Pólitísk óvissa veldur hræðslu á mörkuðum

Breytt lands­lag í stjórn­mál­unum hefur haft tölu­verð áhrif á fjár­magns­mörk­uðum. Mark­aðsvirði hefur fallið, vænt­ingar um aukna verð­bólgu í fram­tíð­inni sjást og erlendir fjár­festar spyrja sig að því hvað sé eig­in­lega að ger­ast á Íslandi.

Óvænt atburða­rás sem leiddi til stjórn­ar­slita og boðun þing­kosn­inga 28. októ­ber næst­kom­andi hefur valdið miklum titr­ingi á mark­aði á Íslandi. Á hluta­bréfa­mark­aði hefur mark­aðsvirði skráðra félaga lækkað um ríf­lega 50 millj­arða króna frá því á föstu­dags­morgun, þegar ljóst var að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar væri fallin.

Hvað er að gerast?

Þetta kom eins og þruma úr heið­skíru lofti fyrir hluta- og skulda­bréfa­mark­að­inn. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa erlendir fjár­festar, sem hafa hags­muna að gæta á Íslandi, verið for­vitnir um gang mála und­an­farna daga og spurt „hvað sé eig­in­lega að ger­ast á Íslandi“ eins og einn við­mæl­andi komst að orði, sem hafði átt sam­skipti við erlenda fjár­festa. Á skulda­bréfa­mark­aði hafa sést merki um aukið áhættu­á­lag og vænt­ingar um meiri verð­bólgu í fram­tíð­inni. Hún mælist nú 1,7 pró­sent og hefur hald­ist í skefjum, það er undir 2,5 pró­sent mark­miði, í vel á þriðja ár.

Mikil dags­lækkun varð í dag, en vísi­talan lækk­aði um 1,64 pró­sent, ofan á lækk­anir síð­ustu daga. Innan árs­ins hefur hluta­bréfa­mark­aðu­inn lækkað um tæp­lega sjö pró­sent að mark­aðsvirði, en heild­ar­virði félaga í kaup­höll­inni nam ríf­lega þús­und millj­örðum króna hinn 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn sam­kvæmt gögnum frá Nasdaq kaup­höll Íslands. Erlendir fjár­festar hafa verið að auka tölu­vert við eign sína í skráðum félögum á Íslandi að und­an­förnu, eins og fjallað var um í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, í morgun.

Erlendir fjárfestar eiga mikið

Samkvæmt gögnum frá kaup­höll­inni nam heild­ar­eign erlendra fjár­festa í skráðum íslenskum félögum 21 pró­sent af heild­inni, eða sem nemur um 214 millj­örðum króna miðað við stöð­una eins og hún var í lok ágúst.

Íslenskir fjár­festir, þar sem helst líf­eyr­is­sjóðir, fjár­fest­inga­sjóðir og aðrir fag­fjár­festar, eiga meiri­hlut­ann af 79 pró­sent hlut­anum sem til­heyrir íslenskum fjár­festum.

Það félag sem er með stærsta hluta af erlendum hlut­höfum er Össur, en danskir fjár­festar eiga þar meira en tvo þriðju hluta­fjár, þar sem er danska félagið William Demant stærst með yfir 40 pró­sent hlut. Mark­aðsvirði þess er í dag 209 millj­arðar króna, og því vegur sú erlenda eign mikið inn í heild­ar­töl­una.

Banda­rískir vog­un­ar­sjóðir, sem hafa átt kröfur í slitabú bank­anna og aflandskrónur hér á landi, hafa einnig verið að gera sig gild­andi á mark­aðnum að und­an­förnu, og keypta hluta­bréf í stórum stíl, meðal ann­ars í trygg­ing­ar­fé­lög­unum og fast­eigna­fé­lögum.

Frestun á skráningu

Eitt af því fall rík­is­stjórn­ar­innar nú og kosn­ingar í októ­ber hafa í för með sér, er óvissa um verk­efni sem þegar eru komin fram. Þar á meðal er nýfram­komið fjár­laga­frum­varp, Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Við­reisnar.

Samkvæmt því var reiknað með 44 millj­arða afgangi á fjár­lögum næsta árs. Ljóst er þó að ný rík­is­stjórn, hvernig sem hún verður sam­sett, mun vafa­lítið leggja sitt mark á fjár­lögin og koma sínum póli­tísku áherslum inn í loka­nið­ur­stöð­una fyrir ára­mótin. Allta hefur þetta áhrif á heild­ar­stöð­una og fram­tíð­ar­sýn­ina á fjár­mála­mörk­uð­unum.

Þá er fyr­ir­huguð skrán­ing á Arion banka, sem var á döf­inni nú á haust­mán­uðum, komin á ís. Í Mark­aðnum í morgun kom fram fram að vegna póli­tískrar óvissu sem skap­ast hefur þá þyrftu stjórn­völd lengri tíma til að taka afstöðu til þess, hvort ríkið ætti að falla frá for­kaups­rétti á hlut í Arion banka miðað við verð­miða upp á 0,8 sinnum eigið fé. Líklegt er að skrán­ingin mun fara fram á næsta ári, úr því sem komið er.

Eigið Arion banka nam 214 millj­örðum miðað við lok mars á þessu ári, verð­mið­inn því ríf­lega 171 millj­arður króna, sé mið tekið af því. Hlutur rík­is­ins nemur í dag 13 pró­sentum og er ríf­lega 22 millj­arða króna virði miðað við 0,8 sinnum eigið fé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár