Katrín Jakobsdóttir: Stjórnmál að ganga í gegnum breytingarskeið sem er ekki búið

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, seg­ist ekki sjá sig fyrir sér í emb­ætti for­seta Íslands en við­ur­kennir að hún hafi fengið örfáar áskor­anir um að bjóða sig fram. Það sé þó alveg á hreinu að hún sé ekki að und­ir­búa fram­boð til for­seta. Þetta kom fram í við­tali við hana í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni fyrr í dag.

Flokkakerfið í "rosalegri deiglu"


Katrín fór um víðan völl í um tveggja klukku­stundar löngu við­tali. Hún sagði til að mynda að íslensk stjórn­mál og flokka­kerfi þess vera að ganga í gegnum mikið breyt­ing­ar­skeið sem hófst eftir hrun og sé ekki lokið. Flokka­kerfið sé sér­stak­lega í „rosa­legri deiglu“.

Í síð­ustu kosn­ingum buðu 15 flokkar fram til Alþingis á lands­vísu, margir þeirra með áherslur sem eru vinstra megin við miðju sam­kvæmt hinu hefð­bundna póli­tíska litrofi. Katrín seg­ist telja að það sé hægt að vinna miklu meira saman á vinstri væng stjórn­mál­anna. „Ég sé ekki endi­lega fyrir mér flokka­sam­ein­ingar[...]En ég held að það geti alveg orðið frek­ari breyt­ingar.“ Þar á hún meðal ann­ars við frekara sam­starf um mál­efni þvert á flokka. Margir innan vinstri flokka, til dæmis Vinstri grænna og Sam­fylk­ing­ar­innar, geti unnið vel saman.

Mikil munur á pólitík fyrir og eftir hrun


Katrín sagði að tvenns konar kröfur væru uppi gagn­vart íslenskum stjórn­málum. Annars vegar krafa um að vinna hluti saman, til dæmis innan stjórn­ar­and­stöð­unnar. Því tengt seg­ist hún vera fylgj­andi því, og hafi alltaf verið, að fram­boð gefi upp fyrir kosn­ingar með hverjum þeir ætli að vinna í rík­is­stjórn fái þau tæki­færi til þess að mynda slíka. Hins vegar er krafa uppi um að stjórn­mála­menn tali með skýr­ari hætti um hvað þeir standi fyrir.

Hún seg­ist veru­lega ósátt við margt sem núver­andi rík­is­stjórn stendur fyrir.„Það er skýr hug­mynda­fræði­legur munur, finnst mér.“ Munurinn á póli­tík­inni fyrir og eftir hrun sést meðal ann­ars á þeim miklu erf­ið­leikum fyrir rík­is­stjórnir að ná saman um stór mál. Þeir erf­ið­leikar séu nú mun meira uppi á yfir­borð­inu en þeir voru áður, bæði hjá síð­ustu rík­is­stjórn og þeirri sem nú situr.

Jesús Kristur var vinstri maður


Stór hluti við­tals­ins fór í að ræða allt aðra hluti en beina póli­tík, þótt snertiflet­irnir væru alltaf skammt undan. Katrín greindi meðal ann­ars frá því að hún væri ekki fermd en trúi því alveg að Jesús Kristur hafi verið til í ein­hverri myndi. Hún hafi alltaf litið á hann sem vinstri mann, ein­hvern sem pass­aði upp á fátæka fólkið. Aðspurð um helstu pólitisku fyr­ir­myndir sínar nefndi Katrín Kolbrúnu Hall­dórs­dóttur, sem hafi verið afar ófeimin við að taka á erf­iðum málum, og Vigdísi Finn­boga­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár