Yfirlæknir fæðingaþjónustu segir „óskynsamlegt“ að hunsa ráðleggingar

„Það eru tvö líf í húfi þegar þunguð kona flýgur,“ segir starf­andi yfir­læknir fæð­inga­þjón­ustu Land­spít­al­ans. Hún segir lækna deild­ar­innar ekki gefa út vott­orð af ástæðu­lausu. Alvar­legt sé ef ekki sé tekið mark á leið­bein­ingum frá læknum Land­spít­al­ans.

Yfirlæknir fæðingaþjónustu segir „óskynsamlegt“ að hunsa ráðleggingar
Ólétta konan Læknir á kvenna­deild sagði hana eiga „erfitt með langt flug“, en Útlend­inga­stofnun sagði ekk­ert hafa komið fram um að „flutn­ingur við­kom­andi úr landi myndi stefna öryggi hennar í hættu“. Mynd: No Boders

„Það er ein­hver ástæða fyrir því að gefið var út vott­orð hjá okkur og það er óskyn­sam­legt að fara ekki eftir þeim ráð­legg­ingum,“ segir Eva Jón­as­dóttir, starf­andi yfir­læknir fæð­inga­þjón­ustu Land­spít­al­ans. „Það eru tvö líf í húfi þegar þung­aðar konur eru að fljúga og ef þeim er ráð­lagt að gera það ekki fylgir því ákveðin áhætta.”

Íslenskir lög­reglu­menn fylgdu 26 ára konu, sem er gengin 36 vikur á leið, úr landi í morgun með flug­vél Icelandair. Ekki var tekið til­lit til vott­orðs frá lækni á kvenna­deild Land­spít­al­ans um að hún sé slæm af stoð­kerf­is­verkjum og gæti átt erfitt með langt flug. Sjón­ar­vottar hafa lýst því að kon­unni hafi verið mikið niðri fyrir nótt, hún verið stressuð og þá hafi byrjað að blæða mikið úr nefi.

Spurð að því hvernig læknar á Kvenna­deild Land­spít­al­ans líti á þá stað­reynd að frekar hafi verið tekið mark á lækni Útlend­inga­stofn­unar en lækni á Kvenna­deild Land­spít­al­ans segir Eva: „Maður myndi ætla að það ætti að líta á og taka mark á nýjasta vott­orð­inu,“ segir hún. „Vottorð frá læknum sem hitta kon­una og skoða hana ætti að sjálf­sögðu að vega þyngra en eldra lækn­is­vott­orð, eða vott­orð frá mann­eskju sem ekki hefur hitt hana, því erfitt er að meta stöð­una á öðru en að hitta við­kom­andi. Auðvitað er það alvar­legt ef ekki er tekið mark á því sem sér­fræð­ingar hérna segja.“

Hún tekur það fram að hún hafi ekki verið á vakt í nótt, þegar fjöl­skyldan dvaldi á spít­al­anum, auk þess að hún geti ekki tjáð sig um ein­stök mál. „En almennt ráð­leggjum við konum ekki að fljúga eftir að þær eru gengnar á bil­inu 35-36 vikur. Rétt rúm­lega 5% kvenna fæða börn sín fyrir 37 vik­urnar, þannig að þó að lík­urnar séu ekki miklar eru þær vissu­lega fyrir hendi. Lík­am­legt og and­legt álag getur haft áhrif þar á, þó erfitt sé að full­yrða um hvað kemur fæð­ingu af stað. Mikið álag hjálpar ekki til, ef þú ert við­kvæm fyrir.“

„Það er erfitt að lifa í óvissu með ófætt barn“

Eva segir að vax­andi hópur kvenna í hópi hæl­is­leit­enda og flótta­fólks leiti á Kvenna­deild Land­spít­al­ans og til heilsu­gæsl­unnar eftir aðstoð. Oft sé fólkið undir miklu álagi. „Já, oft eru þau undir álagi, enda vita þessar konur oft ekki hver verða þeirra næstu skref. Það er erfitt að lifa í óvissu með ófætt barn,“ segir Eva. Konur séu eins mis­jafnar og þær eru margar og því geti hún fátt sagt um lík­am­legt ástand konunna sem send var úr landi. „Það þarf ekki lækni til þess að segja að það mik­il­væg­asta fyrir konu sem gengin er 36 vikur, þegar stytt­ist í fæð­ingu, er að búa við ró og öryggi og að vita hvað fram­tíðin ber í skauti sér, til dæmis hvar hún fæðir barnið sitt. Því miður er því ekki fyrir að fara hjá þessum hópi.“

Útlend­inga­stofnun hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kemur fram að stoð­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra hafi fengið vott­orð frá lækni á heilsu­gæsl­unni á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að konan væri ferða­fær. „Við­kom­andi leit­aði síðan sjálf til læknis á kvenna­deild Land­spít­al­ans þar sem gefið var út annað vott­orð og stoð­deild fékk afrit af. Í því vott­orði kom ekk­ert fram um að flutn­ingur við­kom­andi úr landi myndi stefna öryggi hennar í hættu og því var fyr­ir­hug­uðum flutn­ingi ekki frestað.“

Stundin hefur vott­orðið undir höndum. Í því kemur fram: „Það vott­ast hér með að _____________ er ófrísk og gengin skv. síð­ustu tíðum 35 vikur og 5 daga. Hún er slæm af stoð­kerf­is­verkjum í baki og ætti erfitt með langt flug.“

Undir vott­orðið skrifar læknir á kvenna­deild Land­spít­al­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár