Skattakóngar eða -drottningar verða ekki opinberaðar af skattinum

Rík­is­skatt­stjóri mun ekki senda út upp­lýs­ingar til fjöl­miðla um þá 40 ein­stak­linga sem greiða hæstu skatt­ana, líkt og hann hefur gert árum saman. Ástæðan er ákvörðun Per­sónu­verndar í máli gegn Tekjur.is.

Rík­is­skatt­stjóri hefur ákveðið að senda fjöl­miðlum ekki upp­lýs­ingar um greið­endur hæstu skatta að lok­inni yfir­ferð á álagn­ingu vegna árs­ins 2018. Ástæðan er sú að birt­ingin er ekki talin sam­ræm­ast þeim ákvörð­unum sem gilda um per­sónu­vernd og frið­helgi einka­lífs­ins.

[links]Í frétt á vef emb­ætt­is­ins segir að þetta sé gert í fram­haldi af áliti Per­sónu­verndar í máli vegna vefs­ins Tekjur.is. Stjórn Per­sónu­verndar komst í lok nóv­em­ber að þeirri nið­ur­stöðu að óheim­ilt væri að halda úti staf­ræna gagna­grunn­inum Tekjur.is þar sem upp­lýs­ingar úr skatt­skrá eru gerðar aðgengi­legar. Rekstr­ar­fé­lag gagna­grunns­ins var gert að eyða gagna­grunn­inum og öðrum upp­lýs­ingum úr skatt­skrá sem félagið hafði undir höndum.

Vefurinn Tekjur.is opn­aði 12. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þar var hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um launa- og fjár­magnstekjur allra full­orð­inna Íslend­inga eins og þær birt­ust í skatt­skrá rík­is­skatt­stjóra 2017. Upp­lýs­ing­arnar sýndu því tekjur allra lands­manna á árinu 2016. Hægt var ein­fald­lega að fletta þeim ein­stak­lingi upp sem við­kom­andi hefur áhuga á að vita hvað var með í tekjur á árinu.

[adspot]Skatt­skrá lands­manna er opin­ber og aðgengi­leg á prenti í tvær vikur á hverju ári. Sú birt­ing er á grund­velli 98. gr. laga um tekju­skatt nr. 90/2003. Þar segir meðal ann­ars að skatt­skrá skuli liggja frammi á „hent­ugum stað“ í tvær vikur á ári. Síðar í sömu máls­grein seg­ir: „Heimil er opin­ber birt­ing á þeim upp­lýs­ingum um álagða skatta, sem fram koma í skatt­skrá, svo og útgáfa þeirra upp­lýs­inga í heild eða að hluta.“

Samkvæmt nið­ur­stöðu stjórnar Per­sónu­verndar mátti hins vegar ekki setja þær opin­beru upp­lýs­ingar fram með raf­rænum og aðgengi­legum hætti.

Álagningaskrárnar ekki birtar fyrr en í ágúst

Árum saman hefur emb­ætti rík­is­skatt­stjóra birt lista yfir þá 40 ein­stak­linga sem greiða hæsta skatta hér­lendis sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá. Á sama tíma eru þær skrár gerðar tíma­bundið aðgengi­legar og nokkrir íslenskir fjöl­miðlar ná í þær, búa til lista yfir tekjur ein­stak­linga eftir atvinnu­greinum og selja for­vitnum almenn­ingi sem byggja á skránum.

Þær upp­lýs­ingar, sem emb­ætti rík­is­skatt­stjóra velur að birta með þessum hætti, hafa þó ekki gefið ekki raunsanna mynd af tekjum Íslend­inga.

[adspot]Nú verður málum þannig háttað, líkt og áður sagði, að rík­is­skatt­stjóri mun ekki birta list­ann yfir þá 40 ein­stak­linga sem greiða hæstu skatt­ana. Álagn­ing­ar­skráin verður ekki lögð fram fyrr en dag­anna 19. ágúst til 2. sept­em­ber sem er mun seinna en hefur verið hingað til. Vanalega hefur verið hægt að nálg­ast þær upp­lýs­ingar í júní.

Álagningarskrár sýna ekki raunsanna mynd

Sumir sem greiða him­in­háa skatta hafa getað beðið þangað til eftir að álagn­ing­ar­skráin er birt og talið svo fram. Þannig hafa þeir sloppið við að lenda á útsendum lista rík­is­skatt­stjóra, og að nöfn þeirra birt­ist í flestum fjöl­miðlum lands­ins. Og í álagn­inga­skránum kemur bara fram hverjar heild­ar­greiðslur við­kom­andi vegna opin­berra gjalda voru. Þar er ekki hægt að sjá t.d. hversu mikið hver ein­stak­lingar þén­aði í launa­tekjur og hversu háar fjár­magnstekjur þeirra voru. Það skiptir umtals­verðu máli í ljósi þess að stað­greiðsla skatta af launa­tekjum er á bil­inu 36,94 til 46,24 pró­sent að útsvari með­töldu en fjár­magnstekju­skattur var 20 pró­sent þangað til um síð­ustu ára­mót þegar hann var hækk­aður upp í 22 pró­sent.

Ef ein­stak­lingur er með þorra tekna sinna í formi fjár­magnstekna þá borgar hann mun minna hlut­fall af tekjum sínum til rík­is­sjóðs en ef hann er með þær í formi launa­tekna.

Upp­lýs­ingar um það hvernig tekjur fólks skipt­ast, og tæm­andi upp­lýs­ingar um hverjir borga hvað í skatta, er hins vegar hægt að finna í áður­nefndri skatt­skrá. Þeirri sem mynd­aði gagna­grunn Tekjur.is sem stjórn Per­sónu­verndar úrskurð­aði að stæð­ist ekki lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár