Fyrri aukaspurning:
Myndin hér að ofan er tekin á Ítalíu. En hvar?
***
Aðalspurningar:
1. Árið 1919 var stofnuð hreyfing sem fól í sér að meðlimir klæddust svörtum skyrtum og var hreyfingin svo við lýði í rúm 20 ár. Hverjir voru þessir „svartstakkar“ og hverrar þjóðar?
2. Í júlí síðastliðnum var fyrrverandi forsætisráðherra Japans myrtur. Hvað hét hann?
3. Mía litla er persóna í sagnabálkinum um ... hverja?
4. Fugl af einu tagi er afar sjaldséður á Íslandi. Í annál frá 1605 segir að sést hafi slíkur fugl „lengi sumars í Skagafirði, í Hofsós og- Óslandshlíð“ og vildi „herra Guðbrandur [Hólabiskup] láta ná honum í neti,[en] varð ekki“. Síðast er vitað til að slíkur fugl hafi sést við Stokkseyri 2003. Hvernig fugl er hér um að ræða?
5. Andrés Ingi Jónsson var kosinn á þing fyrir VG 2017 en situr nú á þingi fyrir ... hvaða flokk?
6. Í september kom upp meint svindlmál í skákheiminum þegar heimsmeistarinn sakaði mótstöðumann sinn um að svindla. Við förum ekki nánar út í hvernig svindlið átti að hafa átt sér stað en þetta hefur dregið dilk á eftir sér. En hvað heitir heimsmeistarinn?
7. Og hvað heitir mótstöðumaðurinn sem átti að hafa svindlað?
8. Grimmileg borgarastyrjöld geisaði í Evrópulandi einu 1946-1949 og meira en 150 þúsund manns létu lífið. Þar áttust við lið ríkisstjórnar annars vegar — sem Bretar og Bandaríkjamenn studdu — og lið kommúnista hins vegar. Í hvaða landi urðu þessi ósköp?
9. Í hvaða landi er borgin Liège?
10. Fyrsta og nánast eina járnbrautarlestin á Íslandi var eimreið sem gekk milli tveggja staða í Reykjavík í tengslum við framkvæmdir 1913-1917. Hvaða framkvæmdir voru það?
***
Seinni aukaspurning:
Hver er konan?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Ítalskir fasistar.
2. Abe.
3. Múmínálfana.
4. Hvítur hrafn.
5. Pírata.
6. Magnus Carlsen.
7. Niemann.
8. Grikklandi.
9. Belgíu.
10. Bygging hafnar í Reykjavík.
***
Svör við aukaspurningum:
Efri myndin er tekin við eyjuna Kaprí.
Neðri myndin er af Charlize Theron fyrirsætu og leikkonu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir