Arion banki hagnast um 14,4 milljarða

For­stjóri Arion banka segir spenn­andi tíma framundan hjá Arion banka. Efna­hags­líf lands­ins er í blóma og bank­inn mun halda áfram að fram­þróa sína starf­semi og þjón­ustu, segir hann.

Hagnaður sam­stæðu Arion banka á árinu 2017 nam 14,4 millj­örðum króna sam­an­borið við 21,7 millj­arða króna árið 2016. Arðsemi eigin fjár var 6,6% en var 10,5% á árinu 2016, að því er segir í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Hösk­uldur Ólafsson, for­stjóri bank­ans, segir rekstur bank­ans hafa gengið vel, og ánægju­legt sé að fá inn­lenda aðila inn í hlut­hafa­hóp bank­ans. „Afkoma árs­ins 2017 er við­un­andi þótt ein­skipt­is­at­burðir setji nokkurn svip á árið. Grunn­rekstur bank­ans er góður, tekju­grunnur er sterkur og fjár­hags­legur styrkur mik­ill. Þetta gerir bank­anum kleift að ráð­ast í sér­staka arð­greiðslu að fjár­hæð 25 millj­arðar króna sem ákveðin var á hlut­hafa­fundi 12. febr­úar síð­ast­lið­inn. Arð­greiðslan er í sam­ræmi við það mark­mið bank­ans að hag­ræða eig­in­fjár­hlut­falli sínu á þann veg að það verði í meira sam­ræmi við erlenda og inn­lenda banka. Þrátt fyrir arð­greiðslu þá er eig­in­fjár­staða bank­ans sterk og vel umfram kröfur eft­ir­lits­að­ila.

Þá er arð­greiðslan liður í aðgerðum sem tengj­ast sölu­ferli bank­ans en við gerum ráð fyrir að það muni setja mark sitt á árið 2018. Skráning bank­ans á markað, hér á landi og jafn­vel erlendis, er einn af þeim kostum sem til skoð­unar er. Líkur eru á að ákvörðun um næstu skref verði tekin á næstu vikum og mán­uðum. „Í mars­mán­uði 2017 voru fyrstu skrefin í sölu­ferli bank­ans tekin er þrír alþjóð­legir fjár­fest­ing­ar­sjóðir og fjár­fest­ing­ar­bank­inn Goldman Sachs komu inn í hlut­hafa­hóp Arion banka. Seljandi var Kaupþing, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Kaupskil, sem seldi um 30% hlut í bank­anum. Fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir Attestor Capital og Taconic Capital Advisors voru þar stærstir og eign­uð­ust hvor um sig tæp 10% í bank­anum. Attestor Capital jók síðar hlut sinn lít­il­lega eftir að Fjár­mála­eft­ir­litið mat sjóð­inn hæfan til að fara með virkan eign­ar­hlut. Fyrr í dag var svo til­kynnt um sölu Kaup­þings á um 5% hlut í bank­anum til Attestor Capital, Goldman Sachs og sjóða í rekstri fjög­urra íslenskra sjóða­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja. Það er sér­stak­lega ánægju­legt að fá inn­lenda fjár­festa inn í hlut­hafa­hóp­inn,“ segir hann meðal ann­ars í til­kynn­ingu.

Heild­ar­eignir Arion banka námu 1.147,8 millj­örðum króna í árs­lok sam­an­borið við 1.036,0 millj­arða króna í árs­lok 2016 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 225,6 millj­örðum króna, sam­an­borið við 211,2 millj­arða króna í árs­lok 2016.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 24,0% í árs­lok en var 26,8% í árs­lok 2016.

Hlutfall almenns eig­in­fjár­þáttar 1 lækk­aði og nam 23,6% sam­an­borið við 26,1% í árs­lok 2016. Lækkun frá fyrra ári kemur einkum til vegna 25 millj­arða króna arð­greiðslu eða kaupa á eigin bréfum, sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi 12. febr­úar sl. og fram­kvæmd verður á næstu vikum.

Í til­kynn­ing­unni segir að Arion banki hafi sett sér það marka­mið að vera með útlána­vöxt, sem sé umfram almennan vöxt í hag­kerf­inu, og að það hafi tek­ist á árinu 2017. Vöxt­ur­inn hafi verið um 7 pró­sent, og meðal ann­ars hafi bank­anum tek­ist að halda vaxt­ar­mark­miðum í fast­eigna­lánum, þrátt fyrir vax­andi sam­keppni frá líf­eyr­is­sjóðum.

Hösk­uldur fjallar einnig um erf­ið­leika United Silicon, en bank­inn hefur þegar afskrifað um 5 millj­arða vegna gjald­þrots þess og erf­ið­leika. Hann segir ánægju­legt að finna fyrir því, að bank­inn muni geta komið eignum í verð. „Erf­ið­leikar og gjald­þrot kís­il­verk­smiðju United Silicon setti mark sitt á afkomu árs­ins en nið­ur­færslur Arion banka á lánum og fjár­fest­ingu í félag­inu námu um 4 millj­örðum króna að teknu til­liti til skatta­á­hrifa. Það stóð ekki til að bank­inn yrði hlut­hafi í félag­inu en eftir því sem erf­ið­leikar þess juk­ust varð bank­inn að stíga inn, m.a. í formi hluta­fjár­aukn­ingar. Arion banki hefur óskað eftir því við skipta­stjóra þrota­bús­ins að ganga að veðum bank­ans í félag­inu með það að mark­miði að gera nauð­syn­legar úrbætur á verk­smið­unni og selja hana eins fljótt og auðið er. Það er jákvætt að við verðum vör við mik­inn áhuga á kís­il­verk­smiðj­unni meðal alþjóð­legra aðila í kís­il­iðn­aði,“ segir Hösk­uldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár