Efnahagsástandið ekki verra á Nýja-Sjálandi

Þrátt fyrir harka­legar sótt­varn­ar­að­gerðir benda nýj­ustu hag­tölur til þess að efna­hags­á­stand Nýja-Sjálands sé ekki verra en á öðrum Vest­ur­löndum.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands Mynd: EPA

Nýja-Sjáland hefur verið lofað á heims­vísu fyrir að hafa náð að útrýma COVID-19 smitum með hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum, en ekk­ert inn­an­lands­smit greind­ist í land­inu í 102 daga í sumar. And­stæð­ingar hafa þó varað við lam­andi áhrif slíkra aðgerða á efna­hags­lífið, en nýlegar hag­tölur þar í landi sýna ekki fram á verri sam­drátt heldur en í öðrum sam­bæri­legum löndum.

Í eigin búbblu

Þann 19. mars síð­ast­lið­inn lok­aði rík­is­stjórn Nýja-Sjálands land­inu fyrir öllum far­þegum sem áttu ekki lög­heim­ili þar til að sporna gegn útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Nokkrum dögum seinna lýsti Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, yfir alls­herj­ar­út­göngu­banni og sagði öllum íbúum að halda sig heima í eigin „búbblu“.

Ardern sagði á sínum tíma að sótt­varn­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar væru þær ströng­ustu í öllum heim­inum en að hún myndi ekki afsaka þær með neinum hætti. Þær virð­ast einnig hafa borið árangur, en ekki greind­ist eitt inn­an­lands­smit í land­inu í 102 daga í sumar. Einnig er heild­ar­fjöldi stað­festra smita af COVID-19 í land­inu, sem hefur tæp­lega 5 milljón íbúa, innan við tvö þús­und, auk þess sem ein­ungis 22 hafa lát­ist þar af völdum veirunnar.

Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin hefur lof­samað skjótar aðgerðir Nýja-Sjálands og sagt þær vera fyr­ir­mynd ann­arra þjóða í því hvernig eigi að bregð­ast við útbreiðslu far­ald­urs­ins. Rík­is­stjórn lands­ins virð­ist einnig hafa ákveðið að halda í þær aðgerðir þegar smitum fór að fjölga aftur í land­inu, en útgöngu­banni var lýst yfir í borg­inni Auckland eftir að hóp­sýk­ing greind­ist þar fyrir þremur vikum síðan.

Umdeildar aðgerðir

Harka rík­is­stjórn­ar­innar í sótt­varn­ar­að­gerðum eru ekki óum­deildar, en stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa gagn­rýnt þær fyrir að lama efna­hags­líf lands­ins óþarf­lega mikið.

Paul Goldsmith, þing­maður nýsjá­lenska þjóð­ar­flokks­ins, sagði fyrr í sumar að hag­spár bentu til þess að efna­hags­sam­drátt­ur­inn í land­inu yrði yfir með­al­lagi OECD-ríkja, þrátt fyrir að Nýja-Sjáland hefði verið betur statt en mörg önnur lönd til að bregð­ast við útbreiðslu veirunnar.

Minna atvinnuleysi en á Íslandi

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, nýsköp­unar- og ferða­mála­ráð­herra, setti hins vegar fram til­lögur á rík­is­stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku þar sem mælt var með því að taka mið af heild­stæðri efna­hags­grein­ingu á afleið­ingum sótt­varn­ar­að­gerða á Nýja-Sjálandi.

Í sam­an­burði við Ísland kemur efna­hags­ár­angur Nýja-Sjálands nokkuð vel út. Um 4,1 pró­sent af vinnu­mark­aði lands­ins þáðu atvinnu­leysistengdar bætur þar í landi í júní síð­ast­liðnum, sam­kvæmt nýrri skýrslu frá nýsjá­lenska félags­mála­ráðu­neyt­inu.

Nýjar tölur benda þó til þess að hlut­fallið hafi nær tvö­fald­ast í ágúst, en búist er við því að það nái hámarki í um 8,1 pró­sent í vetur. Til sam­an­burðar spáir Seðla­banki Íslands því að atvinnu­leysi hér á landi muni ná hámarki í u.þ.b. tíu pró­sentum í vetur.

Aðstæður á vinnu­mark­aði hafa verið betri en búist var við á Nýja-Sjálandi á síð­ustu mán­uðum. Í vor spáði hug­veita á vegum rík­is­stjórnar lands­ins því að atvinnu­leysi þar gæti náð allt að 26 pró­sentum ef útgöngu­bönn vörðu í nægi­lega langan tíma og ekk­ert væri að gert.

Hins vegar náði atvinnu­leysi ein­ungis fjórum pró­sentum á öðrum árs­fjórð­ungi, ef tekið er til­lit til árs­tíð­ar­breyt­inga á vinnu­mark­aðnum.

Þungt högg í einkaneyslu

Þrátt fyrir minna högg á vinnu­mark­aði virð­ist þó kreppa vera óum­flýj­an­leg á Nýja-Sjálandi, rétt eins og í öðrum OECD-ríkjum. Líklegt er að einka­neysla hafi Nýsjá­lend­inga beðið þungt högg á öðrum árs­fjórð­ungi, en smá­sala dróst þar saman um 14 pró­sent á tíma­bil­inu. Einnig benda nýjar tölur til þess að mik­ill sam­dráttur hafi orðið á korta­veltu í land­inu á síð­ustu vikum eftir að sótt­varn­ar­að­gerðir voru hertar þar fyrir u.þ.b. mán­uði síðan.

Mest hefur dregið úr efna­hags­um­svifum í Auckland, þar sem útgöngu­bann var í gildi síð­ustu þrjár vik­urnar, en þar hefur korta­neysla dreg­ist saman um 40%.

Til við­bótar við minni einka­neyslu féll mið­gildi heim­il­is­tekna um 7,6 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi, en þetta er í fyrsta skiptið sem slíkt hefur gerst síðan mæl­ingar hófust þar í landi árið 1998.

Hins vegar virð­ist landið njóta góðs af hag­stæð­ari vöru­skipta­jöfn­uði en áður, þar sem útflutn­ingur á vöru hefur ekki dreg­ist saman að neinu ráði á meðan inn­flutn­ingur hefur minnkað veru­lega.

Á svipuðu reiki og aðrir

Í hag­spá OECD, sem kom út fyrr í sumar, var talið að sam­drátt­ur­inn á Nýja-Sjálandi myndi nema um 9-10 pró­sentum af lands­fram­leiðslu.

Þessi sam­dráttur er nokkuð meiri en í Banda­ríkj­unum, þar sem gert var ráð fyrir að lands­fram­leiðsla muni drag­ast saman um 7,5-8,5 pró­sent, en minni en í Evr­ópu­sam­band­inu, þar sem spáð var 9-11 pró­senta sam­drætti á árinu.

Þá taldi OECD að lands­fram­leiðsla Íslands myndi drag­ast saman um 10-11 pró­sent í ár, en Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir 7,1 pró­senta sam­drætti í lands­fram­leiðslu í nýjasta hefti Pen­inga­mála. Hagspár fyrir Nýja-Sjáland eru því á svip­uðu reiki og í öðrum löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár