lega saman í fyrra og var 20,6 millj­arðar króna. Að hluta til var það vegna þess að Gildi þrengdi lána­skil­yrði sín og greip til aðgerða til að draga úr eft­ir­spurn eftir lánum. Í ár hefur sú eft­ir­spurn síðan dreg­ist veru­lega saman. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2020 lán­aði Gildi 13,3 millj­arða króna og nokkuð ljóst að ársnið­ur­staðan verður tölu­verður sam­dráttur frá því í fyrra.

Ástæðuna er að uppi­stöðu að finna í lægri stýri­vöxtum sem hafa leitt til þess að við­skipta­bankar lands­ins bjóða nú upp á mun betri kjör á hús­næð­is­lánum en flestir líf­eyr­is­sjóðir, öfugt við það sem verið hefur und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár