Rúmlega 60 prósent innflytjenda á vinnumarkaði undir fertugu

Sá hópur útlend­inga sem kemur til Íslands til að vinna er mun yngri en hóp­ur­inn með íslenskan bak­grunn sem fyrir var á vinnu­mark­aði.

Fjölmargir innflytjendur koma til Íslands til að vinna í byggingariðnaðinum.
Fjöl­margir inn­flytj­endur koma til Íslands til að vinna í bygg­ing­ar­iðn­að­inum. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega 60 pró­sent þeirra inn­flytj­enda sem störf­uðu á íslenskum vinnu­mark­aði um mitt ár 2018 eru á aldr­inum 20-39 ára, eða 23.796 af alls 38.765 manns. Flestir eru á aldr­inum 25-29 ára eða 7.302 tals­ins. Þetta mál lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um starf­andi fólk á Íslandi.

[links]Kjarninn greindi frá því í gær að þeir inn­flytj­endur sem starfa á Íslandi séu nú 18,6 pró­sent starf­andi fólks. Fjöldi inn­flytj­enda á íslenskum vinnu­mark­aði hefur tvö­fald­ast frá byrjun árs 2015 og frá byrjun árs 2017 hefur þeim fjölgað um 11.544.

Alls eru inn­flytj­endur á íslenskum vinnu­mark­aði sem eru eldri en fimm­tíu ára 5.569 tals­ins. Það þýðir að ein­ungis 14,3 pró­sent inn­flytj­enda á vinnu­mark­aði er á þeim aldri. Til sam­an­burðar eru 161.289 ein­stak­lingar með íslenskan bak­grunn starf­andi hér­lendis. Af þeim hópi eru 57.169 yfir fimm­tugt, eða rúm­lega 35 pró­sent. Samkvæmt þessum tölum stuðlar hið aðflutta vinnu­afl að umtals­verðri yng­ingu á vinnu­afli Íslands í heild.

Langflestir með lögheimili hér

Það vekur athygli að 32.779 þeirra inn­flytj­enda sem starfa á íslenskum vinnu­mark­aði eru með lög­heim­ili hér­lendis, en ein­ungis 5.986 með slíkt erlendis. Það gefur til kynna að flestir þeirra sem hingað koma til að starfa ætli sér að dvelj­ast til lengri tíma.

[adspot]Fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á meðal íbúa sveit­ar­fé­laga er hröð­ust í Reykja­nesbæ. Ástæðan er fyrst og síð­ast sú aukna þörf á vinnu­afli sem aukin umsvif í kringum alþjóða­flug­völl­inn útheimtir, en nýbirtar tölur sýna að ferða­menn sem heim­sóttu Ísland voru 2,7 millj­ónir í fyrra. Árið 2010 voru þeir um hálf millj­ón.

Þessi staða hefur gert það að verkum að breyt­ing­arnar á sam­setn­ingu íbúa í Reykja­nesbæ hafa orðið meiri en áður hefur þekkst í íslensku sam­fé­lagi. Í lok árs 2011 bjuggu þar 1.220 erlendir rík­is­borg­arar og voru 8,6 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Í dag búa 18.510 manns í Reykja­nesbæ og erlendir rík­is­borg­arar þar eru, líkt og áður sagði, 4.270. Því eru 23 pró­sent íbúa Reykja­nes­bæjar erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það hlut­fall var 20 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár