Þessi færsla er meira en 10 ára gömul.

Sigmundur Davíð köttar krappið

Sigmundur Davíð köttar krappið

Þar sem ekki virðist öllu skipta hvert þeir leita sem vilja ná tali af forsætisráðherra, hvort eð er – hann hvorki er né verður við – hefur honum ókunnugur maður nú tekið að sér kynningarstörf Forsætisráðuneytisins í sjálfboðastarfi. Hér er þá mögulega fyrsta sjónvarpsviðtalið sem tekið er við ráðherra í viðtengingarhætti: svona er það ekki beinlínis, en svona væri það þá samt kannski.

Útvarpsviðtalið fór hins vegar raunverulega fram. Ráðherrann lét þessi orð út úr sér, öll og fleiri til, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni um daginn. Skandalar geta iðulega af sér forvitnilegar setningar.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni