Seldi bak við luktar dyr – vildi ná í þóknanatekjur

Lands­bank­inn seldi fjög­urra pró­sent hlut í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum til val­inna líf­eyris- og verð­bréfa­sjóða, bak við luktar dyr án opins sölu­fer­ils, eftir að hafa tekið þátt í hluta­fjár­aukn­ingu Reita í des­em­ber þegar hlutafé félags­ins var aukið um sautján millj­arða. Ástæðan fyrir því að bank­inn keypti hlut­inn og áfram­seldi fljótt aftur var sú að hann vildi tryggja bank­anum þókn­ana­tekjur úr hluta­fjár­aukn­ing­unni, með því að selja hlut­inn til val­inna fjár­festa í gegnum mark­aðsvið­skipti Lands­bank­ans, auk þess að stuðla að far­sælli nið­ur­stöðu í hluta­fjár­aukn­ingu fyrir félagið, að því er segir í svari frá bank­anum við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Til­gang­ur­inn var að stuðla að far­sælli nið­ur­stöðu í hluta­fjár­aukn­ingu félags­ins, skapa Lands­bank­anum þókn­ana­tekjur sem ann­ars hefðu ekki fallið til og veita líf­eyris- og verð­bréfa­sjóðum færi á að kaupa hluti í félag­inu, en í öllum til­fellum er um að ræða sjóði sem almennir fjár­festar hafa aðgang að,“ segir í svari Lands­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Upp­lýs­ingar hafa ekki feng­ist um hvaða sjóðir þetta voru sem keyptu hlut­inn af Lands­bank­anum, en fjögur pró­sent hlutur nemur um 1,6 millj­arði króna miðað við gengi hluta­fjár­ins í hluta­fjár­aukn­ing­unni í des­em­ber síð­ast­liðnum. Samkvæmt því gengi sem var í við­skipt­unum nam heild­ar­virði hluta­fjár tæp­lega 40 millj­örðum króna.

Við hluta­fjár­aukn­ingu Reita í des­em­ber og inn­komu nýrra hlut­hafa þynnt­ist eign­ar­hlutur Lands­bank­ans niður í 17,7% sem bank­inn hefur ekki í hyggju að selja, fyrr en í fyrsta lagi við skrán­ingu félags­ins á markað, sam­kvæmt svari bank­ans við fyr­ir­spurn þar um. Við skrán­ingu á markað gefst öllum fjár­festum færi á að kaupa hlut í félag­inu, þar á meðal líf­eyris- og verð­bréfa­sjóðum, en þeir eru hlut­falls­lega lang­sam­lega umfangs­mestu fjár­fest­arnir á mark­aði hér á landi.

Stærsta félag sinnar tegundar


Til stendur að skrá félagið á markað síðar á árinu. Reitir er stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi í útleigu á atvinnu­hús­næði. Það á 130 fast­eignir sem eru alls um 410 þús­und fer­metr­ara að stærð. Virði fast­eigna­safns­ins er um 100 millj­arðar króna. Á meðal þekktra fast­eigna í eigu Reita eru Kringlan, Hilton Reykja­vík Nordica, Icelandair hótel Reykja­vík Natura og Kaup­hall­ar­húsið. Stærstu leigu­takar félags­ins eru smá­söluris­inn Hagar, Flug­leiða­hót­elin, ríkið og sveit­ar­fé­lög.

[caption id="attachment_14333" align="alignnone" width="640"] Kringlan er ein þeirra bygg­inga sem Reitir á.[/caption]

Kringlan er ein þeirra bygginga sem Reitir á.
Kringlan er ein þeirra bygg­inga sem Reitir á.

Eign­ar­hald Lands­bank­ans í Reitum hófst árið 2009 þegar kröfu­hafar breyttu hluta af kröfum sínum á hendur félag­inu í hlutafé og eign­að­ist Lands­bank­inn við það 29,6% af heild­ar­hlutafé félags­ins. Félagið kom illa undan hrun­inu 2008 og geng­is­falli krón­unnar, svo ekki sé fastar að orðið kveðið, og hefur end­ur­skipu­lagn­ing á fjár­hag félags­ins, þar með talið eigna­safn­inu, verið tíma­frek. Nú er félagið komið með stöðugan og traustan rekstr­ar­grun­völl, að mati stjórn­enda, og tækt til skrán­ingar á markað.

Lífeyrissjóðirnir stigu inn


Tilkynnt var um það í deses­em­ber að Reitir hefðu lokið alls 68 millj­arða króna end­ur­fjár­mögnun, og fjall­aði Kjarninn þá um málið í frétta­skýr­ingu. Í henni fólst að félagið gaf út 25 millj­arða króna skulda­bréfa­flokk, fékk 26 millj­arða króna banka­lán og jók hlutafé sitt um 17 millj­arða króna.

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi-líf­eyr­is­sjóður og líf­eyr­is­sjóðir í eigna­stýr­ingu hjá Arion banka keyptu nýtt hlutafé fyrir tólf millj­arða króna og eign­uð­ust við það 31 pró­sent í Reitum, eins og áður segir. Afgang­inn af hluta­fjár­aukn­ing­unni, sem kost­aði fimm millj­arða króna, keyptu eldri hlut­hafar. Þeir eru að langstærstu leyti íslenskir við­skipta­bank­arnir þrír auk þrota­bús Glitnis.

Þrotabú Glitnis keypti og seldi aftur


Krist­jana Ósk Jóndóttir, mark­aðs­stjóri Reita, sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um hluta­fjár­aukn­ing­una í des­em­ber síð­ast­liðnum að allir eldri hlut­hafar Reita hafi nýtt sér for­kaups­rétt sinn og tekið þátt. Hver og einn keypti því í sam­hengi við fyrri eign sína. Það þýðir að Eigna­bjarg, dótt­ur­fé­lag Arion banka, hafi keypt nýtt hlutafé fyrir 2,1 millj­arð króna, Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, keypti hlutafé fyrir 1,6 millj­arða króna og Íslands­banki keypti fyrir 345 millj­ónir króna.

[caption id="attachment_10672" align="alignnone" width="640"] Glitnir keypti og seldi fljótt aftur, hlut í Reitum.[/caption]

Glitnir keypti og seldi fljótt aftur, hlut í Reitum.
Glitnir keypti og seldi fljótt aftur, hlut í Reitum.

Þrotabú Glitnis, sem átti 11,2 pró­sent hlut í sínu eigin nafni og í nafni Haf Funding Ltd., keypti nýtt hlutafé fyrir um 560 millj­ónir króna. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Glitni var sú þátt­taka þó skil­yrt því að þrota­búið var búið að selja nýja hluta­féð áfram áður en það keypti það. Því staldr­aði það stutt við í eigu þess. Ekki fékkst upp­lýst hver kaup­and­inn væri.

Yfirlýst markmið að selja félög í óskyldum rekstri


Kaup við­skipta­bank­anna á nýju hlutafé í Reitum fór fram þrátt fyrir að það væri yfir­lýst stefna þeirra allra að selja eignir í óskyldum rekstri sem fyrst, enda er það lög­bundið að bankar eigi ekki að standa í rekstri sem er óskyldur banka­starf­semi. Er það ekki síst byggt á sam­keppn­is­sjón­ar­miðum. Í starfs­reglum Eigna­bjargs segir að félagið skuli „eftir fremsta megni haga því svo að eign­ar­halds­tími þess á fyr­ir­tækjum í eigu félags­ins vari í eins skamman tíma og hægt er“.

Íslands­banki hefur gefið það út opin­ber­lega að hann leit­ist við að selja eignir í óskyldum rekstri enda sé „ekki stefna bank­ans að eiga slíkar eignir til lengri tíma“. Í útgef­inni stefnu Lands­bank­ans um sölu fulln­ustu­eigna segir að stefnt sé að því að selja þær „eins fljótt og unnt er að teknu til­liti til mark­aðs­að­stæðna“.

Sala Lands­bank­ans á eignum sínum hefur verið umdeild og póli­tískt við­kvæm, enda er íslenska ríkið eig­andi 98 pró­sent hluta­fjár bank­ans. Sala bank­ans á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut sínum í Borgun dró dilk á eftir sér en ekk­ert opið sölu­ferli fór fram áður en hlut­ur­inn var seldur, eins og Kjarninn greindi frá. Þetta var meðal ann­ars gagn­rýnt af Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, en Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar og annar tveggja starfs­manna hennar sam­kvæmt starfs­manna­skrá, taldi heppi­legra að hafa opið og gagn­sætt ferli þegar Lands­bank­inn væri að selja eignir, einkum til að tryggja að sem hæst verð feng­ist fyrir hluti og til að tryggja jafn­ræði fyrir alla þá sem hefðu áhuga á því að kaupa og bjóða í þá.

Samkeppniseftirlitið gerði ekki athugasemdir


Reitir er félag sem varð til utan um íslenska hluta starf­semi Landic Property, sem var stórt og skuld­sett fast­eigna­fé­lag með umfang­mikla starf­semi á Íslandi og erlendis. Félagið rataði í mikil vand­ræði eftir banka­hrun og í nóv­em­ber 2009 tóku íslenskir kröfu­hafar þess yfir inn­lendu starf­semi þess, eins og áður sagði, og breyttu nafni félags­ins í Reiti. Þeir voru ofan­greindir bankar.

[caption id="attachment_16733" align="alignnone" width="569"] Páll Gunnar Pálsson.[/caption]

Til að þetta væri hægt þá þurfti Sam­keppn­is­eft­ir­litið að veita und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum. Sú und­an­þága var veitt með ýmsum skil­yrðum. Það eru því fimm ár síðan að Reitir lentu í höndum bank­anna. Allar götur síðan hefur staðið yfir end­ur­skipu­lagn­ing og síðar end­ur­fjár­mögn­un­ar­ferli sem miðar að því að setja félagið á markað.

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sagði í sam­tali við Kjarnann að stofn­unin hafi vitað af þátt­töku bank­anna í hluta­fjár­aukn­ing­unni hjá Reitum og að hún hafi ekki séð ástæðu til þess að gera athuga­semd við hana.

Eftir hluta­fjár­aukn­ing­una eiga við­skipta­bank­arnir þrír enn sam­an­lagt 56,2 pró­sent hlut í Reitum. Eigna­bjarg á 29,5 pró­sent, Lands­bank­inn á 21,9 pró­sent og Íslands­banki 4,8 pró­sent.

Skráning framundan


Sömu líf­eyr­is­sjóðir og tóku þátt í hluta­fjár­aukn­ingu Reita keyptu 25 millj­arða króna skulda­bréfa­flokk­inn sem félagið gaf sam­hliða út. Íslands­banki lán­aði síðan félag­inu 26 millj­arða króna verð­tryggt til 30 ára.

Í kjöl­far þess að búið er að ljúka end­ur­fjár­mögn­un­inni stefnir stjórn Reita að því að skrá hluta­bréf og skulda­bréfa­flokk Reita í Kauphöll Íslands í apríl 2015. Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Arion banka, stærsta ein­staka eig­anda Reita, mun hafa umsjón með skrán­ing­unni. Þegar af henni verður má ætla að bank­arnir selji hluta af eign­ar­hlutum sínum í Reitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár