Þjóðkirkjan fær 857 milljónir króna viðbótarframlag á fjáraukalögum

Ríkið greiðir þjóð­kirkj­unni hátt í millj­arð króna til við­bótar við þá tæpu 4,6 millj­arða sem þegar hafði verið ráð­stafað til hennar á fjár­lögum. Þing­maður Pírata segir að ríkið þyrfti að greiða laun 80 presta þó allir segðu sig úr þjóð­kirkj­unni.

Þjóðkirkjan er hluti af íslenska ríkinu. Þess vegna ganga Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, hlið við hlið við þingsetningu.
Þjóð­kirkjan er hluti af íslenska rík­inu. Þess vegna ganga Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, og Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, hlið við hlið við þing­setn­ingu. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýsam­þykktum fjár­auka­lögum vegna árs­ins 2018 var fjár­heim­ild til trú­mála hækkuð um 820 millj­ónir króna. Þessi hækkun skýrist ann­ars vegar af því að fram­lag til þjóð­kirkj­unnar verður aukið um 857 millj­ónir króna og hins vegar lækka fram­lög vegna sókn­ar­gjalda um 37 millj­ónir króna vegna end­ur­mats á fjölda ein­stak­linga í skráðum trú­fé­lögum.

[links]Þetta fram­lag kemur til við­bótar því fjár­magni sem þegar hefur verið ráð­stafað til þjóð­kirkj­unnar á fjár­lögum, en þaðan er greitt fram­lag til Biskups Íslands, í Kirkju­mála­sjóð og Jöfn­un­ar­sjóð sókna.

Sam­tals er áætlað að þessi upp­­hæð verði 2.830 millj­­ónir króna í ár. Til við­­bótar fær þjóð­­kirkjan greidd sókn­­ar­­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni er. Ætla má að sú upp­­hæð verði yfir 1,7 millj­arðar króna í ár. Sam­tals kost­aði rekstur þjóð­kirkj­unnar því tæp­­lega 4,6 millj­­arða króna í ár áður en að við­bót­ar­fram­lagið var sam­þykkt. Það hækk­aði rík­is­fram­lagið um tæp 19 pró­sent.

[adspot]Þá er ekki með­­talið rúm­­lega 1,1 millj­­arðs króna fram­lag til kirkju­­garða.

Samningsviðræður milli ríkis og kirkju standa yfir

Fram­lagið til þjóð­kirkj­unnar er vegna hins svo­kall­aða kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags milli ríkis og kirkju sem gert var 10. jan­úar 1997. Í því var samið um að kirkjan léti af hendi kirkju­jarðir að frá­töldum prests­setrum og að and­virði seldra kirkju­jarða rynni í rík­is­sjóð. Á móti mundi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu, náms­leyfi, fæð­ing­ar­or­lof, veik­indi o.fl.

Til við­bótar skyldi ríkið greiða árlegt fram­lag í Kristni­sjóð sem svar­aði til 15 fastra árs­launa presta. Ef það fækk­aði eða fjölg­aði í þjóð­kirkj­unni skyldi fram­lag rík­is­ins lækka eða hækka eftir til­teknum við­miðum en þó aldrei niður fyrir til­tek­inn fjölda starfa. Þá skyldu laun og launa­tengd gjöld fyrr­greindra starfs­manna þjóð­kirkj­unnar vera sam­kvæmt úrskurðum kjara­ráðs.

Í frum­varpi til fjár­auka­laga segir að í kjöl­far banka­hruns­ins hafi orðið for­sendu­brestur í rík­is­fjár­málum og til að bregð­ast við því var óhjá­kvæmi­legt að gera umtals­verðar aðhalds­kröfur í rekstr­ar­út­gjöldum allra rík­is­stofn­ana og rekstr­ar­að­ila sem fjár­magn­aðir eru úr rík­is­sjóði.

„Í til­felli þjóð­kirkj­unnar var um sam­bæri­legar aðhalds­kröfur að ræða og gerðar voru í öðrum almennum rekstri hjá rík­inu. Í fjár­auka­lögum 2015, 2016 og 2017 voru sams­konar til­lögur sam­þykktar undir þeim for­merkjum að við­ræður mundu þegar hefj­ast við kirkj­una um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins sem fæli þá í sér end­ur­skoðun allra fjár­hags­legra sam­skipta ríkis og kirkju, þ.m.t. hvað varðar sókn­ar­gjöld, jöfn­un­ar­sjóð sókna, fram­lög til kirkju­mála­sjóðs og Kristni­sjóðs, með mark­mið m.a. um veru­lega ein­földun þess­ara sam­skipta.“

[adspot]Samn­inga­við­ræður rík­is­ins við þjóð­kirkj­una standa yfir og er stefnt að því að þeim ljúki á fyrri hluta árs 2019.

Ríkið myndi greiða laun 80 presta þótt engin væri í þjóðkirkjunni

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, skil­aði inn minni­hluta­á­liti í fjár­laga­nefnd þar sem sér­stak­lega er fjallað um fram­lög rík­is­ins til þjóð­kirkj­unnar.

Þar bendir hann á að þeim sem skráðir séu í þjóð­kirkj­una hafi fækkað um rúm­lega tíu þús­und frá árinu 1998 og miðað við það ætti ríkið því að greiða laun 136 presta sam­kvæmt kirkju­jarða­sam­komu­lag­inu, en ekki 138.

Í áliti Björns Leví segir einnig: „Kirkju­jarða­sam­komu­lagið er hins vegar aug­ljós­lega mjög gallað þar sem engin tíma­tak­mörk eru sett á það hversu lengi ríkið á að greiða laun bisk­ups, presta og þess háttar sam­kvæmt sam­komu­lag­inu. Svör við fyr­ir­spurnum um það hvaða gæði ríkið fékk í stað­inn hafa verið ein­föld, ríkið veit það ekki. Það liggur í augum uppi að þetta sam­komu­lag er mjög slæmt fyrir ríkið og vafa­samt hvort það stenst lög um samn­ings­á­kvæði eða greinar stjórn­ar­skrár um fjár­heim­ildir. Miðað við þá fram­kvæmd sem hefur tíðkast, að sam­þykkja fjár­heim­ildir eftir á, má leiða rök að því að ef Alþingi sam­þykkir ekki þessa fjár­heim­ild þá sé Alþingi að rifta samn­ingnum.“

[adspot]Björn Leví telur það vera ákjós­an­legt fyrir ríkið að láta á það reyna að rifta samn­ingnum og fá þá úr skorið fyrir dóm­stólum hvaða eignir og jarðir ríkið eign­að­ist vegna kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins og hvert and­virði þeirra er. „Þá væri ein­fald­lega hægt að stilla því saman, hversu mikil laun hafa verið greidd vegna sam­komu­lags­ins, and­virði jarð­anna og hversu miklu munar. Það getur ekki gengið að ríkið eigi að greiða til þjóð­kirkj­unnar út í hið óend­an­lega. Miðað við samn­ing­inn þyrfti ríkið meira að segja að greiða laun um 80 presta þó allir segðu sig úr þjóð­kirkj­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár