Ásakar Guðna Th. um árásir á Morgunblaðið

Guðni Th. Jóhannesson og Davíð Oddsson mælast með mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. Guðni er með um 60 prósent en Davíð um 20 prósent. Davíð er ritstjóri Morgunblaðsins en er í leyfi á meðan að á forsetaframboði hans stendur.
Guðni Th. Jóhann­es­son og Davíð Oddsson mæl­ast með mest fylgi sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum. Guðni er með um 60 pró­sent en Davíð um 20 pró­sent. Davíð er rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins en er í leyfi á meðan að á for­seta­fram­boði hans stendur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins ásakar for­seta­fram­bjóð­and­ann Guðna Th. Jóhann­es­son um að hafa veist með árásum að Morg­un­blað­inu á fyr­ir­lestri sem hann hélt um þorska­stríðin í gær. Slíkt sé eins­dæmi í for­seta­kosn­ingum á Íslandi. Í leið­ar­anum er einnig rakið hvernig það hafi gagn­ast Donald Trump, sem sæk­ist eftir því að verða for­seta­fram­bjóð­andi repúblik­ana í Banda­ríkj­unum, að ráð­ast að fjöl­miðlum.

Í fyr­ir­lestr­inum skýrði Guðni Th. Frá því að ummæli sem honum voru eignuð í frétt og skrifum í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins sem birt­ust í blað­inu á þriðju­dag um þorska­stríðin hefðu ann­ars vegar ekki verið hans og hins vegar slitin úr sam­hengi. Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins segir: „En það var ekki aðeins að hann færi að þrasa við Stak­steina um stað­reyndir sem fyrir liggja, hann kaus líka að ráð­ast á Morg­un­blaðið fyrir að hafa ekki fjallað um að fjöru­tíu ár eru liðin frá lokum þorska­stríð­anna. „Öðruvísi mér áður brá,“ sagði fram­bjóð­and­inn hneyksl­aður á því að um þetta hefði ekki verið fjallað.“

Leið­ara­höf­und­ur­inn, sem er ekki merktur fyrir skrif­unum líkt og venja er á Morg­un­blað­inu, segir þetta þó ekki vera meg­in­at­riðið heldur hitt að for­seta­fram­bjóð­andi telja sér sæm­andi að veit­ast með slíkum hætti að fjöl­miðli. „Ætlar hann að taka aðra fjöl­miðla sömu tökum og finna að því fram að kosn­ingum að þeir skuli ekki hafa fjallað um þessi tíma­mót eða önnur? Eða er það aðeins sá fjöl­mið­ill sem leyfir sér að gagn­rýna fram­bjóð­and­ann sem fær yfir sig gusurnar? Og verður sami háttur hafður á kom­ist Guðni alla leið á Bessa­staði? Fá þeir fjöl­miðlar sem þá munu hugs­an­lega leyfa sér að gagn­rýna for­set­ann eða for­seta­emb­ættið fá að kenna á reiði for­set­ans? Það getur orðið sér­kenni­leg staða, jafnt fyrir for­set­ann sem fjöl­miðl­ana.“

Í nið­ur­lagi leið­ar­ans er Háskóli Íslands síðan gagn­rýndur fyrir að blanda sér í kosn­inga­bar­áttu um for­seta­emb­ættið og sagt að það sé eins­dæmi. „Háskól­inn á að vera hlut­laus vett­vangur til kennslu og vís­inda­starfa en ekki vett­vangur fyrir útvalda fram­bjóð­endur að koma sér á fram­færi. Jafnvel þó að fram­bjóð­and­inn hefði haldið eigin kosn­inga­bar­áttu utan við fyr­ir­lest­ur­inn hefði þetta verið óvið­eig­andi. Þegar fyr­ir­lest­ur­inn er hins vegar not­aður - eða öllu heldur mis­not­aður - í þágu fram­boðs­ins, er aug­ljóst að mikil mis­tök hafa verið gerð.“

Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins eru Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen. Davíð er í leyfi frá störfum vegna for­seta­fram­boðs síns en sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist hann með næst mest fylgi þeirra sem eru í fram­boði, um 20 pró­sent. Fyrir ofan hann er Guðni Th. Jóhann­es­son sem mælist með um 60 pró­sent fylgi.

Byrjaði í Eyjunni

Guðni Th. var spurður út í ummæli sín á fyr­ir­lestri sem hann hélt á Bifröst árið 2013 í þætt­inum Eyjunni, sem stýrt er af Birni Inga Hrafns­syni, á sunnu­dag. Þau ummæli voru: „Er fávís lýð­ur­inn aftur að pródúsera rangar sam­eig­in­legar minn­ingar?"

Morg­un­blaðið fjall­aði svo um ummælin í frétt á þriðju­dag og í Stak­steinum, þar sem Guðni Th. hefur ítrekað orðið fyrir harðri gagn­rýni að und­an­förnu. Auk þess var birt sam­an­klippt mynd­band sem fylgdi frétt um málið á frétta­vef Morg­un­blaðs­ins, mbl.is, á mánu­dag.

Guðni Th. sagði í fyr­ir­lestr­inum í gær að ekki ætti að taka ummælin bók­staf­lega og að þau væru slitin úr sam­hengi. Auk þess væri um að ræða orð fyrr­ver­andi nem­anda hans um móður sína og að það hafi komið skýrt fram í fyr­ir­lestr­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár