Viðreisn vaknar: skorar á Alþingi að setja ESB í þjóðaratkvæði

Fundur stuðn­ings­manna Við­reið­snar sem haldin var í dag „lýsir miklum von­brigðum með aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi umsókn Íslands um fulla aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stjórn­mála­vett­vangnum.

Þar segir einnig að sífellt sé leitað leið til að spilla fyrir mögu­leikum til þess að ná nið­ur­stöðu í við­ræðum við sam­bandið í stað þess að standa við gefin lof­orð um að vísa mál­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Fund­ur­inn skorar á Alþingi að ákveða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið svo fljótt sem verða má. Næstu Alþing­is­kosn­ingar munu snú­ast um það hvort þjóðin vill stjórn­mála­menn sem standa við gefin lof­orð eða hina sem telja sig ekki bundna af þeim nema fram að kjör­degi. Þess vegna er nauð­syn­legt að nýtt, heið­ar­legt, frjáls­lynt og mark­aðs­sinnað afl leiði rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar til Alþingis.“

Fjársterkir aðilar sem vinna markvisst að framboði


Við­reisn­ar­hóp­ur­inn skil­greinir sig sem nýtt frjáls­lynt, alþjóða­sinnað stjórn­mála­afl, sem stað­setur sig hægra megin við miðju. Frá því snemma á síð­asta ári hefur hópur fólks unnið að því að und­ir­búa far­veg­inn fyrir fram­boð flokks­ins. Hópurinn er mjög hlynntur aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og margir Evr­ópu­sinn­aðir fyrrum sjálf­stæð­is­menn hafa verið áber­andi í honum. Þeirra á meðal eru Benedikt Jóhann­es­son, Helgi Magn­ús­son, Þor­steinn Pálsson, Þórður Magn­ús­son, Vil­hjálmur Egilsson, Sveinn Andri Sveins­son og Jórunn Frí­manns­dóttir svo fáeinir séu nefndir. Þá hefur Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrrum vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ítrekað verið nefnd sem mögu­legur for­ystu­maður í hinu nýja fram­boði.

[caption id="attachment_12146" align="alignnone" width="620"] Helgi Magn­ús­son, n, fjár­festir og
áhrifa­maður innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins,
er einn þeirra
sem hefur tengst vinnu við nýtt fram­boð.[/caption]

Í íta­legri frétta­skýr­ingu um hóp­inn, sem síðan hefur kennt sig við Viðreisn, í Kjarn­anum í apríl í fyrra kom fram að hann ætli sér ekki að verða eins stefnu­máls vett­vangur, þrátt fyrir að það sé að mynd­ast í kringum and­stöðu við slit á við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Þvert á móti verður lögð áhersla á að bjóða upp á stóran stefnu­mála­pakka og breiða fylk­ingu fólks af fólki af báðum kynjum úr ýmsum stéttum þegar af fram­boði verður.

Hópurinn sem stendur að baki þessum hug­myndum er mjög fjár­sterkur. Hluti hans hefur styrkt Sjálf­stæð­is­flokk­inn mynd­ar­lega und­an­farin ár og ára­tugi. Þeim styrk­veit­ingum er nú að mestu lokið. Við­mæl­endur Kjarnans í fyrra sögðu að í und­ir­bún­in­ingi væri tvenns konar ferlar að fram­boði, enda skipti tíma­setn­ing öllu. Fyrri fer­ill­inn, „Plan A“, miðar við að kosn­ingar verði eftir að kjör­tíma­bil­inu lýkur. Sá síð­ari, „Plan B“, miðar við að hægt verði að setja saman og manna fram­boð á nokkrum vikum ef póli­tíski veru­leik­inn verði sitj­andi rík­is­stjórn ofviða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár