Neyslugleði ferðamanna aftur í eðlilegt horf

Hver ferða­maður sem kom til Íslands á tímum far­ald­urs­ins eyddi mun meiri fjár­munum hér­lendis en á árunum áður, sam­kvæmt tölum um erlenda korta­veltu. Á síð­ustu mán­uðum hefur neysla þeirra kom­ist aftur í svipað horf og fyrir far­sótt­ina.

Neysla hvers ferða­manns á Íslandi hefur dreg­ist tölu­vert saman á síð­ustu mán­uðum og er hún nú með svip­uðu móti og hún var áður en heims­far­ald­ur­inn byrj­aði. Þetta kemur fram þegar mán­að­ar­legar tölur Seðla­bank­ans um erlenda korta­veltu eru bornar saman við tölur Ferða­mála­stofu um fjölda ferða­manna síð­ustu þrjú árin.

Bandaríkjamenn og Bretar neysluglaðir

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um jókst neysla hvers ferða­manns tölu­vert eftir að far­ald­ur­inn hófst. Þetta sást vel þegar erlend korta­velta hér­lendis jókst hraðar en ferða­mönnum fjölg­aði í fyrra­vor, en þá voru ferða­menn­irnir fyrst og fremst frá Banda­ríkj­unum og Bret­landi.

Fjár­mála­ráðu­neytið benti á þessa auknu neyslu­gleði ferða­mann­anna í fyrra, en í grein­ingu sinni sagði hún það ekki enn vera ljóst hvort neysla þeirra skýrð­ist af lengri dvöl þeirra eða breyt­ingu í sam­setn­ingu hóps komu­far­þega. Þó spáði ráðu­neytið því að með­al­neysla á hvern ferða­mann yrði nokkuð meiri ef hlut­fall Banda­ríkja­manna og Breta af komu­far­þegum héld­ist hátt.

Líkt og sjá má á mynd­inni hér að ofan hefur þó nokkuð dregið úr neyslu­gleði ferða­manna, ef hún er mæld sem erlend korta­velta á hvern komu­far­þega. Samkvæmt því eyddi með­al­ferða­mað­ur­inn á Íslandi 111 þús­undum króna í gegnum kortið sitt hér á landi í síð­asta mán­uði, en það er svipuð með­al­velta og var á meðal ferða­manna í jan­úar 2019 og 2020.

Til sam­an­burðar eyddi hver ferða­maður að með­al­tali um 330 þús­und krónum í jan­úar í fyrra. Á milli maí og sept­em­ber árin 2020 og 2021 nam korta­neysla hvers ferða­manns hins vegar að með­al­tali um 200 þús­undum króna.

Samhliða minni neyslu hvers ferða­manns hefur hlut­deild Banda­ríkja­manna og Breta af komu­far­þegum einnig lækkað, en þeir hafa verið tæp­lega 40 pró­sent af öllum komu­far­þegum hingað til lands í vetur. Til sam­an­burðar voru þeir meira en helm­ingur allra komu­far­þega í fyrra­sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár