Guðni Ágústsson líkir Pírötum við Ragnar Reykás

Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir Pírata oft minna „á okkar mesta stjórn­mála­mann, Ragnar Reykás. Þeir geta nefni­lega skipt um skoðun og skammað sjálfa sig fyrir vit­leys­una – sem er svo ein­lægt og ynd­is­legt“. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag. Fyrir þá sem ekki þekkja til Ragnars Reykás þá var hann per­sóna í þáttum Spaug­stof­unnar sem skipti ítrekað um skoðun á öllu milli him­ins og jarðar á auga­bragði.

Guðni segir Pírata, sem nú mæl­ast með 36 pró­sent fylgi, vera Veð­ur­stof­una í flokka­flór­unni og póli­tík­inni og að þeir séu „á furðu­flugi í vin­sældum“. „Þar safn­ast óánægðir kjós­endur saman til að gá til veð­urs í póli­tík­inni. En mikil mis­tök yrðu það hjá Píröt­unum að ætla að fara að hnoða saman stefnu í öllum stórum málum, þar með yrðu þeir venju­legur „hall­æris­legur,“ stjórn­mála­flokkur. Þá fara þeir að berj­ast inn­byrðis og takast á um punkta og kommur. Það sem flestum finnst lang­snjall­ast hjá þeim er að vera eins og Veð­ur­stofan eða mað­ur­inn á göt­unni, tala bara um veðrið og atburði líð­andi stundar eins og Jón og Gunna gera upp á hvern ein­asta dag. Pírat­arnir eiga orðið fylgi þriðja hvers manns í land­inu sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum án þess að nokkur viti hverjir þeir eru eða hvert þeir eru að fara, galopnir í báða enda í hverju máli. Og oft minna þeir mann á okkar mesta stjórn­mála­mann, Ragnar Reykás. Þeir geta nefni­lega á einu auga­bragði skipt um skoðun og skammað sjálfa sig fyrir vit­leys­una - sem er svo ein­lægt og ynd­is­legt.“

Segir Framsókn og Sjálfstæðisflokk þá einu með grasrót og bakland


Að mati Guðna væri alls ekki víst að Björt fram­tíð væri nú að deyja drottni sínum ef flokk­ur­inn, sem hann kallar Litlu-Sam­fylk­ingin­una, hefði sleppt því að taka upp stefnu „sem þeir reyndar ljós­rit­uðu úr stefnu­skrá Stóru-Sam­fylk­ing­ar­innar“.

Guðni gerir mikið úr því að stefna sé í dag orðið til bölv­unar í póli­tík. „Hugsið ykkur, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa setið í fast að eitt hund­rað árum með ein­hverju „þver­móðsku“-fólki að ríf­ast um auka­at­riði í póli­tík, ein­hverja stefnu­skrá og svo er rif­ist um hvert smá­at­riði, að vísu eru þetta einu flokk­arnir sem eiga sér gras­rót og bak­land.“

Hann snýr sér síðan aftur að Pírötum og segir þá nú vilja að næsta kjör­tíma­bil verði notað til að semja sig inn í Evr­ópu­sam­bandið. Þar er Guðni að vísa í þá sam­þykkt aðal­fundar Pírata að þjóðin fái að kjósa um Evr­ópu­sam­bands­við­ræður á næsta kjör­tíma­bili. „Sann­ar­lega taldi ég víst að Pírat­arnir vildu áfram vera flokkur sem ætti sér enga stefnu og væru svona eins og anda­trúin, frjálsir og dul­ar­fullir eða eins og segir í hinni helgu bók, „svar þitt skal vera já, já og nei, nei,“ þótt þeir seg­ist að vísu vera trú­lausir. Pírat­arnir segja svo hik­laust að það sé skemmti­legra að vera í tjör­unni en á Alþingi, svona tal nær eyrum almenn­ings og þykir flott. Og þegar flokks­hest­arnir í hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum með þvælda stefnu­skrá fara í fýlu er svo auð­velt í gleði sinni eða reiði að segj­ast vera Pírati og ætla að kjósa þá. Því vilja margir bara hafa Píratana eins og þeir eru. Nú hefur eng­inn horn í síðu þeirra og þeir reka svona hvíld­ar­heim­ili fyrir þá sem eru á milli vita í póli­tík­inni. Í dag eru þeir öðru­vísi flokkur, stefnu­lausir mæl­ast hátt, hvað svo?“

Píratar mæld­ust með 36 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Gallup sem gerð var í ágúst. Flokkur Guðna, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, mælist með ell­efu pró­sent fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem situr í rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og er hinn flokk­ur­inn sem á sér gras­rót og bak­land að mati Guðna, mælist með 22 pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár