Benedikt: Flokkurinn stofnaður til „að hverfa frá sveiflukenndum gjaldmiðli“

Benedikt Jóhann­es­son stígur til hliðar sem for­maður Við­reisnar, og fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, tekur við. Hún þakkar traustið, í til­kynn­ingu.

Benedikt Jóhann­es­son hefur tekið ákvörðun um að stíga til hliðar sem for­maður Við­reisnar. Hann til­kynnti þessa ákvörðun sína á fundi með þing­flokki og stjórn flokks­ins í dag. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­son, odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur við for­manns­stöð­unni og leiðir flokk­inn inn í kosn­ingar 28. októ­ber.

Mikils titr­ings hefur gætti í bak­landi Við­reisnar und­an­farna daga, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og óánægju gætti með fram­göngu Bene­dikts í við­tali við RÚV, þar sem meðal ann­ars var rætt um ástæður þess að það slitn­aði upp úr rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu með Sjálf­stæð­is­flokknum og Bjartri fram­tíð.

Benedikt baðst afsök­unar á ummælum í við­tal­inu, sem meðal ann­ars snéru að því að fólk myndi ekki eftir því hver hefði verið ástæða þess að rík­is­stjórnin féll.

Á fund­inum var sam­þykkt að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og odd­viti fram­boðs Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi tæki við hlut­verki hans. Sú ákvörðun var stað­fest af ráð­gjaf­ar­ráði flokks­ins á fundi sem lauk upp úr kl. 18.00 í dag.

Benedikt segir í til­kynn­ingu að Viðreisn hafi verið stofnuð til að breyta hlutum til batn­aðar, með almanna­hags­muni í for­grunni. „Viðreisn var stofnuð til þess að breyta íslenskum stjórn­málum. Við viljum breyta grund­vall­ar­kerfum, til dæmis í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi, og hverfa frá sveiflu­kenndum gjald­miðli og miklu hærri vöxtum en í nágranna­löndum okkar. Við teljum að íslenskir kjós­endur vilji hverfa frá stjórn­málum sem snú­ast um per­sónur og hugsa um mál­efni. Við viljum stöð­ug­leika en ekki stöðnun.

Þrátt fyrir að mál­efna­staða Við­reisnar sé sterk, úrvals fram­bjóð­endur í efstu sætum fram­boðs­list­anna og alþing­is­menn og ráð­herrar Við­reisnar hafi verið ötulir frá fyrsta degi er staða flokks­ins veik í skoð­ana­könn­unum. Sú staða er að mínu viti ekki eðli­leg þegar litið er til afar sterkrar mál­efna­stöðu okkar, lof­orða fyrir síð­ustu kosn­ingar og efnda þeirra lof­orða á ein­ungis átta mán­uðum í rík­is­stjórn. Viðreisn vinnur ötul­lega fyrir land og þjóð, fyrir almanna­hags­muni gegn sér­hags­munum. Ég hef unnið að und­ir­bún­ingi að stofnun flokks­ins og störfum hans sleitu­laust und­an­farin þrjú og hálft ár. Það er óásætt­an­legt að sjá að full­trúar frjáls­lyndis beri skarðan hlut frá borði og því tel ég rétt að skipta um for­mann í flokknum á þess­ari stundu. Þá ákvörðun tók ég einn og án þrýst­ings frá öðrum.

Mér þykir það skipta miklu meira máli að full­trúar þeirra hug­mynda frjáls­lyndis og fram­sækni sem Viðreisn hefur boðað sitji á Alþingi en að ég sé í for­mennsku. Með þvi að stíga til hliðar og hleypa öðrum að stjórn­vel­inum vil ég leggja mitt af mörkum til þess að Viðreisn nái að snúa vörn í sókn á síð­ustu metrum þessa kosn­inga­und­ir­bún­ings. Ég mun að sjálf­sögðu vinna áfram í mínu kjör­dæmi og berj­ast þar fram til síð­asta dags og ég óska Þorgerði Katrínu alls hins besta í þessu nýja verk­efni sem hún hefur skyndi­lega tekið að sér. Ég er sann­færður um að hún mun leiða Viðreisn og hennar glæstu hug­sjónir til góðrar nið­ur­stöðu í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum,“ segir Benedikt í til­kynn­ingu.

Þor­gerður Katrín segir þess ákvörðun „dæmi­gerða“ fyrir Benedikt. „Þessi ákvörðun Bene­dikts er dæmi­gerð fyrir það hvernig hann hefur alla tíð látið sér annt um vöxt Við­reisnar og við­gang. Án hans hefði þessi flokkur ekki orðið til og stofn­and­inn er trúr hug­sjónum sínum með því að stíga til hliðar við þessar aðstæður. Ég vil fyrir hönd alls Við­reisn­ar­fólks þakka Benedikt fyrir elju hans og dugnað í for­manns­stólnum.

Ég er þakk­lát fyrir það traust sem mér er sýnt og tek við þessum kyndli með mik­illi virð­ingu fyrir því starfi sem unnið hefur verið innan flokks­ins og ekki síður fyrir því Grettistaki sem við þurfum að lyfta fram að kosn­ingum. Við þurfum að ná augum og eyrum kjós­enda með bæði áherslur okkar og árangur. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að frjáls­lynd sjón­ar­mið og nauð­syn­legar kerf­is­breyt­ingar eigi sterka rödd á alþingi og í næstu rík­is­stjórn. Við þurfum að standa vörð um þau mál­efni jafn­réttis, efna­hags og vel­ferðar sem við höfum haft í for­grunni og eiga svo brýnt erindi í íslensku sam­fé­lagi,“ segir Þor­gerður Katrín í til­kynn­ingu frá Viðreisn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár