Ráðherrar fá ráðleggingar vegna hættumerkja í hagkerfinu

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál hefur ákveðið að fela sér­fræð­ingum úr for­sæt­is­ráðu­neyti og fjár­mála­ráðu­neyti að greina stöð­una í íslensku efna­hags­lífi með til­liti til styrk­ingar krón­unnar og vax­andi hættu á ójafn­vægi í hag­kerf­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Sér­fræð­ingar ráðu­neyt­anna eiga að koma með til­lögur til að stemma stigu við þenslu­hættu og þeirri hættu sem steðjar að sam­keppn­is­hæfni þjóð­ar­bús­ins, segir í til­kynn­ing­unni. Þeir munu á næstu vikum funda með hags­muna­að­ilum til að varpa sem bestu ljósi á aðstæður og fá þeirra hug­myndir að úrbótum. Til­lög­urnar eiga að nýt­ast ráð­herra­nefnd­inni meðal ann­ars í umræðum um sam­still­ingu hag­stjórnar í Þjóð­hags­ráði.

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra sitja í ráð­herra­nefnd­inni um efna­hags­mál.

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að styrk­ing krón­unnar sé til marks um bætta stöðu Íslands. „Mikil spurn er eftir íslenskum vörum og þjón­ustu sem styrkir gengið og gerir Ísland að dýr­ari kosti. Þessi staða kallar á gam­al­kunnar hættur og krefst mik­ils aga í hag­stjórn. Styrking krón­unnar og veru­leg hækkun launa setur útflutn­ings­at­vinnu­vegi í vanda og rýrir sam­keppn­is­hæfni hag­kerf­is­ins. Hin jákvæðu skil­yrði sem leika nú umefna­hags­lífið geta því fljótt snú­ist upp í anhverfu sína. Þetta er mik­il­vægt að greina vel þegar líður að næstu skrefum í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta.“

Gengið styrkst gríðarlega

Gengi krón­unnar hefur styrkst mikið að und­an­förnu gagn­vart helstu við­skipta­myntum heims­ins. Gengi krón­unnar gagn­vart evr­unni hefur styrkst um ríf­lega 17 pró­sent á þessu ári, og um fjögur pró­sent á und­an­förnum mán­uði. Evran kostar nú 118,5 krónur en fyrir rúm­lega ári kost­aði hún 150 krónur og um mitt ár 2014 154 krón­ur.

Leita þarf aftur til fyrri­hluta árs 2008 til að finna sterk­ari stöðu krón­unnar gagn­vart evru heldur en nú er. Í júlí 2008 kost­aði evran 129 krónur en í febr­úar kost­aði hún 98 krón­ur. Eftir fall krón­unnar í mars­mán­uði 2008 var evran komin í 122 krónur og veikt­ist krónan svo jafnt og þétt fram að stjórn­lausu falli hennar eftir hrun bank­anna, í októ­ber 2008, og setn­ingu fjár­magns­hafta með lögum í nóv­em­ber sama ár. Þá kost­aði krónan 182 krón­ur.

Gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal hefur einnig styrkst nokkuð en hann kostar nú 114 krón­ur, en fyrir ári kost­aði hann 136 krón­ur.

Kjarninn fjall­aði nýlega ítar­lega um stöð­una í íslensku hag­kerfi, og lesa má þá frétta­skýr­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár