Vill selja hluta Íslandsbanka til hæfra fjárfesta

Fjár­mála­ráð­herra segir allt benda til þess að ásætt­an­leg skil­yrði séu fyrir frek­ari sölu á hlutum í Íslands­banka miðað við núver­andi mark­aðs­að­stæður. Samkvæmt Banka­sýslu rík­is­ins ætti næsti sölu­á­fang­inn að vera í útboði til hæfra fjár­festa.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Skyn­sam­leg­ast væri að næsta skref í sölu Íslands­banka væri með útboði á hluta­bréfa­mark­aði, þar sem hæfir fag­fjár­festar fengju mögu­leika á að kaupa hluti í bank­anum á afslætti, sam­kvæmt Banka­sýslu rík­is­ins. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um frek­ari sölu á Íslands­banka sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Hagfelldar aðstæður til sölu

Í grein­ar­gerð­inni fer Bjarni yfir núver­andi aðstæður í efna­hags­líf­inu og á fjár­mála­mörk­uðum, auk þess sem sam­an­tekt er gerð á stöðu íslensku bank­anna. Samkvæmt honum bendir hraður efna­hags­bati, hærra hluta­bréfa­verð og aukin arð­semi Íslands­banka til þess að ásætt­an­leg skil­yrði séu nú fyrir frek­ari sölu á hlutum í bank­anum.

Sölu­með­ferðin yrði í höndum Banka­sýslu rík­is­ins, en Bjarni segir hana mæla með því að bank­inn yrði fyrst seldur með svoköll­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi. Slíkt fyr­ir­komu­lag fæli í sér að sölu­ráð­gjafar könn­uðu áhuga hæfra fjár­festa til að athuga áhuga þeirra á að taka þátt í útboði. Ef slíkur áhugi er til staðar hafa þeir mögu­leika á að kaupa hluta­bréf í bank­anum á gengi sem er nokkru undir mark­aðs­verði þeirra dag­inn fyrr. Samkvæmt Banka­sýsl­unni er þessi leið langoft­ast notuð þegar selja á stóra hluti í skráðum félögum á evr­ópskum hluta­bréfa­mark­aði.

Bjarni segir ástæðu þess að hæfir fjár­festar fái afslátt sé vegna þess að þeir kaupi stærri hlut í bank­anum en aðrir, auk þess sem óvissa sé um nákvæma þróun hluta­bréfa­verðs­ins á vik­unum eftir útboðið.

Hvað er hæfur fjárfestir?

Samkvæmt lögum verða fjár­festar sem hyggj­ast fara með virkan eign­ar­hlut í banka að stand­ast hæf­is­mat sem bygg­ist á ítar­legri grein­ingu og gagna­öflun. Þeir þurfa að hafa gott orð­spor og búa við sterka fjár­hags­stöðu, en auk þess ætti eign­ar­haldið ekki að tor­velda eft­ir­liti eða leiða til pen­inga­þvættis eða aðra ólög­lega starf­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár