Vilja dæla útblæstri frá iðnaði í Evrópu í berglögin við Straumsvík

Til stendur að flytja koltví­oxíð frá meg­in­landi Evrópu til Íslands og dæla því niður í jörð­ina og breyta í stein. Flutn­inga­skipin yrðu knúin jarð­efna­elds­neyti fyrst í stað.

Fyrirhugað framkvæmdasvæði. Séð úr suðvestri. Við sjóndeildarhringinn má sjá álverið við Straumsvík.
Fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði. Séð úr suð­vestri. Við sjón­deild­ar­hring­inn má sjá álverið við Straums­vík. Mynd: EFLA

Carbfix ohf. und­ir­býr fram­kvæmdir við Coda Terminal, mót­töku- og geymslu­stöð fyrir koltví­sýr­ing (CO2) í Straums­vík. Stöðin verður fyrsta sinnar teg­undar á heims­vísu en þar verður svo­kall­aðri Carbfix-tækni beitt, sem felst í því að CO2 er leyst í vatni og því dælt djúpt niður í berg­lögin. Þar hvarfast það við berg, eins og basalt, og verður að stein­dum.

Fyrsta skref í umhverf­is­mati fram­kvæmd­ar­innar hefur nú verið tekið með fram­lagn­ingu mats­á­ætl­unar til Skipu­lags­stofn­unar.

Svona er starf­semin hugsuð í stuttu máli: CO2 yrði fangað úr útblæstri frá iðn­aði í Evrópu og flutt í gas­formi með skipum til Straums­víkur þar sem því yrði dælt í geymslut­anka við hafn­ar­bakk­ann. Þaðan yrði því veitt um lagnir að nið­ur­dæl­ing­ar­holum handan Reykja­nes­brautar þar sem því yrði dælt niður í berg­lögin. Auk þess væri hægt að nýta inn­viði Coda Terminal til að dæla niður CO2 sem er fangað frá inn­lendri stór­iðju­starf­semi og beint úr and­rúms­lofti með loftsugum.

Til­raunir og þróun á Carbfix-tækn­inni hafa staðið yfir frá árinu 2007 og frá 2014 hefur tæknin verið hluti af hefð­bundnum rekstri Hell­is­heið­ar­virkj­unar og minnkað útblástur CO2 frá henni um þriðj­ung.

Coda Terminal hf. sem er félag í eigu Carbfix ohf. Carbfix varð til sem sam­starfs­verk­efni milli Orku­veitu Reykja­víkur, Háskóla Íslands, CNRS í Touluse og Earth Institute við Columbia-háskóla árið 2006. Í árs­byrjun 2020 varð Carbfix að sjálf­stæðu dótt­ur­fyr­ir­tæki Orku­veitu Reykja­víkur.

Í mats­á­ætl­un­inni kemur fram að í Straums­vík séu kjörað­stæður fyrir starf­semi á borð við Coda Terminal. Hafn­ar­mann­virki og dreifi­kerfi raf­orku eru til staðar auk þess sem öfl­ugir grunn­vatns­straumar og ferskt basalt­berg í nágrenni Straums­víkur henta að sögn fram­kvæmda­að­ila einkar vel fyrir Carbfix-tækn­ina.

Rekstur Coda Terminal yrði byggður upp í áföngum. Gert er ráð fyrir að stöðin hafi náð fullum afköstum árið 2031 og að þau afköst sam­svari var­an­legri bind­ingu á allt að þremur millj­ónum tonna af CO2 á ári. Til að setja það í sam­hengi þá yrði bundið við full afköst álíka mikið og sam­svarar losun frá allri bíla­um­ferð á Íslandi á ríf­lega þremur árum.

Fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði Coda Terminal er í jaðri Hafn­ar­fjarðar, í nálægð við Straums­vík. Álver Rio Tinto er í Straums­vík og er þar með hafn­ar­að­stöðu. Sunnan álvers­ins liggur Reykja­nes­braut og sunnan hennar er athafna- og iðn­að­ar­svæði Hafn­ar­fjarðar í Kapellu­hrauni og Hellna­hrauni. Austan álvers­ins eru íbúða­hverfi Hafn­ar­fjarðar, á Hval­eyr­ar­holt­inu og Völlunum. Þar er einnig golf­völlur Keilis, Hval­eyr­ar­völlur.

Innviðir sem byggja þarf upp fyrir starf­sem­ina eru geymslut­ankar í nágrenni hafn­ar­bakka, lagnir, bor­teigar og nið­ur­dæl­ing­ar­holur. Nið­ur­dæl­ing­ar­holur verða nokkrar saman á hverjum bor­teig og verður var­an­legt skýli yfir hverri bor­holu. Þá er þjón­ustu­vegur að hverjum bor­teig og lagnir.

Á svæð­inu er að auki fyr­ir­huguð bygg­ing sem mun hýsa skrif­stofur auk sýn­ingar- og fræðslu­rýmis.

Reykja­nes er sem kunn­ugt er á virku eld­gosa- og jarð­skjálfta­svæði. Skjálfta­virkni á svæð­inu í kringum Straums­vík hefur í gegnum tíð­ina verið lítil.

Niðurdæling getur valdið jarðskjálftum

Mögulegt er að nið­ur­dæl­ing á CO2 geti valdið spennu í jarð­skorp­unni á geymslu­svæð­inu sem leitt geti til smárra jarð­skjálfta þegar þessi spenna losnar, eða flýtt fyrir jarð­skjálftum sem óhjá­kvæmi­lega myndu eiga sér stað síðar.

Vegna nið­ur­dæl­ingar á Hell­is­heiði mæld­ist aukin skjálfta­virkni og voru stærstu skjálftar um 4,0 að stærð. Í Straums­vík er hins vegar stefnt á mun grynnri nið­ur­dæl­ingu en á öðrum geymslu­svæðum Carbfix á Hell­is­heiði. Gert er ráð fyrir að dælt verði niður í 300-700 metra djúpar holur, en nið­ur­dæl­ing­ar­holur á Hell­is­heiði eru allt að 2.500 m djúpar.

For­könnun á skjálfta­hættu vegna nið­ur­dæl­ing­ar­innar bendir til að hætta á finn­an­legri skjálfta­virkni á svæð­inu sé óveru­leg, segir í mats­á­ætl­un­inni.

En hvaðan kemur nafnið Coda Terminal?

Nafnið Coda er dregið af lat­neska orð­inu „cauda“ sem þýðir rófa. Í tón­list er Coda notað yfir nið­ur­lagskafla tón­verks, aðskil­inn aðal­verk­inu til að ljúka því á skýran og áhrifa­ríkan hátt. Það end­ur­speglar vel mark­mið Coda Terminal.

Und­ir­bún­ingur fram­kvæmd­ar­innar hófst um mitt ár 2022 með for­hönnun, sam­tali við hags­muna­að­ila, vinnu við leyf­is­ferla og skipu­lags­vinnu. Stefnt er að rann­sókn­ar­bor­unum síðar á þessu ári, en áætlað er að hefja rekstur árið 2026. Gert er ráð fyrir að Coda Terminal verði full­byggð árið 2031.

Skipulag framkvæmdarinnar

Gert er ráð fyrir að innan hvers bor­teigs geti verið allt að 8 nið­ur­dæl­ing­ar­holur og að bor­teigar geti verið stað­settir með um 250 metra milli­bili. Gaslögn með koltví­sýr­ingi er leidd niður í fóðr­aða nið­ur­dæl­ing­ar­holu auk þess sem vatni er jafn­framt dælt niður í hol­una. Í ungu og fersku bergi líkt og á hinu fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði, eru hol­rými opin og sprungur ófylltar.

Miðað er við að CO2 leys­ist upp í vatn­inu á allt að 250 metra dýpi og að upp­leyst CO2 í vatni fari út úr fóðr­ingu á um 300-700 m dýpi, neðan efstu grunn­vatns­laga en ofan háhita­kerf­is­ins. Fyr­ir­huguð orku­þörf nið­ur­dæl­ing­ar­innar er 23 kílóvatt­stundir (kWh) á hvert tonn af koltví­sýr­ingi. Fyr­ir­huguð vatns­notkun fram­kvæmd­ar­innar er allt að 2.500 L/s. Fyrir hvert tonn af CO2 sem dælt er niður þarf um 25 tonn af vatni.

Knúin jarðefnaeldsneyti

Í mats­á­ætl­un­inni kemur fram að sér­út­búin skip yrðu notuð við flutn­ing á koltví­sýr­ingi frá iðn­aði í Evrópu og stefnt er að því að þau verði knúin „grænu elds­neyti“, eins og að er orðað, sé þess kostur. Slík skip eru hins vegar ekki til en hönnun þeirra stendur yfir. Því yrðu flutn­inga­skipin fyrst um sinn knúin jarð­efna­elds­neyti.

Upp­bygg­ing Coda Terminal myndi verða í þremur áföngum. Í þeim fyrsta er áætlað að dæla niður allt að 500 þús­und tonnum af CO2 árlega. Í 2. áfanga yrði nið­ur­dæl­ingin aukin í alls 1 milljón tonn árlega og í þeim þriðja yrði nið­ur­dæl­ingin aukin í alls 3 millj­ónir tonn á ári.

Stækkun hafnarinnar áformuð

Aðal­skipu­lag Hafn­ar­fjarðar gerir ráð fyrir stækkun hafn­ar­mann­virkja í Straums­vík. Hafn­ar­fjarð­ar­höfn í sam­starfi við Vega­gerð­ina vinnur sem stendur að stækkun hafn­ar­innar og kæmi sú stækkun til með að nýt­ast þeim flutn­inga­skipum sem flytja munu CO2 hingað til lands til nið­ur­dæl­ingar.

Fram­kvæmda­svæðið er ýmist í eigu Rio Tinto, land­eig­anda­fé­lags Ótt­ars­staða­lands eða Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar og í mats­á­ætlun kemur fram að allir aðilar séu upp­lýstir og sam­þykkir því að land þeirra sé tekið fyrir í umhverf­is­mati.

Aðflutt CO2

Áform um nið­ur­dæl­ingu CO2 og var­an­leg bind­ing þess í bergi styður við aðgerð­ar­á­ætlun íslenska rík­is­ins í lofts­lags­málum. „Með Coda Terminal verða til inn­viðir til nið­ur­dæl­ingar aðflutts CO2 frá Evrópu,“ segir í mats­á­ætl­un­inni. „Þessir inn­viðir gætu nýst inn­lendum stór­iðju­fyr­ir­tækjum þegar föngun á CO2 hefst.“

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda heldur áfram að aukast á heims­vísu. Miðað við núver­andi stefnur og aðgerðir ríkja er búist við 2,0 -3,6°C hnatt­rænni hlýnun fyrir árið 2100, segir enn­fremur í mats­á­ætl­un­inni. „Standi ríki þar að auki við öll lof­orð og mark­mið þá er samt búist við 1,7-2,6°C hnatt­rænni hlýnun.“

Umfang hlýn­unar er í beinu hlut­falli við upp­safn­aða losun koltví­sýr­ings. „Samfara hlýnun verða aftaka­at­burðir í veðri algeng­ari, s.s. meiri öfgar í hita­bylgjum, þurrkum og ofsa­rign­ingum,“ segir í skýrslu Carbfix. Samkvæmt nýj­ustu skýrslu Milli­ríkja­nefndar um lofts­lags­mál er „óhjá­kvæmi­legt að fjar­lægja CO2 úr loft­hjúpnum til að ná kolefn­is­hlut­leysi“.

Þá segir: „Umfang föng­unar og bind­ingar CO2 á heims­vísu er mun minna en það þyrfti að vera til að stöðva hnatt­ræna hlýnun við 1,5°C eða 2,0°C sam­kvæmt sviðs­myndum IPCC. Coda Terminal verður stöð fyrir var­an­lega förgun CO2 sem kemur þannig í veg fyrir losun CO2 til and­rúms­lofts.“

Carbfix segir að á Íslandi séu kjörað­stæður fyrir var­an­lega bind­ingu CO2 í bergi. Áætlað er að hægt sé að geyma um 400 gígatonn af CO2 á sprungu­svæðum á Íslandi. Þegar tekið sé til­lit til ákveð­inna skil­yrða svo sem fjar­lægðar frá íbúa­byggð, vatns­vernd­ar­svæða og ann­arra vernd­ar­svæða væri hægt að nýta um 2 pró­sent af flat­ar­máli Íslands til nið­ur­dæl­ingar á CO2. Fyr­ir­hugað geymslu­svæði Coda Terminal við Straums­vík er innan þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár