Gangverk selur hugbúnaðarleyfi að Sling í Bandaríkjunum fyrir 325 milljónir króna

Gangverk hefur gert samn­ing um sölu leyfa að Sling hug­bún­að­inum fyrir 325 millj­ónir króna. Samn­ing­ur­inn felur í sér að Sling verður hluti af vöru­fram­boði fyrir við­skipta­vini þeirra sem samn­ing­ur­inn var gerður við, en við­skipta­vin­irnir eru flestir veit­inga­staðir og versl­anir í Banda­ríkj­unum. Ekki fæst upp­gefið að svo stöddu við hvernig var samið, en við­skiptin hafa gengið í gegn nú þegar.

Helgi Her­manns­son, fram­kvæmda­stjóri Gang­verks, segir sölu­samn­ing­inn við­ur­kenn­ingu á góðu þró­un­ar­starfi starfs­manna Gang­verks og þörf­inni á skil­virkum far­síma­lausnum fyrir innri sam­skipti fyr­ir­tækja þar sem starfs­menn vinna á vöktum. Fyr­ir­tækið hefur verið með við­skipta­þróun í New York frá því í fyrra, og unnið að sölu- og þró­un­ar­starfi þar í sam­vinnu við við­skipta­vini.

Sling hug­bún­að­ur­inn er hann­aður og þró­aður af Gang­verki. Fyr­ir­tækið er leið­andi hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki í Reykja­vík í snjall­síma­lausnum. Ásamt því að þróa Sling þjón­ustar Gangverk líka við­skipta­vini félags­ins með hug­bún­að­ar­þróun eins og t.d. CBS Media, Sotheby's, Símann, RÚV, 365 og Össur.

Gangverk hóf að þróa Sling í lok árs 2014 og setti lausn­ina á markað í Júlí 2015. Þegar nota nokkur hund­ruð fyr­ir­tæki Sling í Banda­ríkj­unum, mest veit­inga­staðir og versl­anir þar á meðal Subway, Fridays og Dominos veit­inga­staðir, Holiday Inn Hotel, Rite Aid apó­tek ofl. Á Íslandi nota mörg fyr­ir­tæki Sling t.d. Gló, Kaffitár og 66N.

Sling er sam­skipta- og vakta­kerfi fyrir fyr­ir­tæki þar sem starfs­menn vinna á vöktum og nýt­ist vel t.d. fyrir versl­anir, veit­inga­staði, spít­ala, hótel ofl. Afar auð­velt er fyrir fyr­ir­tæki að byrja að nota lausn­ina. Þau stofna reikn­ing á www.getsling.com og bjóða starfs­mönnum sínum inn í kerfið, þannig verður til innra net hvers fyr­ir­tækis.

Sling er byggt í kringum fjóra megin hluta; vakta­kerfi, skila­boða­kerfi, frétta­veitu og verk­efna­lista kerfi. Sling er í stöðugri þróun og munu ýmsar spenn­andi við­bætur koma út á næst­unni.

Gangverk fékk 500 þús­und Banda­ríkja­dala sprota­fjár­fest­ingu, eða sem nemur um 70 millj­ónum miðað við núver­andi gengi, frá Nýsköp­un­ar­sjóði og Banda­rískum fjár­festum í lok árs 2014. Félagið hefur líka notið skatta­af­sláttar stjórn­valda vegna nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja og styrks frá Rannís. „Sam­an­lagt hefur þetta hjálpað félag­inu að ná árangri og gerir því kleift að fjölga starfs­mönnum á Íslandi,“ segir Helgi, en starfs­menn Gang­verks eru nú þrettán tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár