Forgangsraða efnahagslegum hvötum á kostnað dýra í útrýmingahættu

Banda­ríska rík­is­stjórnin hefur kynnt nýjar breyt­ingar á lögum um verndun dýra í útrým­inga­hættu. Breyt­ing­arnar munu veikja lögin sem vernda slík dýr en auð­velda olíu­borun og borun fyrir gasi á svæðum sem dýrin hafa heim­kynni sín.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Donalds Trump, Banda­ríkja­for­esta, til­kynnti í gær að von væri á breyt­ingum á lögum um verndun dýra í útrým­inga­hættu. Breyt­ing­arnar munu veikja lögin sem til að mynda vernda skalla­erni, grá­birni og krókó­díla frá útrým­ing­ar­hættu, en myndu hins vegar auð­velda olíu­borun og borun fyrir gasi á svæðum sem dýrin hafa heim­kynni sín. Þetta kemur fram í frétt the New York Times.

Nýju lögin munu einnig gera sér­fræð­ingum erf­ið­ara að taka til­lit til lofts­lags­breyt­inga og áhrifa þeirra á dýra­líf varð­andi það hvort flokka eigi dýr sem dýr í útrým­ing­ar­hættu. Miklar líkur eru á því að svæðin sem dýrin hafa sem heim­kynni muni minnka.

[adspot]Auk hinna fyrr­nefndu dýra munu breyt­ing­arnar að öllum lík­indum hafa áhrif á ísbirni, seli, hegra og hvali sem dvelja á norð­ur­slóðum.

Umhverf­is­vernd­un­ar­sam­tök í Banda­ríkj­unum hafa gagn­rýnt breyt­ing­arnar og segja þær stofna dýr­unum í voða. Margir Repúblík­anar og stuðn­ings­menn Trump segja hins vegar að núver­andi lög hamli land­eig­endum, iðn­aði og efna­hags­vexti.

Í núgild­andi lögum eru ákvarð­anir um flokkun dýra í útrým­inga­hættu auk búsvæðis þeirra ein­ungis skil­greint á vís­inda­legum for­sendum. Með breyt­ing­unum munu efna­hags­legir þættir vega hátt þegar ákvarð­anir eru teknar um breyt­ingar á flokkun dýr­anna eða heim­kynna þeirra.

Ein milljón dýra í útrýmingahættu

Líf­fræði­leg­ur ­fjöl­breyti­leiki jarð­ar­innar er í gíf­ur­legri hættu vegna ágangs manna á nátt­úr­una á síð­ustu ára­tug­um. Nú eru alls fjórð­ungur dýra- og plöntu­teg­unda á jörð­inni í útrým­ing­ar­hættu eða allt að ein milljón teg­unda. Þetta kemur fram í nýrri og umfangs­mik­illi skýrslu á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna um stöðu líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika og vist­kerfi jarð­ar­inn­ar. 

Skýrslan er unnin af IP­BES, Inter­­­govern­­­mental Sci­ence-Poli­cy Plat­­­form on Biod­i­versity and Ecosy­­­stem Services, sem er stofn­unin á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna um líf­fræð­i­­legan fjöl­breyt­i­­leika og vist­­kerfi. Skýrslan er alls 1.800 blað­síður og var unnin af 450 vís­inda­mönn­um. Í skýrsl­unni er kallað eft­ir taf­ar­lausum­ að­gerðum og varað er við því að ef ekk­ert verði gert munu kom­andi kyn­slóðir finna fyrir þeim alvar­legu afleið­ingum sem hrun lífs­kerfa sem sjá mann­inum fyrir mat og hreinu vatni fela í sér.

Kate Brauman, einn höf­undur skýrsl­unn­ar, segir í sam­tali við BBC að skýrslan sýni fram á virki­lega for­dæma­lausa hnign­un líf­fræði­legs ­fjöl­breyti­leika og nátt­úru. „Þetta er alger­lega ólíkt nokkru sem við höfum séð í sögu mann­kyns­ins hvað varðar hraða hnign­un­ar­innar og umfang ógn­ar­inn­ar,“ segir Brauman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár