„Eitthvað annað“ heldur áfram að marka sér stað í íslenskri þjóðfélagsumræðu, sem eitt mikilvægasta hugtakið sem rætt er um.
Í upphafi kom þetta fram sem skilgreining á „einhverju öðru“ en álveri, þegar rætt var um atvinnuuppbyggingu. Eftir því sem tíminn hefur liðið er „eitthvað annað“ orðið að einhvers konar tákni fyrir alþjóðageirann, sem ekki á allt sitt undir auðlindanýtingu í landinu heldur öðru fremur hugviti fólks.
Gott dæmi um geira sem telst tilheyra „einhverju öðru“ er hugbúnaðargeirinn og þau fjölmörgu fyrirtæki innan hans, hér á landi, sem hafa verið að ná góðum árangri á alþjóðlegum mörkuðum. Í gær sögðum við frá stórum sölusamningi sem Gangverk gerði í Bandaríkjunum, upp á 325 milljónir króna, en það eru mörg fleiri nærtæk dæmi til um mikla grósku í þessum anga hagkerfisins.
Því meira af „einhverju öðru“, því betra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir