Bjarni lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar um að það hafi verið rangt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi lofað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði að það væri rangt að hann eða flokkur hans hefði lofað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald aðild­ar­við­ræðna að Evr­ópu­sam­band­inu í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga 2013. Þetta kom fram í leið­togaum­ræðu­þætti á RÚV í gær­kvöldi.

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, sagði þar að sá sem stæði vinstra megin við hann í umræð­unum, Bjarni Bene­dikts­son, hafi lofað „rétt fyrir kosn­ingar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni berj­ast fyrir því að verði kosið um Evr­ópu­sam­bands­að­ild á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins. Þetta var svo heil­agt lof­orð að það var sér­stak­lega tekið fram: Og við það munum við standa.“

Bjarni svar­aði: „Þetta er bara rangt að þetta hafi verið helsta lof­orð okkar. Okkar lof­orð hefur staðið til þess að halda Íslandi utan Evr­ópu­sam­bands­ins[...] Í kjarn­ann vorum við að segja það að við vorum viljug til að beita þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum til að höggva á hnúta.“

[adspot]

Kjarninn ákvað að kanna hvort sú full­yrð­ing Bjarna, að það sé rangt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og hann hafi lofað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu - heldur hafi lof­orðið staðið um að halda Íslandi utan Evr­ópu­sam­bands­ins - í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, eigi við rök að styðj­ast.

Oddvitar lofa þjóðaratkvæðagreiðslu

Þann 10. mars 2013 mætti Illugi Gunn­ars­son, annar leið­togi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, í umræðu­þátt­inn Silfur Egils. Þar sagð­ist hann vilja stöðva við­ræður um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, en ekki hægja á eða gera hlé á þeim. „Og síðan verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla og þjóðin fái að segja sig hug hvort hún vilji klára þetta eða ekki. Ef það er þannig að þjóðin segir já við því, þá eru allir menn og allir flokkar bundnir af þeirri nið­ur­stöðu.“

17. mars mætti hinn odd­viti flokks­ins í Reykja­vík, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, í Silfur Egils og sagði að sá tíma­punktur sem þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu ætti að fara fram væri á næsta kjör­tíma­bili. „Að sjálf­sögðu mun Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn standa við það að þjóðin fái að ráða hvort það verði gengið lengra í þessu máli. Það er þjóð­ar­innar en ekki ein­stakra stjórn­mála­manna.“

Í apríl var Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, þáver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi, mætt í kosn­inga­sjón­varp RÚV og fékk þar spurn­ingu um áfram­hald­andi við­ræður. Þar sagði hún að það sem henni þætti mestu máli skipta „er að þjóðin fái að greiða um það atkvæði hvort að þessu verði haldið áfram eða ekki. Ég treysti þjóð­inni til þess að taka upp­lýsta ákvörðun vegna þess hversu mikið ágrein­ings­mál þetta er milli flokka, milli þjóð­ar­innar, milli lands­byggðar og höf­uð­borgar. Þetta fer í gegnum fjöl­skyldur. Eina leiðin til þess að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvert skuli halda núna er að spyrja þjóð­ina“.

Enn einn odd­vit­inn, Kristján Þór Júl­í­us­son úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi, mætti í kosn­inga­sjón­varp Stöðvar 2 18. apríl 2013 og sagði að, líkt og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði lýst yfir, „að hann telur að við eigum að bera það undir þjóð­ina á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins hvort við eigum ekki að halda þessu ferli áfram eða ekki.“

23. apríl, í kosn­inga­sjón­varpi Stöðvar 2, sagði Illugi síðan að á stórum fundi á Nordica hót­eli ein­hverjum vikum áður, sem 500-600 manns hefðu verið á, þá hafi Bjarni Bene­dikts­son sagt nákvæm­lega hvað lof­orð Sjálf­stæð­is­manna í mál­inu þýddi. „Það þýddi það að þessum við­ræðum verður hætt, það er að segja að við munum ekki halda áfram þessu aðlög­un­ar­ferli, en síðan, og hann nefndi sér­stak­lega fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins, myndi fara fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla. Það væri hans skoðun, þannig hef ég alltaf skilið þetta og mér finnst þetta vera býsna skýrt.“

Bjarni lofar þjóðaratkvæðagreiðslu

Bjarni Bene­dikts­son lét ekki sitt eftir liggja við að tjá sig um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu. Í fréttum Stöðvar 2 í aðdrag­anda kosn­inga 2013 sagði Bjarni: „Í Evr­ópu­sam­bands­mál­inu þá munum við standa við það sem við höfum ályktað um að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla. Hún gæti farið fram á fyrri hluta þessa kjör­tíma­bils til dæmis í tengslum við sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, en við munum standa við það að hlusta eftir því sem fólkið í land­inu vill.“

Þann 23. mars 2013 sagði Bjarni í við­tali við RÚV: „Ég tel að að sé vel raun­hæft að gera þetta á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins næsta[...]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um þetta mál.“

Þann 24 apríl 2013, þremur dögum fyrir kosn­ingar, var Bjarni í við­tali við Frétta­blaðið. Þar sagði hann: „Ég er sjálfur þeirrar skoð­unar að við eigum ekki að ganga í Evr­ópu­sam­bandið og greiddi atkvæði gegn umsókn, en við höfum haft það sem hluta af okkar stefnu að opna fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu til að útkljá þetta mál og við munum standa við það“.

Í kosn­inga­sjón­varpi Stöðvar 2 nokkrum dögum fyrir kosn­ingar sagði Bjarni að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði opnað fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Ég tel rétt að stefna að henni á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins. Ég er opinn fyrir því að nýta þjóð­ar­at­kvæði til þess að leiða fram þjóð­ar­vilj­ann í þessu máli.“

Á fundi VÍB í aðdrag­anda kosn­inga 2013 þar sem leið­togar allra stjórn­mála­flokka voru spurði stjórn­andi fund­ar­ins, frétta­mað­ur­inn Þorbjörn Þórð­ar­son, bæði Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og Bjarna hvort að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald við­ræðna yrði haldin, kæmust þeir til valda. Sig­mundur Davíð sagði: „Það held ég að hljóti að vera.“

Bjarni sagði að hann hefði margoft tekið það fram að sér þætti „það mjög gott og æski­legt ef hægt yrði að halda þessa þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins.“

Þorbjörn sagði þá: „Gott og æski­legt, en ekki að þetta verður gert?“ Sig­mundur Davíð svar­aði þá til: „en með sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, hvernig líst þér á það?“

Þegar Sig­mundur Davíð og Bjarni kynntu rík­is­stjórn­ar­sam­starf sitt á Laug­ar­vatni að loknum kosn­ingum spurði frétta­maður á staðnum: „Getum við treyst því að það verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald­andi við­ræður?“

Sig­mundur Davíð svar­aði: „Að sjálf­sögðu kemur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Hægt er að sjá mynd­band af ofan­greindum ummælum hér að neðan:

Niðurstaða Staðreyndarvaktarinnar

Fjórir af þeim sex þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem leiddu kjör­dæmi flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar lof­uðu því að áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu yrði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á kjör­tíma­bil­inu sem nú er að líða. Allir fjórir urðu síðar ráð­herrar í þeirri rík­is­stjórn sem tók við völdum vorið 2013. Engir fyr­ir­varar um meiri­hluta á Alþingi, meiri­hluta innan rík­is­stjórnar eða sýni­legan þjóð­ar­vilja í skoð­ana­könn­unum voru settir fram. Bjarni Bene­dikts­son sagði það oftar en nokkur annar Sjálf­stæð­is­maður að þjóð­ar­at­kvæðið myndi fara fram og að flokkur hans myndi standa við það. 

Bjarni sagði reyndar líka að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi hlusta eftir því sem fólkið í land­inu vildi.

Frétta­blaðið fram­kvæmdi skoð­ana­könnun nokkrum dögum fyrir kosn­ing­arnar 2013 þar sem spurt var: Hvernig vilt þú að fram­haldi aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið verði háttað?

Af þeim sem tóku afstöðu sögð­ust 34 pró­sent vilja draga umsókn­ina til baka en 55 pró­sent vildu klára við­ræð­urnar og leggja samn­ing­inn í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í jan­úar 2014 fram­kvæmdi Maskína skoð­ana­könnun fyrir sam­tökin Já Ísland. Nið­ur­staða hennar var sú að 67,5 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu vildu að haldin yrði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­hald aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bandið en 32,5 pró­sent ekki. Frétta­blaðið birti nið­ur­stöðu ann­arrar slíkrar könn­unar í byrjun mars 2014. Samkvæmt henni vildi rúm­lega 64 pró­sent Íslend­inga klára við­ræð­urnar en 36 pró­sent vildu slíta þeim.

Það er því nið­ur­staða Stað­reynd­ar­vakt­ar­innar að full­yrð­ing Bjarna um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki lofað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, heldur hafi lof­orð flokks­ins verið að standa utan Evr­ópu­sam­bands­ins, sé hauga­lygi.

Ertu með ábend­ingu fyrir Stað­reynda­vakt Kjarn­ans? Sendu hana á sta­dreynda­vakt­in@kjarn­inn.­is.

*Þessi stað­reynda­vakt hefur verið upp­færð þar sem skerpt var á orða­lagi í fjórðu máls­grein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár