Kári tekur ofan fyrir Ölmu, Þórólfi og Víði í auðmýkt

For­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar hrósar þeim sem standa í eld­línu aðgerða gegn útbreiðslu kór­ónu­veirunnar hástert og segir þau „ekki bara flink­ust heldur líka flott­ust og eru að leggja mikið að mörkum til þess að bjarga manns­lífum“.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, hrós­ast Ölmu Möller land­lækni, Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varn­ar­lækni og Víði Reyn­is­syni, yfir­lög­reglu­þjóni hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, hástert í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Þar segir Kári að við­brögð­hér­lendra stjórn­valda við veiru­far­aldr­inum sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum hafi verið til fyr­ir­myndar og nákvæm­lega eftir bók­inni. „Alma og Þórólfur og Víðir hafa verið yfir­veguð og ekki látið hávaða ýta sér út í aðgerðir sem vinna gegn því mark­miði að hemja óværuna. Þau eru okkur til mik­ils sóma. Þau eru ekki bara flink­ust heldur líka flott­ust og eru að leggja mikið að mörkum til þess að bjarga manns­lífum.[...]Það eru for­rétt­indi að hafa við stjórn­völ­inn í okkar aðgerðum fólk sem segir satt, er ein­lægt og leggst ekki svo lágt að reyna að plata. Ég tek ofan fyrir þessu fólki í auð­mýkt.“

Kári gagn­rýnir hins vegar harð­lega aðgerðir Dana, sem hafa lokað landa­mærum sínum til að reyna að hemja útbreiðslu veirunnar, eftir að hún hefur samt sem áður breiðst víða út í land­inu. „Er hug­myndin að loka veiruna inni? Varla, vegna þess að hún grass­erar í öllum lönd­unum í kringum þá. Þeir eru ein­fald­lega að setja á svið leik­þátt sem á að sann­færa fólkið í land­inu um að þeir séu svo afger­andi og dug­legir. Þeir ætla meira að segja að nota dáta til þess að verja landið gegn veiru sem er þegar komin þangað. “

Íslensk erfða­grein­ing stendur sjálf í stór­ræðum vegna útbreiðslu veirunnar en fyr­ir­tækið bauðst til þess að skima almenn­ing eftir COVID-19 sjúk­dómnum.

[adspot]Þær skimanir hófust í gær og unnið er úr nið­ur­stöðum þeirra um nætur. Þús­undir Íslend­inga bók­uðu tíma í skimun eftir COVID-19 ­sjúk­dómnum hjá Íslenskri erfða­grein­ingu eftir að opnað var fyrir bók­anir á fimmtu­dags­kvöld og fljót­lega þurfti að bæta við tímum vegna mik­illar eft­ir­spurn­ar.

Skimanir hófust í Turn­in­um, Smára­torgi 3 í Kópa­vogi klukkan 10 í gær. Fólki sem á bók­aðan tíma er bent á að nota inn­gang á fyrstu hæð en þar verður fyrir starfs­maður sem tekur á móti þeim.

Í til­kynn­ingu frá Íslenskri erfða­grein­ingu sem send var út í gær sagði að nýja kór­óna­veiran sem veldur sjúk­dóm­inum COVID-19 dreif­ist nú hratt um heim­inn og hefur sett venju­bundið líf úr skorð­um. Mik­ill meiri­hlut­i þeirra sem smit­ast verði ekki alvar­lega veik­ir. Flestir sem komi í skimun hafi aldrei fundið fyrir ein­kennum og séu því lík­lega ekki smit­andi. Það sama eigi við alla starfs­menn í hús­inu, hvort sem þeir starfa við skimanir eða ekki. Það sé því ekki meiri hætta á ferðum í hús­inu en ann­ars staðar í borg­inni þar sem fólk kemur sam­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár