Íslensk heimili henda samtals 7.152 tonnum af nýtanlegum mat á ári hverju

Samkvæmt rann­sókn Umhverf­is­stofn­unar er mikið um mat­ar­sóun hér á landi en ein­stak­lingur á Íslandi sóar að með­al­tali um 90 kg af mat árlega.

Íslensk heim­ili henda að með­al­tali um 20 kg af nýt­an­legum mat á ári, 25 kg af ónýt­an­legum mat­ar­af­göngum, 40 lítrum af drykkjum og 5 kg af mat­ar­olíu og fitu á hvern fjöl­skyldu­með­lim. Þetta kemur fram í ítar­legri rann­sókn Umhverf­is­stofn­unar á umfangi mat­ar­só­unar á Íslandi, þar sem 90 heim­ili og 80 fyr­ir­tæki tóku þátt.

Samkvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar má áætla að hver ein­stak­lingur sói að með­al­tali um 90 kg af mat árlega. Mat­ar­sóun íslenskra heim­ila er sam­kvæmt þessu sam­bæri­leg því sem þekk­ist í öðrum Evr­ópu­löndum, sam­kvæmt stofn­un­inni.

„Með öðrum orðum er áætlað að íslensk heim­ili hendi sam­tals 7.152 tonnum af nýt­an­legum mat á ári hverju, um 9.130 tonnum af ónýt­an­legum mat­ar­af­göngum, 14.670 tonnum af drykkjum og 1.840 tonnum af mat­ar­olíu og fitu. Sam­bæri­leg rann­sókn var fram­kvæmd af Umhverf­is­stofnun árið 2016 og fannst ekki töl­fræði­lega mark­tækur munur á sóun milli tíma­bil­anna tveggja,“ segir á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Þá bendi nið­ur­stöður fyr­ir­tækja­rann­sókn­ar­innar til að ríf­lega 22 kg af nýt­an­legum mat, 3,6 kg af ónýt­an­legum mat, 14,6 lítrum af drykkjum og 1,6 kg af olíu og fitu sé sóað á hvern íbúa árlega. Dræm þátt­taka fram­leiðslu­fyr­ir­tækja í rann­sókn­inni geri það þó að verkum að nið­ur­stöð­urnar end­ur­spegli ein­ungis neyslu­hlekk mat­væla­keðj­unnar, þ.e.a.s. heild- og smá­sölu, veit­inga­sölu og spít­ala og hjúkr­un­ar­heim­ili.

„Vest­ur­lönd veita mat­ar­sóun sífellt meiri athygli, ekki síst vegna umtals­verðrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Enn sem komið er liggja ekki fyrir staðl­aðar aðferðir við rann­sóknir á mat­ar­sóun, en eitt fram­lag rann­sókn­ar­skýrslu Umhverf­is­stofn­unar var að koma með til­lögur til Hagstofu Evr­ópu­sam­bands­ins að stöðl­uðum aðferðum við rann­sóknir á mat­ar­sóun,“ segir á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár