Að breyta áföllum í list­ræna sigra „Þetta var ein­hvers­konar djúpsál­ar­leg tján­ing á hlut­verki þol­and­ans. Frá því ég kom út úr skápnum með ofbeldið, árið 2015, hef ég svo ekki gert neina Grim-mynd,“ segir Hall­grímur Helgason. Mynd: Golli

„Ég var að mála partíið innra með mér“

„Að losa mig við nauðgunar­byrðina endurnýjaði mig sem höfund og listamann,“ segir Hall­grímur Helgason, nú þegar hann fagnar listrænum sigrum – sem hefðu jafnvel ekki orðið svo magnaðir án áfalla fortíðar. Sköpun hans á sér engin takmörk, líkt og sjá má á yfirlits­sýningu á verkum hans og í lokabindi þríleiks hans. Hann ræðir eitt eitraðasta málið sem skekið hefur íslenskan bókmennta­heim; þegar hann steig fram sem þolandi nauðgunar og mætti háði voldugra penna – meðal annars hjá RÚV.

Segja má að Hall­grímur andi með samfélaginu. Sem rithöfundur, lista­maður og samfélags­rýnir. Þessi hlutverk renna saman í eina rödd; eins ríka af orðum og hún er litrík og kröftug.

„Það hefur verið mín helsta pólitíska skylda að vera á vaktinni gagnvart spillingu og misbeitingu valds,“ segir hann aðspurður um samfélags­rýnina sem lúrir einnig í bókum hans. „Ég er lélegri í launa­töflum, efnahags­málum og verkalýðs­baráttu; ekki vel læs á peningamál. En þegar kemur að réttlætis­málum og spillingar­málum er ég á heima­velli. Þá reyni ég að láta heyra í mér.“

Hvaðan kemur sú hvöt, að finna til pólitískrar skyldu?

„Ég fékk eitt sinn heiðurs­orðu frá Frökkum. Af því tilefni flutti franski sendi­herrann ræðu um leið og hann setti á mig orðuna og sagði að ég væri „écrivain engagé“ – en það er ákveðið hugtak sem Frakkar eiga yfir þá rithöfunda sem auk þess …

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Flott viðtal. Gleymi því aldrei hvað mér brá mikið við skrif Guðbergs. Þarna opinberaði hann svo mikla sjálfsfyrirlitningu og misnotaði vald sitt til að verja nauðganir. Guðbergur trónaði í efstu sætum íslenskra rithöfunda á mínum lista en ég hef æ síðan átt erfitt með að greina verk hans frá hans persónu eftir að hann opinberaði sig í þessari andstyggilegu grein.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár