Ofurborgir að stinga af

Virtir hag­fræð­ingar segja að hið opin­bera verði að hugsa meira um þá þjóð­fé­lags­hópa sem verði útundan, á sama tíma og borgir stækki stöðugt og fjár­fest­ing utan þeirra dregst saman.

Frá Seattle.
Frá Seattle. Mynd: EPA.

Í nýlegri grein Jonathan Gruber og Simon Johnson, fyrr­ver­andi aðal­hag­fræð­ings Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og pró­fess­ors við MIT háskóla, á Linkedin síðu þess síð­ar­nefnda, fjalla þeir um þær miklu breyt­ingar sem eru að verða í Banda­ríkj­unum, þar sem þekk­ing­ar­brunnar sam­fé­laga hafa safn­ast saman í nokkrar ofur­borgir (Super cities) í strand­ríkj­unum.

Er þar meðal ann­ars átt við borgir eins og Seattle, New York, San Francisco og Boston.

Styrking jaðarbyggða

Flest stærstu fyr­ir­tækin hafa vaxið upp í strand­ríkjum á austur- og vest­ur­strönd­inni, bestu háskól­arnir hafa þró­ast þar og vaxið, og fjár­fest­ing er marg­falt meiri í þessum ofur­borgum en á öðrum svæðum.

Í grein sinni færa þeir rök fyrir því, að þó að þessi þróun sé á margan hátt rök­rétt á tækni­væddri öld, þá geti hið opin­bera hagað sinni hag­stjórn þannig, að heild mann­fjöld­ans hagn­ist meira. Þannig meiri áhersla á stað­bundna stefnu­mótun, meðal ann­ars á sviði inn­viða og mennt­unar, gert sam­fé­lögin mót­tæki­legri fyrir áskor­unum nútím­ans, þar sem meiri sjálf­virkni mun leysa manns­hönd­ina af hólmi.

Hagsmunir heildarinnar

Í grein­inni segja þegar Gruber og Johnson að hag­stjórn, þar sem hugsað er meira um hags­muni heild­ar­innar, snú­ist ekki síst um að virkja „Einstein fram­tíð­ar­innar“, og gefa kyn­slóð­unum færi á því að láta ljós sitt skína.

Þróun ofur­borg­anna, þar sem sog­ast hafa fjár­munir og þekk­ing, hafi líka á sér skugga­hliðar, þar sem breyt­ingar verða á fast­eigna­mörk­uðum, þar sem hús­næðis- og leigu­verð rjúki upp og valdi venju­legu fólki vand­ræðum. Það flýji burt, og eigi í erf­ið­leikum.

Áhersla á að styðja við svæði sem séu í vörn - ein­staka hverfi og sveit­ar­fé­lög - sé mik­il­væg í þessu sam­hengi.

Ofurvöxtur og samdráttur

Hag­vöxtur í Banda­ríkj­unum hefur verið á bil­inu 2 til 4 pró­sent á ári, und­an­farin 5 ár, en algengt er að hag­kerfi stærstu borg­ar­svæð­anna séu að vaxa mun meira, eða á bil­inu 6 til 10 pró­sent, á meðan önnur svæði vaxa minna, eða glími jafn­vel við sam­drátt.

Í grein­inni segja þeir Gruber og Johnson að, mik­il­vægt sé - út frá hag­fræði­legu sjón­ar­horni - að efla hag­kerfi þeirra svæða sem séu að glíma við vanda­mál, til að tryggja það sem best að fólk með hæfi­leika og hug­myndir geti fengið tæki­færi á því að láta til sín taka í fram­tíð­inni. Ef ekk­ert verði að gert, get sam­fé­lögin molnað niður með til­heyr­andi glöt­uðum tæki­færum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár