Reykjavíkurmaraþoninu frestað til 18. september

Fjöl­menn­asta götu­hlaupi á Íslandi hefur verið frestað til 18. sept­em­ber í ljósi óvissu um hvort hægt verði að halda við­burð­inn þann 21. ágúst, eins og stefnt var að.

Maraþonhlaupið hefur verið fært til 18. september.
Mara­þon­hlaupið hefur verið fært til 18. sept­em­ber. Mynd: Íslandsbanki

Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka um tæpan mánuð. Hlaupið er nú á dag­skrá þann 18. sept­em­ber, en ekki 21. ágúst eins og stefnt var að.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Íþrótta­banda­lagi Reykja­víkur, sem heldur utan um fram­kvæmd hlaups­ins, í dag.

Þar segir að óvissa um næstu skref sem tekin verða varð­andi sam­komu­tak­mark­anir geri það að verkum að skipu­leggj­endur sjái sér ekki fært að halda hlaupið á til­settum tíma.

Núver­andi fjölda­tak­mark­anir á sam­komum, sem þýða að óheim­ilt er að fleiri en 200 manns komi saman, eru í gildi til 13. ágúst. Óljóst er hvað tekur þá við.

Í til­kynn­ing­unni frá Íþrótta­banda­lagi Reykja­víkur segir að mark­mið skipu­leggj­enda sé að gera sem flestum kleift að taka þátt í hlaup­inu er það fari fram, en um leið að gæta að öllum sótt­vörnum.

Reykja­vík­ur­mara­þonið hefur um ára­bil markað upp­haf Menn­ing­ar­nætur í Reykja­vík, en eins og fram hefur komið í dag tók neyð­ar­stjórn borg­ar­innar ákvörðun í morgun um að öllum við­burðum þeirrar hátíðar yrði aflýst, annað árið í röð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár