Kalifornía er orðið sjötta stærsta hagkerfi í heimi

Jerry Brown er ríkisstjóri í Kaliforníu.
Jerry Brown er rík­is­stjóri í Kali­forníu. Mynd: EPA

Hagkerfi Kali­forníu er nú orðið sjötta stærsta hag­kerfi í heimi á kostnað Frakk­lands. Kröftugt efna­hags­líf í Kali­forníu og sterkur Banda­ríkja­dalur er sagt vera ástæða þessa. Árið 2014 var hag­kerfi Kali­forníu það átt­unda stærsta í heimi. Reuters greinir frá þessu.

Irena Asmund­son, aða­hag­fræð­ingur fjár­mála­ráðu­neytis Kali­forníu, sagði í sam­tali við Reuters að mjög vel hefði gengið í Kali­forníu árið 2015. Miðað er við verga lands­fram­leiðslu í nýj­ustu opin­beru gögnum Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS).

Kali­fornía stendur sig best allra ríkja í Banda­ríkj­unum þegar kemur að vexti í fjölda starfa, segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyti rík­is­ins. Lands­fram­leiðsla Kali­forníu árið 2015 var 2,46 trilljónir doll­ara og óx hag­kerfið um 4,1 pró­sent á milli ára. Lands­fram­leiðsla Kali­forníu árið 2015 var 2,46 trilljónir doll­ara og jókst um 4,1 pró­sent á milli ára. Til sam­an­burðar þá óx verg lands­fram­leiðsla Banda­ríkj­anna um 2,4 pró­sent.

Banda­ríkin öll eru sem fyrr stærsta hag­kerfi í heimi. Kína kemur þar á eftir, þá Japan, Þýska­land og Bretland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár