Ísland er eins og illa uppalið barn

Andri Snær Magnason gefur kost á sér í emb­ætti for­seta Íslands. Kjarninn ræddi við Andra Snæ um fram­boðið og stefnu­málin.

Andri Snær telur að forsetinn geti ekki verið hlutlaus gagnvart grundvallaratriðum. Nútímaforseti geti verið hraðall fyrir hugmyndir og hreyfingar í samfélaginu.
Andri Snær telur að for­set­inn geti ekki verið hlut­laus gagn­vart grund­vall­ar­at­riðum. Nútíma­for­seti geti verið hrað­all fyrir hug­myndir og hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu.

Andri Snær Magna­son er einn af vin­sæl­ustu rit­höf­undum lands­ins og hefur skrifað fjölda verka. Hann er ötull tals­maður umhverf­is­mála og hefur látið sterkt að sér kveða á þeim vett­vangi, bæði inn­an­lands og utan. Nú síð­ast hefur hann í sam­starfi við Björk Guð­munds­dóttur tón­list­ar­konu vakið athygli á stofnun hálend­is­þjóð­garðs á Íslandi.

Andri Snær seg­ist hafa skýra fram­tíð­ar­sýn um hvernig Ísland eigi að verða og ekki verða ­og nauð­syn­legt sé að end­ur­reisa orð­spor lands­ins. Hann segir verð­mæti lands­ins vera að falla hratt í verði og nauð­syn­legt sé að snúa þeirri þróun við.

„Ég er búinn að vera lengi úti á hug­mynda­akrinum og hef alltaf haft áhuga á því hvernig við skýrum heim­inn og skil­greinum okkur,” segir Andri Snær. „Svo var mikið af góðu fólki sem var til­búið að fara í þetta verk­efni með mér og það varð vendi­punkt­ur­inn í sög­unni minni.“

Allar náttúruperlur landsins í hættu

Andri Snær hefur farið víða til að kynna nátt­úru Íslands og mál­efni tengd henni. Hann hefur gagn­rýnt það sem hann kallar stór­iðju­stefnu íslenskra stjórn­valda sem hann segir hafa byrjað fyrir alvöru í maí árið 1997, síðan þá hafi margar helstu nátt­úruperlur lands­ins verið í hættu.

„Það eru engir öfgar að segja það. Ég hafði miklar áhyggjur af svæðum sem ég taldi bein­línis heilög og fannst frá­leitt að ein­hver skyldi vilja raska þeim gjör­sam­lega. Þetta varð eld­skírn fyrir mig til að skilja sam­fé­lagið, póli­tík­ina og efna­hags­lífið sem leiddi síðan til þess að maður skoð­aði heim­inn á annan hátt. Við sjáum hvernig hefur farið á Mývatni. Við getum ekki haldið svona áfram,“ segir hann.

„Þó að við verndum náttúruna þurfum við að skapa atvinnutækifæri. Og þannig tengdist ég nýsköpunargeiranum. Það var ekki nóg að vera á móti einhverju, við urðum að taka hagfræðina inn í myndina, til að skilja hvernig samfélög geta þróast ef hvatinn er fyrir hendi.“

Tilgangslaust að vera hlutlaus

Andri Snær telur að forsetinn geti ekki verið hlutlaus gagnvart grundvallaratriðum. Þá sér hann ekki tilganginn með embættinu. Nútímaforseti getur verið hraðall fyrir hugmyndir og hreyfingar í samfélaginu.

„Þetta er eitt af því sem mér hefur þótt áhugavert að taka þátt í eða fylgjast með. Og nú er þessi ögurstund, þar sem hálendið og víðerni þess er nokkurn veginn heildstætt og við höfum tækifæri til þess að ákveða hvort við viljum hafa það þannig áfram. Við erum á spennandi stað í stjórnarskrármálinu og tungumálið þarf að hafa málsvara á hærri stöðum. Ef ólæsi skólapilta þróast í sömu átt mun það koma illa niður á öllu atvinnulífi, menningarlífi og velferð landsins.“

Brattar brekkur

Andri Snær telur að sam­ein­ing­ar­tákn þjóð­ar­innar hljóti að vera sam­eig­in­leg mark­mið og gildi og mik­il­vægar ákvarð­arnir sem við verðum að leysa í sam­ein­ingu.

„Það er óvenju­legt að standa á svona tíma­mótum.“ Þessir þættir eru í deigl­unni núna, tungu­málið, landið sjálft og sjálft lýð­ræðið, hvort við viljum gefa fólki meiri völd með beinni þát­töku og kosn­ingum um mik­il­væg mál. Í raun­inni er þetta bara mik­ill áhugi á fram­tíð­inni. En brekk­urnar sem ég þarf að klífa eru brattar. Það eru margir sem tóku nærri sér að ég skyldi mót­mæla stór­iðju­stefn­unni. Þeir halda að með því að vera á móti henni þá sé ég mót­fall­inn lands­byggð­inni. En því fer fjarri.“

„Í rauninni er þetta bara mikill áhugi á framtíðinni. En brekkurnar sem ég þarf að klífa eru brattar,“ segir Andri Snær.
„Í raun­inni er þetta bara mik­ill áhugi á fram­tíð­inni. En brekk­urnar sem ég þarf að klífa eru brattar,“ segir Andri Snær.

Gamaldags lífstílsbreyting

Eitt er að vera með skýra sýn varð­andi fram­tíð Íslands, verndun nátt­úr­unnar og átak í lestri. Annað er að flytja til Bessa­staða með fjöl­skyldu sína, fá tit­il­inn „herra“ og verða for­seti Íslands. Langar Andra Snæ að verða for­seti? Hann hugsar sig um.

„Að sumu leyti hug­myndin um að taka full­trúa okkar og setja á stall dálítið gam­al­dags. Mér finnst í raun að for­seti eigi ekki að gera meiri lífstíls­breyt­ingu á sér og sínum heldur en for­sæt­is­ráð­herra eða borg­ar­stjóri. Við megum ekki fjar­lægja mann­eskj­una sem er kjörin frá fólk­inu, hún á að vera hluti af sam­fé­lag­inu og í tengslum við það. Einhvers konar upp­hafn­ing er ekki það sem ég sæk­ist eftir. En á hinn bóg­inn er ákveðin festa í gömlum hefðum og virð­ingu fyrir emb­ætt­inu og við eigum að taka vel á móti fólki sem þjóð. Ég hef oft verið í því hlut­verki að vera full­trúi lands­ins og tala fyrir hönd þess. Fólk segir stundum: „Svo ertu bara að tala við ein­hverja Rótarý­klúbba á Hólmavík,“ en það er ekki nýtt fyrir mér heldur eitt­hvað sem ég búinn að gera í fimmtán ár og hef gaman af,” segir Andri Snær og bætir við að hann hafi ánægju af því að hitta fólk. „Ég treysti mér alveg að vera til sóma þar. Ég er dag­far­sprúður og get sagt sögur og treysti mér alveg í það. Ég hef ferð­ast um allan heim, þekki fólk í ólíkum geirum og hef átt sam­skipti við mörg þús­und manns síð­asta ára­tug­inn.“

Mér finnst í raun að for­seti eigi ekki að gera meiri lífstíls­breyt­ingu á sér og sínum heldur en for­sæt­is­ráð­herra eða borg­ar­stjóri.

Hefur hugsað til þingsins

Andri Snær hefur stundum velt því fyrir sér að fara í sveit­ar­stjórn­arpóli­tík­ina eða inn á Alþingi. Hann hefur setið í mörgum stjórnum og ráðum í gegnum tíð­ina og líkað vel. Að vera í stjórn félags eða sam­taka er ekki ólíkt stjórn­mála­þát­töku að hans mati, nema hvað þar eru menn ekki með skil­greinda hópa sem skipit­ast í meiri­hluta og minni­hluta. Kannski er hið áhuga­verða í hlut­verki for­set­ans líka þar, hann á ekki skil­greinda and­stæð­inga eins og aðrir kjörnir full­trúar.

En Andri Snær neitar því að upp­lifa átök sem erfið og seg­ist ganga vel að vinna með fólki með ólíkar skoð­anir.

„Kannski er það bara feimni við stjórn­málin. Það hefur verið nei­kvæður stimp­ill á þeim og maður hefur ekki viljað merkja sig ein­hverri stefnu og viljað vera frjáls. Þó að ég sé búin að taka afstöðu í mál­efnum, hef ég ekki merkt mig flokki og hef ekki fylgt flokkslínum. Þannig að mér hefur alveg dottið í hug að taka þátt en ég hef ekki viljað binda mig við flokka og talið kröftum mínum best varið utan kerfis með mína sjálf­stæðu rödd eða sem hluti af óháðum hópi. En núna fannst mér tíma­bært að taka ábyrgð á þeim og færa þær í stærra sam­hengi. Þess vegna tók ég þetta stökk.“

Óttinn við framboðið, tapið og sigurinn

Það eru mál­efnin sem draga Andra Snæ áfram, en ekki það að vakna á Bessa­stöðum á morgn­ana þótt honum finn­ist fugla­lífið vissu­lega aðlað­andi. Hann hafði velt fram­boð­inu lengi fyrir sér og fór í gegn um allan til­finn­inga­skal­ann á meðan á því stóð.

„Það sem hræddi mig mest fyrst var ein­fald­lega að fara í fram­boð og vera í fram­boði. Svo var það ótt­inn við að tapa, svo kom ótt­inn við að sigra,“ segir hann. „En ég er miklu rólegri núna. Sjálfur leik­ur­inn, umræðan og að vera inni á vell­inum er áhuga­verð­ari en ég bjóst við. Ég mæli með þessu.“

„Sjálfur leikurinn, umræðan og að vera inni á vellinum er áhugaverðari en ég bjóst við. Ég mæli með þessu.“
„Sjálfur leik­ur­inn, umræðan og að vera inni á vell­inum er áhuga­verð­ari en ég bjóst við. Ég mæli með þessu.“

Keppnin við goðsagnirnar

Um fimm­tíu manns hafa verið orð­aðir á einn eða annan hátt við for­seta­kosn­ing­arnar und­an­farin miss­eri. Í næstu viku kemur í ljós hversu margir skil­uðu inn til­skildum fjölda und­ir­skrifta, en frestur til þess rann út í gær. Yfir­kjör­stjórnir fara yfir listana og gefa gildum fram­bjóð­endum vott­orð til að skila inn til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Fjórtán ætl­uðu í fram­boð og níu náðu að skila inn und­ir­skriftum í gær. Sitjandi for­seti hætti við að hætta, Davíð Oddsson kom inn á völl­inn og for­seti hætti svo aftur við að hætta við að hætta.

„Ég bjóst svo sem við öllu,“ segir Andri Snær. „Það var alltaf talað um Davíð. Það var líka talað um Ólaf. Ég hélt reyndar að Þor­gerður Katrín og Össur Skarp­héð­ins­son ætl­uðu í fram­boð og að maður myndi kannski etja kappi við þau. En ég bjóst ekki við að fara á móti goð­sögn­unum sjálfum og mér finnst það afar mik­il­vægt fyrir ævi­sög­una að hafa náð þeim tveimur saman, Davíð og Ólafi, þó að það hafi ekki verið nema einn dag,“ segir Andri Snær og hlær. „Þetta var mik­il­vægt ­ og algjör­lega súr­r­eal­ískt. Ég geri engan grein­ar­mun á skáld­skap og veru­leika þessa dag­ana, þetta er allt með slíkum ólík­indum.“

Ég bjóst ekki við að fara á móti goð­sögn­unum sjálfum og mér finnst það afar mik­il­vægt fyrir ævi­sög­una að hafa náð þeim tveimur saman, Davíð og Ólafi, þó að það hafi ekki verið nema einn dag.

Neitar að trúa að konurnar fái svo lítið fylgi

Andri Snær hefur verið að mæl­ast með á bil­inu tæp­lega tíu upp í 30 pró­senta fylgi í könn­unum, en fylgið hefur farið lækk­andi und­an­farið. Davíð Oddsson hefur verið að mæl­ast með meira fylgi en hann, en Guðni Th. Jóhann­es­son er langefstur. Aðrir fram­bjóð­endur eru að mæl­ast undir einu pró­senti. Andri segir nauð­syn­legt að spyrja að leikslokum, en að hans mati eru skoð­ana­kann­anir oft of skoð­ana­mynd­andi og not­aðar í of miklum mæli til að keyra upp hug­myndir um fólk.

„Auðvitað er jákvætt að nýi tím­inn sé með slíkt yfir­burð­ar­fylgi,“ segir hann. „En það þarf eng­inn að segja mér að á Íslandi verði konur sam­tals með eitt til tvö pró­sent atkvæða. Ég neita að trúa því.“

Það þarf eng­inn að segja mér að á Íslandi verði konur sam­tals með eitt til tvö pró­sent atkvæða. Ég neita að trúa því.

Þjóðarstoltið skiptir máli

Ef svo fer að Andri flyst ekki búferlum til Bessa­staða, hvern vill hann sjá þar í hans stað?

„Ég get ekki dæmt um aðra fram­bjóð­endur. Ég þekki Guðna, Elísa­betu og Höllu ágæt­lega og er mál­kunn­ugur Sturlu. Þetta er allt ágætt fólk. Ísland þarf virki­lega á ein­hverjum að halda sem bætir orð­spor lands­ins. Við verðum að fá mann­eskju þangað sem er í góðum tengslum við Íslend­inga erlendis því við verðum að laga svo margt hérna heima til að opna braut­ina til baka fyrir allt okkar unga fólk sem er að læra erlendis. Það eru margir alveg í rusli yfir fréttum héðan og þær hvetja fólk ekki bein­línis til að koma aftur. Og það eru þrjú atriði sem dregur fólk heim: Náttúran, sam­fé­lagið og tungu­málið. Mér finnst eins og við höfum misst tengsl við þetta. Við þurfum að snúa þessum fólks­flótta við. Og þjóð­arstolt skiptir þar máli. Þá tel ég að nátt­úran okkar sé eitt af því sem við erum stolt af og síðan lýð­ræð­is­hefðin og þar er stjórn­ar­skrár­málið mik­il­vægt. Við verðum að bæta kerfin sem hafa afvega­leitt okkur.“

Illa upp alinn krakki

Andri Snær segir Ísland falla hratt í verði og það verði að snúa þeirri þróun við.

„Í dag er orð­sporið laskað. Hver ætlar að treysta íslenskum lög­fræð­ingi? Hver ætlar að treysta íslenskum vörum? En allt kland­rið okkar er verð­launað með auk­inni ferða­þjón­ustu, sem hlýtur að telj­ast lélegt upp­eldi. Barn sem er alið svona upp, þegar það gerir eitt­hvað af sér þá fær það meira nammi, verður ómögu­legur krakki. En okkur er verð­launað fyrir hrunið og eld­gos og alls konar rugl, með fleiri ferða­mönnum. Þetta hlýtur að rugla okkur í rím­inu.“

Hann segir það afar miður fyrir íslenskt vís­inda­sam­fé­lag ef á Bessa­staði kæmi maður sem væri afneit­un­ar­sinni í hnatt­rænni hlýnun. „Ég trúi ekki að það verði. Það væri ekki einu sinni súr­r­eal­ískt, það væri dystópískt. Ísland fer ekki þangað.“

Kjarninn birtir viðtöl yfir Hvítasunnuhelgina við þá forsetaframbjóðendur sem hafa mælst best í skoðanakönnunum undanfarið. Tekið skal fram að Davið Oddsson hafnaði beiðni Kjarnans um viðtal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár