Jökulsárlón hefur verið friðlýst og fellt inn í Vatnajökulsþjóðgarð

Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra frið­lýsti Jök­ulsár­lón og nær­liggj­andi sveitir.

Björt Ólafsdóttir við Jökulsárlón í dag.
Björt Ólafs­dóttir við Jök­ulsár­lón í dag. Mynd: Umhverfisráðuneytið

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, und­ir­rit­aði í dag frið­lýs­ingu Jök­ulsár­lóns og umfangs­mik­illa svæða sem liggja að lón­inu. Um leið er svæðið fellt inn í Vatna­jök­uls­þjóð­garð.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Stað­fest­ingin á frið­lýs­ing­unni fór fram á bökkum Jök­ulsár­lóns í dag.

Nokkur styr hefur staðið um þessa frið­lýs­ingu enda tekur hún til jarð­ar­innar Fells í Suð­ur­sveit og nær­liggj­andi þjóð­lenda. Ríkið gekk frá kaupum á Felli í vetur. „Jörðin Fell nær yfir Jök­ulsár­lón að hluta og á landa­merki að þjóð­lendum vestan vegna lóns­ins og norð­austur af Felli. Með frið­lýs­ing­unni nú eru þessi svæði felld inn í Vatna­jök­uls­þjóð­garð, alls um 189 fer­kíló­metrar. Er Vatna­jök­uls­þjóð­garður þar með 14.141 fer­kíló­metrar að flat­ar­máli,“ segir í til­kynn­ingu umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins.

Sérstaðan mikilvæg

Ástæður þess að talið var nauð­syn­legt að frið­lýsa svæðið og fella inn í þjóð­garð­inn er sér­staða svæð­is­ins. „Það er mótað af fram­gangi og hopun jökla og ein­kenn­ist af sér­stæðum jök­ul­öldum,“ segir enn fremur í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins. „Ein helsta nátt­úruperla svæð­is­ins er Jök­ulsár­lón sem er stærsta og þekktasta jað­ar­lón á land­inu.“

Innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs­ins verður stjórnun og verndun svæð­is­ins betur sam­ræmd, m.a. hvað varðar umgengni og öryggi ferða­manna. Ráðu­neytið segir að framundan séu krefj­andi verk­efni við upp­bygg­ingu inn­viða og land­vörslu á svæð­inu.

Enn­fremur er frið­lýs­ingin liður í því að koma Vatna­jök­uls­þjóð­garði á nátt­úru­minja­skrá UNESCO.

Friðlýsta svæðið er merkt rauðum ramma

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár