Horft fram á veginn

Bíla­iðn­að­ur­inn og umferð­ar­verk­fræðin standa nú á miklum tíma­mótum. Í við­tali við Kjarnann fjallar Þórarinn Hjalta­son um þær áskor­anir sem framundan eru, meðal ann­ars vegna sjálfa­kandi bíla og gríð­ar­lega mik­illa afleiddra áhrifa á umferð og skipu­lag borga.

Á dög­unum kom ég heim til tengda­for­eldra minna í vest­urbæ Kópavogs og sett­ist niður við eld­hús­borðið. Á sama tíma kom tengdapabbi, Þórarinn Hjalta­son, labbandi inn í stofu, sett­ist í stofu­sófann og sagði: „Jæja, nú er ég hættur.“

Langri starfsævi lokið (og upp­hafið að nýrri að byrja, geri ég ráð fyrir), enda aðeins nokkrir mán­uðir í sjö­tugs­af­mælið.

Þetta fannst mér merki­leg tíma­mót.

Ferill Þórarins, eins og ann­arra Íslend­inga af sömu kyn­slóð, hefur markast af gríð­ar­lega miklum breyt­ingum og fram­förum, sem hollt er að gefa sér tíma til að hugsa um og stað­setja eins og púsl í stóra mynd sam­tím­ans og fram­tíð­ar­innar. Náms- og starfs­tím­inn spannar und­an­farin 50 ár.

Eftir mörg löng sam­töl okkar á milli á und­an­förnum árum var ég löngu búinn að gera mér grein fyrir því, að á ein­hverjum tíma­punkti væri gaman að setj­ast niður og taka við­tal við Þórarin og huga þá einkum að fram­tíð­inni.

Í bílt­úrum í gegnum tíð­ina hefur honum yfir­leitt liðið best, þegar við erum í þann mund að vill­ast. Þá tekur sér­fræði­þekk­ing á umferð­ar­skipu­lagi við og nátt­úru­legur átta­viti finnur hina réttu leið.

Í við­tal­inu ákvað ég að ræða um hlut­ina út frá eft­ir­far­andi spurn­ingu: Hvað er að fara taka við? Stórt er spurt, en það var ekki fátt um svör, heldur margt og mikið.

Þórarinn heldur því fram að tækni­bylt­ing sé framundan sem muni hafa jafn mikil eða svipuð efna­hags­leg áhrif og til­koma einka­bíls­ins fyrir almenn­ing fyrir rúmri öld. Kjarni hinnar kom­andi bylt­ingar snýr að notkun gervi­greindar, og þá ekki síst í umferð­inni, sem alla tíð hefur verið hans ær og kýr.

Cambridge, Kaupmannahöfn, Durham

Árið 1967 útskrif­ast Þórarinn úr MR, og var dúx úr skól­anum. Í fram­haldi fór hann á skóla­styrk í nám í verk­fræði við Cambridge háskóla í Bret­landi og lauk þaðan BS prófi.

Eftir námið í Cambridge byrj­aði hann að starfa hjá Gatna­mála­stjór­anum í Reykja­vík við gatna­hönnun. Árið 1974 fékk hann vinnu hjá Þró­un­ar­stofnun Reykja­vík­ur­borgar (síðar Borg­ar­skipu­lag) við umferð­ar­skipu­lag. Um haustið 1977 fór hann til Dan­merkur og hóf nám í umferð­ar­verk­fræði við DTH (Danmarks tekniske höjskole, síðar Danmarks tekniske uni­versitet) í Kaup­manna­höfn. Hann lauk þaðan meist­ara­námi (Cand. Polyt.) í umferð­ar­verk­fræði 1979. Eftir ára­tuga vinnu sem verk­fræð­ingur, meðal ann­ars hjá Reykja­vík­ur­borg og Kópa­vogsbæ, fór hann síðan í MBA nám við Durham háskóla í Bret­landi, á árunum 2004 til 2005. Eftir það hóf hann störf hjá Almennu verk­fræði­stof­unni, sem nú er hluti af Verkís, og lauk þar störfum á dög­unum, eins og að framan er greint.

[adspot]

Hér er stiklað á stóru, en aðeins til und­ir­strika hvaðan horft er til fram­tíðar í við­tal­inu.

Þú hefur verið að halda því fram í mín eyru að gríð­ar­legar breyt­ingar séu framundan, ekki síst þegar kemur að umferð og skipu­lagi vegna tækni­fram­fara í bíla­iðn­aði. Gervi­greindin er þarna lyk­il­stærð. Hvernig sjáum við þetta birt­ast á Íslandi?

„Árið 2007 fól Vega­gerðin Almennu verk­fræði­stof­unni að gera úttekt á stofn­vega­kerfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. M.a. var horft á mögu­lega þróun umferðar til langs tíma (2050+) og hvernig mætti hugsa sér upp­bygg­ingu stofn­vega­kerf­is­ins miðað við hinar ýmsu for­sendur. Ég var verk­efna­stjóri og var verkið unnið í sam­ráði við Vega­gerð­ina og tækni­menn sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Öllum sem komu að þessu verk­efni var ljóst að mikil óvissa væri í umferð­ar­spám svona langt fram í tím­ann, m.a. vegna óvissu um skipu­lags­for­sendur og tækni­fram­farir á sviði sam­gangna. Í stuttu máli þá benti umferð­ar­spá 2050+ til þess að ráð­ast þyrfti í kostn­að­ar­sama upp­bygg­ingu á stofn­vega­kerfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í fram­tíð­inni,“ sagði Þórarinn.

Erfitt að sjá það fyrir sem hefur gerst

Hann segir ótrú­legar breyt­ingar hafa átt sér stað, á ein­ungis nokkrum árum, sem erfitt var að sjá fyrir. „Þegar þessi úttekt á stofn­vega­kerfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var gerð fyrir 10 árum voru sjálf­keyr­andi bílar komnir inn í umræð­una um sam­göngur fram­tíð­ar­innar. Hins vegar var þá talið að það væri það langt í að þessi tækni yrði að veru­leika að ekki þótti ástæða til að taka mikið til­lit til hennar við stefnu­mörkun í sam­göngu­málum. Á þeim tíma gerðu menn sér heldur ekki grein fyrir þeirri tækni­bylt­ingu sem nú er ljóst að er framundan. Fyrir 10 árum gengu hug­myndir um sjálf­keyr­andi bíla meira út á að not­ast yrði við leið­ara í veg­inum til að stýra bíl­unum. Þegar maður las eða heyrði fréttir um spá­dóma í þessum efnum þá virk­aði þetta dálítið eins og vís­inda­skáld­skapur.

Í dag er komin upp allt önnur staða. Tækni­þróun, einkum á sviði gervi­greindar, hefur verið það hröð á síð­ustu árum að sjálf­keyr­andi bílar eru orðnir að veru­leika. T.d. má nefna sjálf­keyr­andi bíla, sem Google og Tesla hafa gert til­raunir með, og fleiri fram­leið­endur einnig. Manns­höndin þarf ekki að koma nálægt stjórn­tækjum bíl­anna, en það þarf samt að hafa öku­mann með gild rétt­indi í „bíl­stjóra­sæt­inu“, þar sem slíkt er ennþá krafa sam­kvæmt banda­rískum lögum. Ég hef lesið fjölda greina og aflað heim­ilda um sjálf­keyr­andi bíla. Mér sýn­ist flestir sem hafa vit á þessum málum vera sam­mála um að sjálf­keyr­andi bílar munu verða sífellt stærri hluti af bíla­um­ferð á næstu árum og ára­tugum. Spurn­ingin er bara hvenær komi að því að allir/flestallir bílar verði sjálf­keyr­andi. Um það er erfitt að spá og því eðli­legt að menn hafi mis­mun­andi hug­myndir um það.“

Hlið­ar­á­hrifin af þess­ari tækni­bylt­ingu verður aukið öryggi í umferð­inni. Er ekki lík­legt að hlið­ar­á­hrifin verði gríð­ar­lega mikil, á hina ýmsu anga í sam­fé­lagi okkar?

„Tilkoma sjálf­keyr­andi bíla verður gríð­ar­leg tækni­bylt­ing. Sumir telja að þetta verði álíka mikil bylt­ing og til­koma einka­bíls­ins fyrir rúmri öld. Sjálf­keyr­andi bílar eru nú þegar marg­falt örugg­ari en venju­legir bílar. Sú þróun hlýtur að halda áfram. Þegar allir bílar verða orðnir sjálf­keyr­andi munu dauða­slys og alvar­leg meiðsl í umferð­inni nán­ast heyra sög­unni til. Þó að umferð­ar­slysum fari fækk­andi þá eru þau enn þungur baggi á sam­fé­lagi manna, bæði efna­hags­lega og til­finn­inga­lega. Á hverju ári deyja um ein milljón manns í umferð­ar­slysum. Þegar líkur á að sjálf­keyr­andi bílar lendi í árekstri verða hverf­andi, þá er hægt að hafa þá miklu létt­ari þar sem ekki er þörf á sterk­byggðum árekstra­vörnum. Það þýðir að bílar fram­tíð­ar­innar verða að öðru jöfnu mun eyðslu­grennri en sam­bæri­legir bílar í dag. Ofan á þetta bæt­ist stöðug þróun á bættri nýt­ingu orku­gjafa. Ég trúi því að raf­bílar verði bílar fram­tíð­ar­innar. Nýlega til­kynnti Volvo að eftir 10 ár muni fyr­ir­tækið ein­göngu fram­leiða raf­bíla, til að byrja með 1 milljón bíla á ári. Ég tel full­víst að eftir nokkra ára­tugi verði bílar miklu umhverf­is­vænni en í dag,“ sagði Þórarinn.

Umferðarteppur og margfalt meiri afköst

Þórarinn telur eitt það áhuga­verð­asta við þessa þróun snúa að vega­kerf­inu, og hvernig það muni þró­ast á næstu árum og ára­tugum. „Eftir því sem sjálf­keyr­andi bílum fjölgar mun flutn­ings­geta vega aukast jafnt og þétt. Skýr­ingin er ein­föld: þeir geta ekið miklu nær öðrum bílum á mik­illi ferð, vegna þess að bíll sem er stjórnað með gervi­greind bregst nán­ast sam­stundis við, þegar bíll fyrir framan hægir á sér. Það þarf aðeins 1 sjálf­keyr­andi bíl af 20 bílum til þess að hafa jákvæð áhrif á umferð­ar­flæði, sam­kvæmt rann­sókum verk­fræði­deildar háskól­ans í Illinois. Það sem mér finnst athygl­is­verð­ast er að þarna er verið að spá því að á næstu árum verði fram­farir í rann­sóknum á bættu umferð­ar­flæði/afkasta­getu vega með til­tölu­lega fáum sjálf­keyr­andi bílum. Þegar allir bílar verða orðnir sjálf­keyr­andi, þá getur flutn­ings­geta hrað­brauta marg­fald­ast frá því sem er í dag. Þetta ger­ist vænt­an­lega í áföngum með því að sjálf­keyr­andi bílar fá úthlutað sér­a­kreinum og/eða sér­götum, þegar þeir verða orðnir nógu stór hluti af bíla­flot­anum,“ sagði Þórarinn.

Einkabílum fækkar

Í þessu sam­hengi vaknar spurn­ingin hvort sjálf­keyr­andi bílar verði lyk­ill­inn að því að leysa umferð­ar­teppur millj­óna­borg­anna. Þórarinn segir að það sé ekki svo auð­velt að svara því. „Fyrir utan það að eng­inn veit nákvæm­lega hvað fram­tíðin ber í skauti sér, þá hlýtur svarið við spurn­ing­unni að vera mjög háð aðstæðum á hverjum stað. Eitt af því sem flækir svarið er að hugs­an­lega munu umferð­ar­teppur aukast tíma­bundið á a.m.k. sumum borg­ar­svæðum við það að bíla­um­ferðin eykst vegna þess að fleiri fá tæki­færi til að aka bíl, t.d. öryrkjar sem ekki geta fengið öku­rétt­indi í dag eða aldr­aðir sem ekki treysta sér að aka venju­legum bíl. Á móti þessu kemur að samnýt­ing á bílum mun aukast. Fyr­ir­tæki (Uber o.fl.) sem hafa komið inn á leigu­bíla­mark­að­inn á síð­ustu árum stefna að því að bjóða upp á sjálf­keyr­andi bíla sem geta auð­veld­lega sinnt nokkrum við­skipta­vinum í sömu ferð. Við­skipta­vinum sem panta bíl á svip­uðum tíma til að fara frá svæði A til svæðis B er sinnt í einni og sömu ferð­inni. Í slíkum til­vikum verður miklu ódýr­ara að taka leigu­bíla en í dag. Fyrir utan það að spara laun bíl­stjóra þá skipta nokkrir við­skipta­vinir á milli sín kostn­að­inum við akst­ur­inn. Þetta er auð­vitað kjörin leið fyrir samakstur til og frá vinnu (carpooling). Ég er sam­mála þeim sem spá því að þetta muni leiða til tölu­verðrar fækk­unar einka­bíla þar sem bíla­eign er mikil í dag,“ sagði Þórarinn.

Meiri þétting í borgum

Hvaða áhrif mun þessi þróun hafa á skipu­lag borga? Þórarinn seg­ist líta svo á, að mörg ný álita­mál muni koma upp sem taka þurfi til­lit til í skipu­lagi fyrir næstu ára­tugi. „Ef spá­dómar um minni bíla­eign og fækkun bíla­stæða ganga eftir, þá mun það stuðla að meiri þétt­ingu mið­borga, sér­stak­lega í millj­óna­borgum sem eru bíla­borgir, eins og t.d. Los Angeles. Þétting mið­borg­ar­svæða kallar á aukn­ingu bíla­um­ferðar. Þá vaknar spurn­ingin um hver verða heild­ar­á­hrifin. Mun aukin bíla­um­ferð vegna þétt­ingu byggðar éta upp ávinn­ingin af auk­inni flutn­ings­getu gatna? Eflaust verður það þannig í ein­hverjum til­vikum. Með veg­tollum má stýra bæði sól­ar­hrings­um­ferð og umferð á álags­tíma með því að taka hærra gjald á álags­tíma. Þetta er gert á mörgum borg­ar­svæðum í dag, sér­stak­lega í millj­óna­borgum. Veg­tollar eru hins vegar umdeildir og hápóli­tískt mál, sbr. nýlega umræðu hér á landi, og ekki sjálf­gefið fyrir fram að unnt verði í öllum til­vikum að stýra umferð­ar­magni á sem hag­kvæm­astan hátt.“

Einn þeirra sem Þórarinn segir að sé með einna skörp­ustu sýn­ina á breyt­ing­arnar sem muni verða í umferð­ar­málum á næst­unni, er Elon Musk, stofn­andi og for­stjóri Tesla Motors. Musk telur að unnt sé að leysa umferð­ar­vanda­mál Los Angeles með því að bora kerfi jarð­gangna undir borg­ina, sem verði 10 sinnum ódýr­ari en hefð­bundin jarð­göng. Jarð­göngin verði notuð til að flytja bíla á allt að 200 km/klst.

Að sögn Musks hefur fyr­ir­tæki hans, The Boring Company, lokið gerð 1. áfanga jarð­gangn­anna, sem er til­raunakafli.

Þórarinn segir að þessi sýn Musks sé ekki neinn vís­inda­skáld­skapur heldur veru­leik­inn eins og hann blasir við í dag.

Hann segir aug­ljóst, að stjórn­mála­menn og aðrir, sem hafa áhrif á inn­viði lands­ins þegar að þess­ari þróun kemur, þurfi að setja sig inn í málin og skilja hvað sé að ger­ast. „Sumir hafa bent á að sjálf­keyr­andi bílar muni leiða til enn frek­ari útþenslu borg­ar­svæða. Þegar fólk þarf ekki lengur að vera upp­tekið af því að stjórna bílnum á leið til og frá vinnu getur það nýtt tím­ann til að vinna á leið­inni, svipað og sumir nýta sér í strætó og lestum. Minni orku­notkun á hvern ekinn kíló­metra mun líka stuðla að sömu þróun. Spurn­ingin er í hve miklum mæli þetta mun ger­ast. Þetta minnir mig á að þétt­ing byggðar getur ein og sér haft sömu áhrif, ein­fald­lega vegna hækk­andi fast­eigna­verðs. Sama gildir um lóða­skort á vin­sælum svæðum. Í þessu sam­bandi má benda á þá þróun hér á suð­vest­ur­horn­inu að íbúum á Suð­ur­nesjum og fyrir austan fjall fer núna hratt fjölg­andi, m.a. vegna hækk­andi fast­eigna­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá vaknar spurn­ingin um hvort þetta sé endi­lega slæm þróun. Í því sam­bandi dettur mér í hug skipu­lag stór-Barcelonasvæðisins á Spáni. Íbúa­fjöldi Barcelona er um 1,6 milljón. Umferðin í Barcelona þykir til fyr­ir­myndar. Til­tölu­lega fleiri nýta almenn­ings­sam­göngur í Barcelona heldur en í London þar sem íbúa­fjöldi er um 8 millj­ónir. Þétt­leiki byggðar er meiri í Barcelona heldur en í London, um 16.000 íbúar á hvern km2, sam­an­borið við um 5.200 íbúa á km2 í London. Ef við lítum á stór-Barcelonasvæðið verður annað upp á ten­ingnum. Á rúm­lega 4.200 km2 svæði búa um 5,3 millj­ónir íbúa eða um 1.260 íbúar á km2. Á þessu svæði nýta færri almenn­ings­sam­göngur en í London. Rétt er að geta þess að sam­an­burð­ur­inn verður ekki eins óhag­stæður fyrir stór-Barcelonasvæðið ef það er borið saman við stór-London­svæðið. Þar búa um 14,5 millj­ónir íbúa á 8.382 km2 eða um 1.730 íbúar á km2.“

Stórkostleg tæknibylting

Ef við færum okkur nú hingað til Íslands. Hver gætu áhrif sjálf­keyr­andi bíla orðið, t.d. á höf­uð­borg­ar­svæð­inu?

„Ef við lítum á fram­tíð höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þá tel ég að sjálf­keyr­andi bílar verði mun hag­kvæm­ari hér heldur en almennt erlendis. Í fyrsta lagi er höf­uð­borg­ar­svæðið til­tölu­lega fámennt borg­ar­svæði, þar sem flestir full­orðnir nota bíl nú þegar. Höf­uð­borg­ar­svæðið er bíla­borg, í þeim skiln­ingi. Hlutur strætó er innan við 5 % af öllum ferðum með vél­knúnum far­ar­tækjum. Þó umferð á álags­tímum hér sé tölu­verð þá er hún mun minni en í erlendum millj­óna­borgum og álags­tím­inn mun styttri. Eins og ég gat um áðan þá er hugs­an­legt að til­koma sjálf­keyr­andi bíla auki umferð­ar­á­lag tíma­bundið til að byrja með. Tíma­bundin aukn­ing á umferð verður til­tölu­lega lítil miðað við millj­óna­borgir, þar sem hlutur almenn­ings­sam­göngu­kerfis er mun meiri en hér. Það verða því til­tölu­lega fáir hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem munu fara að nota fólks­bíl í stað strætó. Ég spái því að meiri­hluti þeirra sem munu hætta að nota strætó muni nota sjálf­keyr­andi leigu­bíla og gjarnan samnýta þá með öðrum. Ef horft er til lengri fram­tíðar hér, t.d. 2060+, þá tel ég að upp­bygg­ing stofn­vega­kerfis, sem getur tryggt frjálst, öruggt og umhverf­is­vænt flæði bíla­um­ferðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, verði til­tölu­lega ódýr.

En hvað með önnur svið mann­lífs­ins, þegar kemur að gervi­greind og meiri sjálf­virkni?

„Hér hef ég fyrst og fremst verið að velta fyrir mér fram­tíð­inni á því sviði sem ég þekki best, þ.e. umferð og skipu­lag. Hvað með önnur svið? Ég hef ekki kynnt mér neitt að ráði spá­dóma um vænt­an­legar tækni­bylt­ingar á öðrum sviðum. Það litla sem ég hef kynnt mér um þróun vél­menna (robota) og gervi­greindar hefur þó sann­fært mig um að fram undan er stór­kost­leg tækni­bylt­ing á mörgum sviðum. Nýlega var frétt um það að vél­menni gætu í dag fram­kvæmt skurð­að­gerðir á manns­heila. Þetta segir manni það að tölvur og vél­menni með gervi­greind munu yfir­taka eða í það minnsta auð­velda mikið af þeim störfum sem fólk vinnur við í dag. Þessi þróun hlýtur að leiða til veru­legrar stytt­ingar á vinnu­viku. Það mun að öðru jöfnu leiða til veru­legrar minnk­unar á umferð milli heim­ila og vinnu­staða. Fjar­vinna, þ.e. vinna á heim­ili í gegnum tölvu, mun aukast enn frekar og hafa sömu áhrif. Aftur á móti munu ferðir vegna áhuga­mála o.fl. aukast. Ég treysti mér ekki til að spá af neinu viti um það hver heild­ar­á­hrifin á umferð­ar­magn verða. Ég segi bara eins og danski háð­fugl­inn Storm P. sagði: Það er erfitt að spá, sér­stak­lega um fram­tíð­ina. Ég tel að mann­kynið hljóti að stefna áfram að sjálf­bærni. Í við­tali við Elon Musk (teng­ill í við­tal­inu) kemur hann inn á það. Hann sér t.d. fyrir sér að húsa­þök fram­tíð­ar­innar verði sól­ar­sellur úr gleri. Mann­kynið verði þó að halda vöku sinni, ann­ars geti tækni­þekk­ing glat­ast. Sem dæmi um glat­aða tækni­þekk­ingu nefnir hann bygg­ingu pýramíd­anna í Egypta­landi og vatns­leiðslur Rómverja,“ sagði Þórarinn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár