Borgin hyggst styrkja Borgarleikhúsið um allt að 78 milljónir vegna COVID-19

Borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti á fundi sínum í vik­unni að styrkja Borg­ar­leik­húsið og Tjarn­ar­bíó um allt að 83 millj­ónir króna vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­ur­ins.

Borgarleikhúsið sagði upp 8 starfsmönnum um síðustu mánaðamót.
Borg­ar­leik­húsið sagði upp 8 starfs­mönnum um síð­ustu mán­aða­mót. Mynd: Borgarleikhúsið

Reykja­vík­ur­borg ætlar sér að veita Leik­fé­lagi Reykja­víkur allt að 78 millj­óna króna stuðn­ing, til þess að koma til móts við hluta af því tapi sem Borg­ar­leik­húsið hefur orðið fyrir vegna COVID-19 og aðgerðir leik­húss­ins og rík­is­ins ná ekki yfir. 

Þá ætlar borgin sömu­leiðis að veita Tjarn­ar­bíói 5 milljón króna styrk til þess að mæta afleið­ingum far­ald­urs­ins. Báðar þessar til­lögur voru sam­þykktar á fundi borg­ar­ráðs á fimmtu­dag­inn og bíða sam­þykktar borg­ar­stjórnar.

Í bókun borg­ar­ráðs­full­trúa meiri­hluta­flokk­anna fjög­urra í borg­inni segir að Borg­ar­leik­húsið sé ein mik­il­væg­asta menn­ing­ar­stofnun lands­ins og að tekjur þess hafi hrunið í heims­far­aldr­inum.

Styrkur borg­ar­innar til leik­hús­anna gæti orðið lægri en þessar sam­tals 83 millj­ónir sem talað er um í til­lög­unum, en í til­felli Borg­ar­leik­húss­ins mun borgin veita 50 millj­ónum til leik­fé­lags­ins í des­em­ber 2020 og svo stendur til að greiða út 28 millj­ónir til við­bótar þegar upp­gjör í febr­úar 2021 liggur fyrir.

„Á tíma­bil­inu mun leik­fé­lagið veita borg­inni reglu­lega upp­lýs­ingar um upp­gjör og stöðu mála. Verði nið­ur­staða rekstrar betri en ráð­gert er, lækkar fram­lag í sam­ræmi við það,“ segir í bókun full­trúa meiri­hlut­ans um málið. Svipað eru uppi á ten­ingnum í til­felli Tjarn­ar­bíós, sem mun fá tveggja millj­óna króna styrk á þessu ári, en að þrjár millj­ónir skipt­ist svo niður á fyrstu sex mán­uði næsta árs.

„Á tíma­bil­inu mun félagið veita borg­inni mán­að­ar­lega upp­lýs­ingar um upp­gjör og stöðu mála. Verði sam­komu­tak­mark­anir rýmkaðar og tekjur meiri en ráð­gert er lækkar fram­lagið í takt við það,“ segir í til­lög­unni.

Hafa orðið af meira en helmingi tekna

Bannað er að stunda sviðs­listir á Íslandi um þessar mundir og tekjur leik­hús­anna markast af því. Núna fyrir mán­aða­mót voru sagðar fréttir af því að Borg­ar­leik­húsið hefði sagt upp átta starfs­mönnum þvert á deildir.

Í tölvu­pósti sem Borg­ar­leik­húsið sendi öllum starfs­mönnum vegna upp­sagn­anna kom fram að reynt hefði verið eftir fremsta megni að vernda störf og standa vörð um rekstur leik­húss­ins, sem hefði þó orðið af um 60 pró­sent tekna sinna, sem væri stór biti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár