Hefur aldrei upplifað annan eins þrýsting og vegna viðskiptabanns Rússa

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra segir að við­skipta­bannið sem Rússar settu á vörur frá Íslandi hafi verið erf­ið­asta mál sem hann hafi tek­ist á við í emb­ætti. Í við­tali við DV seg­ist hann hafa saknað þess að skynja ekki meiri stuðn­ing við mik­il­vægi þeirra sjón­ar­miða sem Íslend­ingar hefðu lagt upp með í mál­inu. „Auðvitað eru miklir hags­munir undir á Íslandi. Þetta kemur illa við ákveðin byggð­ar­lög að ein­hverju leyti en er samt ekki jafn slæmt og hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi vildu meina í upp­hafi. Það er bara þannig að við getum ekki látið prinsippaf­stöðu víkja fyrir stund­ar­hags­munum, þó þeir séu verð­miklir. Við erum smá­ríki og leggjum okkar upp úr því að alþjóð­legir sátt­málar og samn­ingar haldi."

Dmitry Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti í ágúst að Ísland hefði verið bætt við á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vörur frá. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evr­ópu­sam­bands­löndum, Banda­ríkj­unum og Ástralíu en þessi lönd standa saman að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi vegna átak­anna í Úkraínu. Útgerð­ar­menn héldu því fram að tjón Íslands vegna þessa yrði gríð­ar­legt og mik­ill þrýst­ingur skap­að­ist, bæði póli­tískt og úr við­skipta­líf­inu, um að taka við­skipta­lega hags­muni íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fram yfir þann mál­stað sem Ísland var að sýna samtöðu í mál­inu.

Gunnar Bragi brást við hart við slíkum mál­flutn­ingi og í við­tali við Sprengisand í ágúst sagði hann það óheið­ar­legt hvernig sumir útgerð­ar­menn hafa talað um ákvörðun Íslands um að styðja við­skipta­þving­anir gegn Rússum. Ef menn taki eig­in­hags­muni fram yfir heild­ar­hags­muni þá velti hann því óneit­an­lega fyrir sér hvort þeir séu bestu menn­irnir til að fara með auð­lind­ina.

Gunnar Bragi segir í við­tal­inu við DV að hann hafi aldrei upp­lifað neitt í lík­ingu við þann þrýst­ing sem hann var beittur í mál­inu. „Það er óhætt að segja að þrýst­ing­ur­inn sé af ýmsum toga og úr ýmsum áttum. En það hafa engin rök verið færð fram þannig að ástæða sé til að breyta þessu. Þetta hefur verið mjög þungt og ég hef fundið að það voru alltof margir í sam­fé­lag­inu sem eru reiðu­búnir til að taka til fót­anna þegar svona þrýst­ingur mynd­ast. En þá verður maður sjálfur að setj­ast niður og hugsa hvað er rétt og hvað er rangt, hvað er eðli­legt og hvað er óeðli­legt.[...]Þetta er umdeilt innan flokks­ins[Fram­sókn­ar­flokks­ins)[...]Það eru vissu­lega aðilar innan flokks­ins sem hafa ekki verið hrifnir af þessu. Þeir hafa sín rök, þó ég sé ekki sam­mála þeim."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár