Óttarr Proppé orðinn formaður Bjartrar framtíðar - Brynhildur stjórnarformaður

Óttarr Proppé er nýr for­maður Bjartrar fram­tíðar. Hann var sjálf­kjör­inn í emb­ættið á árs­fundi flokks­ins sem fram fór í dag á Ásbrú í Reykja­nesbæ, enda einn í fram­boði.

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, gjald­keri og vara­þing­maður flokks­ins, var kjörin nýr stjórn­ar­for­maður hans og tekur við emb­ætt­inu af Margréti Mart­eins­dóttur. Margrét hafði verið kjörin í starfið í lok jan­úar síð­ast­lið­ins, eftir að Heiða Kristín Helga­dóttir, hætti sem slíkur.

[caption id="attachment_38238" align="align­right" width="210"] Bryn­hildur S. Björns­dóttir, nýr stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar.[/caption]

Margrét sótt­ist ekki eftir end­ur­kjöri og sat því ein­ungis rúma fimm mán­uði í emb­ætti. Þrír aðrir sótt­ust eftir því að verða stjórn­ar­for­menn Bjartrar fram­tíðar. Þeir eru Guðlaug Krist­jáns­dóttir, for­seti bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði og sveita­stjórn­ar­full­trúi flokks­ins þar, Preben Pét­urs­son (vara­þing­maður Bjartrar fram­tíðar) og Matthías Freyr Matth­í­as­son.

Guð­mundur Stein­gríms­son, annar stofn­andi Bjartrar fram­tíðar, hafði verið for­maður flokks­ins frá því að hann var stofn­aður árið 2012. Hann sótt­ist ekki eftir end­ur­kjöri í emb­ætti.

Fleiri breyt­ingar hafa orðið í for­ystu Bjartrar fram­tíðar síð­ustu daga. Í gær ákvað þing­flokkur flokks­ins að Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­maður hans, yrði þing­flokks­for­maður í stað Róberts Marshall, sem hafði beðist lausnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár