Launaþróun þingmanna svipuð og annarra eftir lækkun

Eftir að búið er að lækka auka­greiðslur til þing­manna er launa­þróun þeirra svipuð og ann­arra hópa á vinnu­mark­aði, sam­an­borið við árið 2006. Þetta segir fjár­mála­ráðu­neytið.

Launa­þróun þing­manna er svipuð og hjá öðrum hópum á vinnu­mark­aði, borið saman við árið 2006, eftir að ákveðið var að lækka starfstengdar greiðslur til þeirra nýverið. Þetta er nið­ur­staða útreikn­inga fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem birtir eru á vef ráðu­neyt­is­ins.

Fjár­mála­ráðu­neytið bað Hagstofu Íslands um að taka saman upp­lýs­ingar um þróun launa­kjara alþing­is­manna frá árinu 2006. Það er sama tíma­bil og grein­ing á vegum aðila vinnu­mark­að­ar­ins á vett­vangi SALEK hafi byggst á, og sama tíma­bil og kjara­ráð hefur ákveðið laun þing­manna.

Laun alþing­is­manna hafa verið deilu­efni eftir að kjara­ráð ákvað á kjör­dag að hækka þau veru­lega. For­sætis­nefnd Alþingis tók ákvörðun um það nýlega að lækka starfstengdar greiðslur, sem þing­menn fá ofan á laun sín, til þess að koma til móts við gagn­rýni á hækk­un­ina. Ferða­kostn­aður þing­manna var lækk­aður um 54 þús­und krónur og starfs­kostn­aður um 50 þús­und krónur. Alþingi hefur sagt að þessu megi jafna við 150 þús­und króna launa­lækkun fyrir skatt.

Sam­an­tekt Hag­stof­unnar tekur ekki til ákvörð­unar for­sætis­nefndar, enda komu þær til fram­kvæmdar nú um mán­aða­mótin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár