Quidditch spilarar breyta nafni íþróttarinnar til að fjarlægja sig J.K. Rowling

Tvær ástæður eru fyrir því að íþrótta­sam­bandið Major League Quidditch hyggst breyta nafni íþrótt­ar­innar í Quadball. Önnur er sú að Warner Bros á vöru­merkið Quidditch en hin ástæðan eru trans­fó­bísk ummæli höf­undar bókanna um galdra­strák­inn Harry Potter.

Quadball iðkendur með kústsköft á milli lappanna. Gjarðirnar í forgrunni er mörkin, hægt er að vinna sér inn stig með því að koma tromlunni inn fyrir mark andstæðingsins.
Quadball iðk­endur með kúst­sköft á milli lapp­anna. Gjarð­irnar í for­grunni er mörkin, hægt er að vinna sér inn stig með því að koma troml­unni inn fyrir mark and­stæð­ings­ins. Mynd: EPA

Íþrótta­sam­bandið Major League Quidditch (MLQ) hefur ákveðið að breyta nafni íþrótt­ar­innar sem stunduð er innan vébanda sam­bands­ins í Quadball. Íþróttin er upp­runnin úr bókum J.K. Rowling um galdra­strák­inn Harry Potter. Leikmenn þjóta um loftið á kúst­sköftum í bókum Rowling en í raun­heimum eru leik­menn­irnir öllu jarð­tengd­ari þó svo að kúst­sköftin séu til staðar.

Ástæður þess að nafni íþrótt­ar­innar eru af tvennum toga. Kvik­mynda­fram­leið­and­inn Warner Bros. á í raun vöru­merkið Quidditch. Warner Bros. hefur ekki sett sig upp á móti nafn­inu en staðan hefur engu að síður haft hamlandi áhrif á vaxt­ar­mögu­leika grein­ar­innar og staðið í vegi fyrir því að hægt sé að gera samn­inga um sjón­varps­út­send­ingar og kost­un­ar­samn­inga.

For­svars­fólk MLQ segir einnig að Quadball hreyf­ingin vilji fjar­lægja sig höf­und­inum J.K. Rowling, sér­stak­lega í ljósi yfir­lýs­inga hennar og skoð­ana­skipta um kyn­vit­und og rétt­indi trans fólks á nýliðnum árum. Frá þessu er greint á vef New York Times.

Þúsundir iðkenda í tugum landa

Nafnið Quadball vísar í það að í íþrótt­inni er not­ast við fjóra bolta og í henni eru fjórar stöður. Sókn­ar­menn reyna að skora mörk með bolta sem nefn­ist tromla en markið ver gæslu­maður. Varn­ar­menn reyna að senda rot­ara á sókn­ar­menn­ina en tveir rot­arar eru í umferð. Þessir rot­arar eru ekki jafn högg­þungir og nafnið gefur til kynna, eru ein­fald­lega brenni­boltar. Loks er það leit­ar­inn sem reynir að ná gullnu eld­ing­unni.

Á vef Alþjóð­lega Quidditch sam­bands­ins segir að þús­undir leggi stund á íþrótt­ina í yfir 40 löndum. Löndin eru ef til vill fleiri en það, Ísland er til að mynda ekki aðili sam­bands­ins enda er hér á landi ekki starf­andi Quidditch sam­band. Íþróttin hefur þó verið stunduð hér af lið­inu Reykja­vík Ragnarök sem meðal ann­ars tók þátt í Norð­ur­landa­mót­inu í Quidditch árið 2018.

Fjarlægja sig galdrastráknum

Ummæli J.K. Rowling um trans fólk sem hún hefur látið falla, til að mynda á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter, hafa vakið mikla athygli á síð­ustu árum og fyrir tveimur árum sendi hún frá sér rit­gerð þar sem hún fjallar meðal ann­ars um áhyggjur hennar af aukn­ingu á kyn­leið­rétt­ingum.

Bar­áttu­fólk fyrir rétt­indum trans fólks hefur sagt Rowling vera trans­fó­bíska og aðdá­endur bókanna um Harry Potter hafa margir hverjir átt erfitt með að sam­rýma ást sína á bók­unum og and­stöðu sinni við skoð­anir höf­und­ar­ins, líkt og sagt er frá í grein New York Times.

Jack McGovern, tals­maður MLQ og Banda­ríska Quidditch sam­bands­ins segir að tengslin milli Quidditch og Rowling hefðu gert aðild­ar­fé­lögum erfitt með að fjölga iðk­endum. Hann seg­ist einni ekki vita hversu mikið íþróttin Quadball mun gera úr tengslum sínum við galdra­strák­inn Harry Potter þegar fram líða stundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár