„Guð er ekki til“

Björn Leví Gunn­ars­son var í guð­fræði­legum pæl­ingum á þing­inu í dag. Hann seg­ist hafa orðið var við það að ef hann segir þessa ein­földu orð – „guð er ekki til“ – þá finn­ist fólki vegið að trú sinni. Að það geri ein­hvern veg­inn lítið úr skoð­unum þeirra.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, fjall­aði um trú og við­brögð við umræðu um hana undir liðnum störf þings­ins í dag.

„Guð er ekki til. Það er ekki til nein yfir­nátt­úru­leg vera sem hlustar á bænir eða skipu­leggur ein­hvers konar refs­ingu eða umbun eftir dauð­ann miðað við hvernig fólk hugs­aði eða hag­aði sér á þess­ari jörð.

Það er mjög auð­velt að skilja af hverju við höldum að það sé til ein­hver slík vera sem skap­aði himin og jörð úr engu eða úr lík­ama Ýmis eða eitt­hvað svo­leiðis, því að í árþús­undir hafði mann­veran ekki getu til að sann­reyna hug­myndir um til­vist heims­ins og allar hinar mis­mun­andi sögur sem fólk bjó til um það hvernig heim­ur­inn virk­aði,“ sagði hann við upp­haf ræðu sinnar.

Sáraeinfalt að misnota trú til að búa til stjórnkerfi

Björn Leví sagði að aug­ljóst væri hvað gerð­ist í kjöl­far þess að „fólk trúir sögum um það hvernig heim­ur­inn varð til“.

„Það er nefni­lega sára­ein­falt að mis­nota þá trú til að búa til stjórn­kerfi og ráð­stafa valdi með til­vísun í æðri mátt­ar­völd. Til að frið­þægja þennan guð eða annan þá þarf bænir, gjafir eða fórnir, ann­ars end­ur­fæð­ist þú sem óæðri líf­vera í næsta lífi, það kemur plága eða þú kvelst að eilífu í hel­víti,“ sagði hann.

Þá hefði hann orðið var við það að ef hann segði þessa ein­földu orð – „guð er ekki til“ – þá fynd­ist fólki vegið að trú sinni. Að það gerði ein­hvern veg­inn lítið úr skoð­unum þeirra.

„Mér finnst það mjög merki­legt því að á sama tíma virð­ist fólk síður móðg­ast yfir því ef ein­hver er ann­arrar trú­ar­bragða­skoð­unar. Það fólk trúir bara á annan guð. Það er ein­hvern veg­inn síður móðg­andi, kannski af því að þau eru föst í sömu keppni, að veðja á að ein­hver yfir­nátt­úru­leg vera útvegi þeim passa í eft­ir­lífið og keppnin snú­ist bara um hver veðjar á rétta yfir­nátt­úr­lega veru, en það á auð­vitað bara við ef um ein­gyð­is­trú er að ræða.

Ef það geta verið fleiri yfir­nátt­úru­legar verur sem allar eru með sitt himna­ríki og hel­víti þá er þetta auð­vitað bara sam­keppn­is­mark­aður um hver býður best að þínu mati og þá er öðrum svo sem alveg frjálst að vera með aðra skoðun á því en þú, fyrir utan öll stríðin og hörm­ung­arnar og þaðan af verra. En að guð sé ekki til, sú stað­reynd er móðg­andi. Er það ekki merki­legt?“ spurði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár