Samtök halda því ranglega fram að þriðji orkupakkinn veiti ACER vald til að knýja fram sæstreng

„Hvorki íslensk stjórn­völd eða Alþingi munu geta staðið gegn slíkri fram­kvæmd,“ segir á vef sam­tak­anna Orkunnar okkar þar sem nafn­greindum lög­fræð­ingum er eignuð skoðun sem þeir hafa hvergi haldið fram.

Samtök halda því ranglega fram að þriðji orkupakkinn veiti ACER vald til að knýja fram sæstreng
Vara við Frosti Sig­ur­jóns­son og Guðni Ágústs­son eru á meðal tals­manna hóps­ins Orkan okkar og hafa varað við inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Mynd: Skjáskot af Facebook og Youtube

Samtökin Orkan okkar sem berj­ast gegn þriðja orku­pakk­anum halda því fram á vef sínum að með inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans muni Íslend­ingar glata ákvörð­un­ar­vald­inu um lagn­ingu sæstrengs til Íslands. 

„ACER mun skera úr um hvort umsóknir um sæstreng til Íslands verði sam­þykktar. Hvorki íslensk stjórn­völd eða Alþingi munu geta staðið gegn slíkri fram­kvæmd,“ segir á vefnum. „Þess vegna m.a. töldu lög­fræð­ing­arnir Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst og Stefán Már Stef­áns­son í álits­gerð sinni til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að reglu­gerð 713/2009 sam­rým­ist ekki stjórn­ar­skrá Íslands.“

Þetta er rangt. Engin ákvæði í gerðum þriðja orku­pakk­ans veita ACER, hinni sam­evr­ópsku Sam­starfs­stofnun eft­ir­lits­að­ila á orku­mark­aði, vald til að ákveða hvort lagður verði sæstrengur milli Íslands og Evrópu eða ekki. Raunar mun hún ekki geta gefið íslenskum stjórn­völdum nein bind­andi til­mæli yfir höfuð. 

Val­heim­ildir sem ACER fer með innan Evr­ópu­sam­bands­ins verða í höndum Etir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) gagn­vart EFTA-ríkj­unum. 8. gr. reglu­gerðar nr. 713/2009 veitir ESA, undir sér­stökum kring­um­stæðum og að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum, vald til að taka laga­lega bind­andi ákvarð­anir um skilmála og skil­yrði fyrir aðgangi að og rekstr­aröryggi grunn­virkis yfir landa­mæri. ESA mun þó ekki fá neinar heim­ildir til að neyða Íslend­inga til að leggja eða leyfa sæstreng. Engin ákvæði í gerðum þriðja orku­pakk­ans gefa til­efni til að draga slíka ályktun. 

Skúli Magn­ús­sondós­ent við laga­deild HÍ.

Lög­fræð­ing­arnir Stefán Már Stef­áns­son og Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst árétta þetta raunar sér­stak­lega í álits­gerð sinni um stjórn­skipu­leg álita­mál varð­andi þriðja orku­pakk­ann. „Þriðji orku­pakk­inn leggur enga skyldu á aðild­ar­ríki um að koma á fót raf­orku­teng­ingu/grunn­virkjum yfir landa­mæri,“ skrifa þeir. Þannig er full­yrð­ingin um við­horf þeirra á vef Orkunnar okkar röng. 

Skúli Magn­ús­son, hér­aðs­dóm­ari og dós­ent við laga­deild HÍ, er sama sinnis og þeir hvað þetta varðar. Í álits­gerð sinni um stjórn­skipu­leg álita­mál varð­andi þriðja orku­pakk­ann segir hann „hafið yfir vafa að afleiddur réttur sam­bands­ins, þ.á m. umræddar gerðir þriðja orkapakk­ans, fela ekki í sér skyldu til slíkrar fram­kvæmdar eða til skyldu til að leyfa þær“ auk þess sem „heim­ildir Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA/Sam­starfs­stofn­un­ar­innar bein­ast ekki að ákvörðunum um slíkar fram­kvæmdir“. 

Fleiri rangar full­yrð­ingar eru settar fram á vef Orkunnar okkar. Þar segir til dæmis: „Verði þriðji orku­mark­aðslaga­bálkur ESB inn­leiddur, taka ákvæði fjór­frelsis EES mark­að­ar­ins gildi.“ Hið rétta er að meg­in­reglur EES-samn­ings­ins um fjór­frelsið gilda nú þegar um íslenskan raf­orku­markað og breytir þriðji orku­pakk­inn engu um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár