Breytingar á byggingum gætu kallað á nýja útreikninga

Loft­dreifi­meng­un­ar­tölur fyrir verk­smiðju United Silicon eru hugs­an­lega gall­aðar. Mikil lykt­ar­mengun var frá verk­smiðj­unni í þann tíma sem hún starf­aði.

Verksmiðja United Silicon í Helguvík hefur ekki fengið að starfa síðan í vor vegna mikillar mengunar frá verksmiðjunni og of lítilla úrbóta.
Verk­smiðja United Silicon í Helguvík hefur ekki fengið að starfa síðan í vor vegna mik­illar meng­unar frá verk­smiðj­unni og of lít­illa úrbóta.

Ekki er ljóst hvort breytt til­högun bygg­inga á lóð United Silicon hefur á áhrif á loft­dreif­ingu frá verk­smiðj­unni.

Síð­ast­liðið vor var greint frá því að nýrri bygg­ingu hafi verið bætt inn í skipu­lag lóð­ar­innar í Helguvík tveimur og hálfu ári eftir að skýrsla um umhverf­is­mat vegna fram­kvæmd­anna var kynnt.

Skipu­lags­stofnun hafði ekki verið til­kynnt um þessa við­bót og óskaði eftir skýr­ingum frá bæj­ar­yf­ir­völdum í Reykja­nesbæ. Þær skýr­ingar feng­ust loks að svo virt­ist sem að mis­tök hefðu verið gerð þegar breyt­ingar á teikn­ingum af verk­smiðj­unni voru sam­þykktar, þvert á umhverf­is­mat og þau lof­orð sem gefin höfðu verið.

Í sam­tali við Kjarnann segir Karen Kjart­ans­dóttir, tals­maður United Silicon, að óháðir eft­ir­lits­að­ilar kanni hvort breytt skipu­lag á lóð­inni í Helguvík hafi kallað á nýtt meng­un­ar­dreifi­líkan. Í gögnum frá Skipu­lags­stofnun segi að ekki sé ljost hvort eða hvernig breytt umfang mann­virkja hafi á reikn­ing­ana en miklar mæl­ingar hafi verið gerðar á svæð­inu og eft­ir­lits­stofn­anir fari yfir þetta mál ef þörf þykir á.

Í umhverf­is­mati fram­kvæmd­anna var lítið sem ekk­ert fjallað um lykt­ar­mengun frá verk­smiðj­unni. Umhverf­is­stofnun segir að það atriði hafi verið van­reifað í umhverf­is­mat­inu. Lykt­ar­mengun hafi hins vegar ekki verið vanda­mál í nágrenni sam­bæri­legra verk­smiðja ann­ars staðar í heim­inum.

Magnús Garð­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon, er einnig grun­aður um að hafa falsað reikn­inga og náð þannig yfir hálfum millj­arði króna út úr fyr­ir­tæk­inu. Magnús starf­aði áður hjá COWI í þrjú ár eða til árs­ins 2003.

Mikil lykt­ar­mengun var af verk­smiðj­unni í þann skamma tíma sem hún var starf­rækt. Umhverf­is­stofnun lét loka verk­smiðj­unni í haust vegna mik­illar meng­unar frá starf­sem­inni. Mengunin hafði verið svo mikil, frá því að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, þáver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, gang­setti ljós­boga­ofn­inn í fyrsta sinn 13. nóv­em­ber 2016, að íbúar í nágrenn­inu efndu til mót­mæla. Fjöl­margar kvart­anir höfðu borist til yfir­valda vegna lykt­ar­meng­unar frá verk­smiðj­unni.

Uppfært og leið­rétt 15:03, 30.9.1017: Fréttin hefur verið leið­rétt og henni breytt. Beðist er vel­virð­ingar á mis­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár