Guðni nýtur mests fylgis og Davíð vex í hverri kosningaspá

Nið­ur­stöður Kosn­inga­spár­innar sýna að Guðni Th. Jóhann­es­son er enn lang­vin­sæl­asti for­seta­fram­bjóð­and­inn. Fylgi Davíðs Odds­sonar vex stöðugt en nær þó ekki 20 pró­sent.

Guðni Th. Jóhannesson nýtur stöðugt mest fylgis samkvæmt kosningaspánni.
Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur stöðugt mest fylgis sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ingur, hlyti 64,5 pró­sent atkvæða til emb­ættis for­seta Íslands ef kosið yrði nú, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýj­ustu kosn­inga­spár­innar sem gerð er úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda. Guðni hefur í þremur kosn­inga­spám mælst með lang mest fylgi þeirra níu sem eru í kjöri.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, mælist með 17,6 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni 25. maí, rúm­lega tveimur pró­sentu­stigum meira en hann var með fyrir tæpum tveimur vikum. Fylgi Davíðs hefur vaxið stöðugt í þau þrjú skipti sem kosn­inga­spálík­an­inu hefur verið beitt á for­setak­ann­anir.

Andri Snær Magnason, rit­höf­undur, mælist með 10,7 pró­sent atkvæða. Hann hefur hæst farið í 11,4 pró­sent í kosn­inga­spánni 13. maí. Halla Tóm­as­dóttir, athafna­kona, hlyti 2,8 pró­sent atkvæða sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Það er örlítið meira en hún hefur mælst með hingað til.

Aðrir fram­bjóð­endur njóta minna en eitt pró­sent fylgis sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Það eru Sturla Jónsson, Elísabet Jök­uls­dóttir, Ástþór Magn­ús­son, Hildur Þórð­ar­dóttir og Guðrún Margrét Páls­dóttir. Frétta­stofa 365 hefur boðað úrslit úr könnun sinni á fylgi fram­bjóð­enda í dag. Sú könnun mun ráða því hverjir hljóta þátt­töku­rétt í kapp­ræðum fram­bjóð­enda á sömu sjón­varps­stöð í kvöld og þurfa fram­bjóð­endur að mæl­ast með meira en 2,5 pró­sent fylgi til að fá að birt­ast á skjánum.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ingar. Kjarninn hefur áður birt nið­ur­stöður kosn­inga­spálík­ans­ins fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 fyrir fylgi fram­boða í Reykja­vík. Þá verða nið­ur­stöður lík­ans­ins um fylgi stjórn­mála­flokka í fyr­ir­hug­uðum Alþing­is­kosn­ingum birtar á vef Kjarnans í aðdrag­anda kosn­ing­anna í haust. Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar eru nýj­­ustu kann­an­­irnar vegn­­ar:

  • Skoð­ana­könnun Gallup fyrir stuðn­ings­menn Davíðs Odds­sonar 19. til 25. maí (vægi 25,3%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 12. til 20. maí (vægi 24,4%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 14. maí (vægi 14,5%)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu 10. til 13. maí (vægi 19,3%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 9. maí (vægi 16,4%)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­inga­úr­slit­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár