Flestir hafa miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum

Ný könnun Gallup sem unnin var fyrir Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin sýnir að flestir Íslend­ingar hafi miklar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum. Nokkur munur er á svörum eftir því hvaða flokk fólk hygg­ist kjósa.

Mikill meiri­hluti Íslend­inga hefur miklar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum í heim­inum ef marka má könnun Gallup sem gerð var fyrir Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands.

Spurt var: „Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af lofts­lags­breyt­ingum í heim­inum?“ Samtals sögð­ust 69,2 pró­sent svar­enda hafa miklar áhyggjur, 21,6 pró­sent sagð­ist hvorki hafa miklar áhyggjur né litlar og 9,1 pró­sent sagð­ist hafa litlar áhyggjur.

Heildarniðurstöður

Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af loftslagsbreytingum í heiminum?

Konur hafa frekar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum en karlar. 73 pró­sent kvenna höfðu miklar áhyggjur og 65 pró­sent karla.

Þá er mik­ill munur á afstöðu fólks eftir aldri. Þeir sem falla í yngsta ald­urs­hóp­inn, 18 til 24 ára, hafa mun meiri áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum en þeir sem eldri eru. 81 pró­sent yngsta fólks­ins sem tók þátt í könn­un­inni hefur miklar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum og 19 pró­sent þeirra segj­ast hvorki hafa miklar né litlar áhyggjur.

Einnig er mark­tækur munur á svörum eftir búsetu fólks. Þeir sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru lík­legri til þess að hafa áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum en þeir sem búa í öðrum sveit­ar­fé­lögum.

[adspot]

Kjósendur B, D og M hafa minnstar áhyggjur

Þegar svör þátt­tak­enda voru sett í sam­hengi við hvað fólk sagð­ist ætla að kjósa kom í ljós að kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins hafa minni áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum en kjós­endur ann­arra flokka.

Svör þeirra sem ætla að kjósa Framsóknarflokkinn

Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af loftslagsbreytingum í heiminum?

45 pró­sent þeirra sem ætla að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn sögð­ust hafa miklar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum. 46 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins sögðu það sama, þó hlut­fall Mið­flokk­skjós­enda sem sögð­ust hafa miklar áhyggjur var aðeins sex pró­sent. 58 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins segj­ast hafa áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum.

Svör þeirra sem ætla að kjósa Miðflokkinn

Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af loftslagsbreytingum í heiminum?

Svör þeirra sem ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn

Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af loftslagsbreytingum í heiminum?

Sé þetta sett í sam­hengi við afstöðu kjós­enda ann­arra flokka kemur í ljós nokkur munur. Til dæmis segj­ast 88 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar hafa miklar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum. Svipaða sögu má segja af kjós­endum Vinstri grænna. 81 pró­sent þeirra segj­ast hafa miklar áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum.

Svör þeirra sem ætla að kjósa Samfylkinguna

Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af loftslagsbreytingum í heiminum?

Svör þeirra sem ætla að kjósa Vinstri græn

Hversu miklar eða litlar áhyggjur hefur þú af loftslagsbreytingum í heiminum?

96 pró­sent þeirra sem hafa miklar áhyggjur af lofts­lags­málum segja stefnu stjórn­mála­flokka í lofts­lags­málum skipta miklu máli þegar ákveðið er hvaða stjórn­mála­flokk það mun kjósa í Alþing­is­kosn­ing­unum.

Könnunin var gerð dag­ana 11. til 20. októ­ber síð­ast­lið­inn. Fjöldi svar­enda var 756 manns úr úrtaki 1.402. Þátt­töku­hlut­fallið var þess vegna 53,9 pró­sent. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar má finna á vef Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár