Lindarhvoll þarf að afhenda gögn um sölu á hlut ríkisins í Klakka

Félagið Lind­ar­hvoll, sem er í eigu rík­is­ins, þarf að afhenda gögn um sölu­ferlið á hlut í Klakka sam­kvæmt nýjum úrskurði.

Félag í eigu þriggja stjórn­enda Klakka, eign­ar­halds­fé­lags sem heldur utan um 100 pró­senta hlut í eigna­leigu­fyr­ir­tæk­inu Lykli, átti næst­hæsta til­boðið í tæp­lega 18 pró­senta hlut rík­is­ins í Klakka þegar hlut­ur­inn var boð­inn til sölu haustið 2016. Umrætt félag, Ásaflöt, vildi ekki að upp­lýst yrði um þátt­töku þess í sölu­ferl­inu og bar því við að Lind­ar­hvoll, félag sem hélt utan um stöð­ug­leika­eignir sem voru fram­seldar rík­inu og sá um sölu­ferlið, hafði heitið því trún­aði.

Samkvæmt nýjum úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, þarf Lind­ar­hvoll að veita aðgang að upp­lýs­ingum um sölu­ferlið á hlut rík­is­ins í Klakka, og segir í úrskurð­inum að Lind­ar­hvoll hafi ekki haft heim­ild til þess heita áhuga­sömum kaup­endum trún­aði.

Frá þessu er greint í Mark­aðnum í dag, en úrskurð­ur­inn hefur ekki verið birtur á vef úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Af þeim þremur félögum sem buðu í hlut rík­is­ins í Klakka tengd­ust þannig tvö félög stjórn­endum eign­ar­halds­fé­lags­ins, en Magnús Scheving Thor­steins­son, for­stjóri Klakka, er eini stjórn­ar­maður BLM fjár­fest­inga, sem var hæst­bjóð­andi, og jafn­framt einn af eig­endum Ásaflatar sem átti næst­hæsta til­boðið í hlut rík­is­ins, að því er segir í Mark­aðnum.

Félagið BLM fjár­fest­ingar, dótt­ur­fé­lag vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, átti hæsta til­boðið í 17,7 pró­senta hlut rík­is­ins í Klakka en það hljóð­aði upp á 505 millj­ónir króna. Ásaflöt bauð 502 millj­ónir í hlut­inn en þriðja til­boðið, sem hljóð­ aði upp á 501 milljón króna, barst frá Frigus II í eigu Ágústs og Lýðs Guð­munds­sona, og Sigurðar Val­týs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Exista. 

„For­svars­menn Frigusar ósk­uðu eftir því við Lind­ar­hvol að félagið fengi aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögnum um sölu­ferlið en þeirri beiðni var hafnað. Málið kom til kasta úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem féllst í síð­ustu viku á nær allar beiðnir Frigusar. Á meðal gagna sem Lind­ar­hvoli ber nú að afhenda Frigusi eru fund­ar­gerðir stjórnar Lind­ar­hvols, sam­skipti hæsta­rétt­ar­lög­manns­ins Steinars Þórs Guð­geirs­sonar, þáver­andi stjórn­ar­manns Klakka sem tók auk þess við til­boðum í eign­ar­hlut­inn fyrir hönd rík­is­ins, og stjórnar Lind­ar­hvols, sam­skipti Lind­ar­hvols og til­boðs­gjaf­anna þriggja og afrit af þeim þremur til­boðum sem bár­ust,“ segir í Mark­aðnum. 

Sigurður segir í sam­tali við Mark­að­inn, að afar illa hafi gengið að fá sjálf­sagðar upp­lýs­ingar um sölu­ferlið frá Lind­ar­hvoldi. „Þarna var verið að selja eigur ríks­is­ins til sér­val­inna aðila. Ekki var reynt að hámarka sölu­verðið og því er þetta mál álits­hnekkir fyrir stjórn Lind­ar­hvols,“ segir Sigurður í sam­tali við Mark­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár