Læknar, yfirmenn í byggingarfyrirtækjum og verðbréfasalar hækkuðu mest í launum

Alls hækk­uðu mán­að­ar­laun þriggja starfa um meira en 100 þús­und krónur á mán­uði í fyrra,miðað við árið á undan. Í öllum stör­f­unum voru mán­að­ar­launin yfir einni milljón króna.

Af öllum störfum sem Hagstofa mældi hækkuðu heildarlaun sérfræðistarfa við lækningar mest.
Af öllum störfum sem Hagstofa mældi hækk­uðu heild­ar­laun sér­fræði­starfa við lækn­ingar mest. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mán­að­ar­laun sér­fræð­inga við lækn­ingar, ásamt yfir­manna í bygg­ing­ar­iðn­aði og verð­bréfa­sala hækk­uðu um meira en 100 þús­und krónur í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu um laun full­vinn­andi launa­fólks á síð­ustu árum.

Þar má sjá heild­ar­laun allra starfa þar sem að minnsta kosti 30 ein­stak­lingar starfa í þremur rekstr­ar­ein­ingum. Einungis er litið til full­vinn­andi ein­stak­linga, það er að segja þeirra sem vinna að minnsta kosti 33-36 tíma á viku. Alls eru 137 störf með rúm­lega 41 þús­und starfs­mönnum sem falla undir þessi skil­yrði. Á meðal þeirra voru þrjú störf þar sem mán­að­ar­launin hækk­uðu um meira en 100 þús­und krónur á mán­uði, en það voru sér­fræði­störf við lækn­ingar, yfir­menn fram­leiðslu- og rekstr­ar­deilda í bygg­ing­ar­iðn­aði og störf tengd ráð­gjöf og sölu verð­bréfa.[adspot]

Launa­hækk­un­ina má sjá á mynd hér að neðan, en sam­kvæmt henni námu mán­að­ar­laun í öllum þremur starfs­grein­unum nokkuð yfir einni milljón króna. Mán­að­ar­laun verð­bréfa­sala eru þar hæst, en sú starf­stétt er sú þriðja launa­hæsta á land­inu, sam­kvæmt mæl­ingum Hagstofu.

Hins vegar lækk­aði launa­hæsta starfið, sem inni­heldur 720 for­stjóra og aðal­fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja og stofn­ana, mest allra í launum á milli ára, eða um 90 þús­und krónur á mán­uði, úr 1,94 millj­ónum í 1,85 millj­ónir króna. Á sama tíma fækk­aði um 50 manns í starfs­stétt­inni. Heild­ar­laun níu ann­arra starfa lækk­uðu einnig í launum, en á meðal þeirra voru, bif­véla­virkjar, raf­virkjar, húsa­smiðir og sölu­menn.

Samkvæmt Hagstofu voru heild­ar­laun að með­al­tali 794 þús­und krónur á mán­uði í fyrra og höfðu þau hækkað um 5 pró­sent frá því á árinu 2019. Allt frá árinu 2014 var með­al­tal heild­ar­launa um 563 þús­und krónur á mán­uði og hafa því þau hækkað um 41 pró­sent síðan þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár